Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. september 2014
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
NÝTT!
SÖNGNÁMSKEIÐ
10 vikna söngnámskeið hefst 22. sept. nk.
Verð: 25.000 kr.
§ Góður undirbúningur fyrir kórsöng
og frekara söngnám
§ Grunnþjálfun í tónfræðum
§ Kennslutímar eftir samkomulagi
§ Sameiginlegur undirleikur
Söngkennarar
Erna Guðmundsdóttir
Guðlaugur Viktorsson
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Allar nánari upplýsingar veitir
skrifsstofa Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
í síma 555 2704 og á netfangið
tonhaf@hafnarfjordur.is
www.tonhaf.is
Bæjarráð Hafnarfjarðar veitir félagasam
tökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki
til starfsemi og þjónustu sem fellur að
hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan
hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur
og forgangsröð sveitarfélagsins.
Verkefni eða viðburðir skulu tengjast Hafnarfirði
með einhverjum hætti svo sem að þau fari fram í
Hafnarfirði eða feli í sér kynningu á einhverju sem
viðkemur sveitarfélaginu. Verkefni eru ekki styrkt
eftirá.
Sjá nánar reglur um styrkveitingar og umsóknar
eyðublað á www.hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til 26. september 2014 og
skal úthlutun lokið fyrir 1. desember 2014.
Fyrirspurnir má senda á jonaosk@hafnar fjordur.is
Aðstoð við skráningu er hægt að fá í þjónustveri
Hafnarfjarðarbæjar í síma 585 5500 eða í gegnum
netspjall á heimasíðunni.
STYRKIR BÆJARRÁÐS 2014
Það var haustið 2010 að
ákveðið var að láta á það reyna
hvort grundvöllur væri fyrir
þróunarverkefni í 4.
bekk í anda Stóru upp
lestrarkeppninnar sem
átti 15 ára afmæli í
Hafnarfirði það árið.
Efnt var til nokkuð
margra funda með
umsjónar kennur um
þessa árgangs og er
skemmst frá því að
segja að hugmyndin
fékk góðar viðtökur og
með stuðningi frá Skólaskrifstofu
var mótað nýtt þróunarverkefni
sem nú í vor endaði með 18
hátíðum í öllum grunnskólunum.
Verkefnið er formlega sett af stað
á degi íslenskrar tungu í nóvem
ber og frá upphafi er lögð mikil
áhersla á samvinnu við heimilin
og að fá foreldra til að taka
virkan þátt í verkefninu. Fá
verkefni eru betur til þess fallin
að auka slíka samvinnu því allir
gera sér grein fyrir því hve lestr
arnámið er mikilvægt og hversu
góður árangur í lestri styrkir
nemendur á öðrum vett vangi og
markmiðið er einnig að efla
sjálfs traust nemendanna.
Óhætt er að segja að verkefnið
hefur staðið undir öllum vænt
ingum og virðist kærkomið og
veitir stuðning við það góða starf
sem unnið er á þessu aldursstigi í
grunnskólum Hafn
arfjarðar.
Kennarar skila grein
argerð að vori og það er
samróma álit þeirra að
Litla upplestr ar keppnin
sé verkefni sem skili
miklum árangri og að
þeirra mati góður
grunn ur að betri lestrar
færni og skilningi á því
efni sem nemendur
lesa. Mark mið verkefnisins er að
geta lesið upp sjálfum sér og
öðrum til ánægju og er það ávallt
haft að leiðarljósi að allir
nemendur komi fram á hátíð
unum og lesi ýmist í talkórum
eða á þann hátt sem kennari
stýrir hátíðinni. Allir eru sigur
vegarar, allir fá viður kenningar
skjal og mark miðið með keppn
is hugtakinu er að verða betri í
lestri í dag en í gær. Fleiri bæjar
félög feta nú í fótspor grunn
skólanna hér og er það sérlega
ánægjulegt að vagga þessa
verkefnis sé hér í Hafnar firði
eins og Stóru upplestrar keppn
innar.
Höfundur er skrifstofustjóri
Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar
Ingibjörg
Einarsdóttir
Litla upplestrarkeppnin
í 4. bekk
18 lokahátíðir í Hafnarfirði vorið 2014
Ertu búin/n að smella á LIKE á Fjarðarpóstinn
Yngsta fasteignasalan í
Hafnarfirði fagnaði árs afmæli sl.
föstudag. Það var að sjálf sögðu
gert með afmælistertu og opnu
húsi og fjölmargir lögðu leið sína
á skrifstofu RE/MAX Fjarðar við
Lækjargötuna.
Guðrún Þórhalla Helgadóttir,
framkvæmdastjóri segir
starfsemina hafa gengið vel og að
þetta fyrsta starfsár hafi verið
skemmtilegt og lærdómsríkt. Í
upphafi hafi starfsmenn verið
fjórir en eru nú orðnir sjö. Guðrún
er virkilega ánægð með móttökur
Hafnfirðinga og nær sveitar menn.
Töluvert er um að fólk komi inn
af götunni til að skoða starfsemina
og afla upplýsingar um fasteignir.
Staður inn sé því mjög líflegur
enda er fasteignasalan okkar í
hjarta Hafnarfjarðar. Segir hún að
RE/MAX Fjörður hafi komið inn
sem valkostur fyrir Hafn firðinga
og segist hún mjög ánægð með
viðtökurnar. Hún segir sölumenn
fyrirtækisins leggja mikla vinnu
og metnað í þjónustuna og sendi
t.d. aldrei viðskiptavini eina til að
skoða eignir.
Guðrún segir að þau finni fyrir
aukinni bjartsýni meðal við skipta
vina og að það sé að lifna yfir
fasteignamarkaðnum. Minni
eign ir fari fljótt og mikil eftir
spurn sé eftir slíkum eignum og
meðalstórum eignum. Þá bendir
hún á að verð hafi hækkað á Völl
unum, áhugi fyrir hverfinu hafi
aukist enda sé hverfið mjög barn
vænt og bjóði upp á fjölda
útivistarmöguleika.
Að lokum segist Guðrún horfa
björtum augum til framtíðar og
býður alla þá sem eru í fasteigna
viðskiptum velkomna í heim
sókn.
Starfsfólk RE/MAX Fjarðar: Víglundur, Páll, Jóhann, Ársæll, Guðrún, Hildur og Tryggvi.
Ársafmæli RE/MAX Fjarðar
Mikil eftirspurn eftir minni eignum í Hafnarfirði
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n