Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Side 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. september 2014
húsnæði í boði
Stór íbúð til leigu í vetur. Falleg
150 m² 5 herbergja íbúð í tvíbýlis
húsi til leigu miðsvæðis í Hafnarfirði
til 1.júní nk. Stórar stofur á efri
hæð ásamt eldhúsi og baðherbergi.
Á neðri hæð eru 4 svefnherbergi,
þvottahús, þurrkherbergi og lítið
salerni. Íbúðin leigist með eða án
húsgagna. Tilvalið fyrir pör eða
einstaklinga sem vilja deila íbúð.
Uppl. Í síma 845 4036.
húsnæði óskast
Hjón, 36 ára lögfræðingur og 39
ára tölvunarfræðingur í sjálfstæð
um rekstri óska eftir 34 her
bergja íbúð/húsi í Hfj. til leigu frá
sept/okt. Erum mjög traust og
reglu söm. Reyklaus með 2 sætar
innikisur. Mjög áreiðanlegir
leigjendur og góð greiðslugeta.
Uppl. í síma 868 1379 eða
elsaedv@gmail.com.
þjónusta
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938
hjalp@gudnason.is
Húsgagna, dýnu og teppa hreins
un. Við djúphreinsum: rúmdýnur,
sófasett, tungusófa, hægindarstóla,
teppi og mottur. s. 780 8319 eða
email: djuphreinsa@gmail.com
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Heimilis og flutningþrif. Tek að
mér heimilis og flutningsþrif.
Er vön og vandvirk.
Uppl. í s. 8486698.
Heimilisþrif. Tek að mér
heimilisþrif. Vönduð vinna.
Uppl. í síma 848 5681.
Vantar þig heimilisþrif? Ég get bætt
við mig húsum, er bæði vand virk og
mjög vön. Endilega hafið sam band
eftir kl. 5 í síma 699 7830.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn
fyrir veturinn. Úrvals efni. Hagstætt
verð. Uppl. í s. 845 2100.
Bílar
Hyundai Starex, 4X4, 7 manna, árg.
2000 til sölu. Ekinn um 170 þús.
km, einn eigandi. Skoðaður athuga
semda laust. Ný tímareim. Frábær
fjölskyldubíll og ferðabíll og til
flutninga. Verð: 350 þ.
Uppl. í s. 896 4613
óskast
Óska eftir ódýrum sláttutraktor.
Má þarfnast viðgerðar.
Uppl í síma 693 9603.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
Aðalfundur Leikfélagsins
Leikfélag Hafnarfjarðar heldur
framhaldsaðalfund í kvöld, fimmtu
dag kl. 20 í Gaflaraleikhúsinu. Þar
munu endurskoðaðir reikningar verða
lagðir fram og kynnt það sem fram
undan er hjá leikfélaginu. Það verður
blásið til sóknar á nýju leikári:
leiksýningar, Hið Vikulega og fullorð
insnámskeið í leiklist. Félagar, nýjir
sem gamlir, velkomnir.
Frumsýning - Næstum sjö
Leikhópurinn Óríon frumsýnir á morg
un, föstudag kl. 20 sýninguna Næst
um sjö í Gaflaraleikhúsinu. Næstu
sýningar verða 6., 13. og 14. sept em
ber. Næstum sjö er grátbros legt verk
sem fjallar um tvær íslenskar fjöl skyld
ur sem bindast örlagaböndum í gegn
um klæki huldumanns. Tveir auðjöfrar
þurfa að gifta börnin sín til að tryggja
auðæfi sín til æviloka en sá hængur er
á að á meðan stúlkan er tæplega tvítug
er drengurinn næstum sjö.
Sýning í Hafnarborg
Nú stendur yfir sýningin Rás í
Hafnarborg. Á sýningunni eru ný verk
eftir mynd listar mennina Daníel Magn
ús son, Guðrúnu Hrönn Ragn ars
dóttur, Ívar Brynjólfsson, Ívar Val
garðs son, Sól veigu Aðalsteinsdóttur
og Þóru Sigurð ardóttur. Á sýningunni
Rás er teflt saman verkum listamanna
sem þekktir eru fyrir að gera huglægri
reynslu efnisleg skil á áhrifaríkan hátt.
Margrét sýnir lampa
Margrét Guðnadóttir hefur unnið að
hönnun á lömpum og spiladósum
undanfarin ár. Hún sýnir nú lampa
unna úr pappír, ýmist pappírsbrot eða
úr pappírs snæri sem lýsa mun upp
glugga verslunarinnar Fríðu að
Strand götu 43 allan september.
Sendið stuttar tilkynningar á
ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
PANTAÐU
Á NETINU
OG FÁÐU
AFSLÁTT
REYKJAVÍKURVEGI 60 – SÍMI 561 0562
Nýir eigendur
Lögmanna Hafnarfirði
Lögmannsstofan Lögmenn
Hafnarfirði, Reykjavíkurvegi 60,
hefur skipt um eigendur, en
stofan var stofnuð árið 1984.
Nýir eigendur Lögmanna Hafn
ar firði eru Gunnar Sv. Friðriks
son, hdl. og Þuríður B. Sigurjóns
dóttir, hdl. Fyrri eigendur hennar
voru lögmennirnir Ólafur heitinn
Rafnsson, Bjarni S. Ásgeirsson
og Ingi H. Sigurðsson. Bjarni og
Ingi munu enn um sinn starfa á
stofunni. Nýir eigendur Lög
manna Hafnarfirði munu áfram
sinna lögmannsþjónustu fyrir
gamla viðskiptavini og bjóða
nýja viðskiptavini hjartanlega
velkomna. Stofan mun hér eftir
sem hingað til veita einstakling
um, fyrirtækjum og stofnunum
þjón ustu.
Fíkniefni fundust
Lögreglan á höfuðborgar
svæðinu leitaði á tveimur stöð
um í Hafnarfirði 27. ágúst sl. Á
öðrum þeirra var lagt hald á um
1,5 kg af kannabisefnum auk
ýmissa muna sem grunur leikur
á að séu þýfi. M.a. fannst
talsvert af verkfærum og nokkr
ar fartölvur. Á hinum staðnum,
í óskyldu máli, tók lögregla
einnig í sína vörslu um hálft
kíló af kannabisefnum. Hús ráð
andi, karl á fertugsaldri, var
handtekinn í þágu rannsókn ar
innar en í fórum mannsins
fannst enn fremur amfetamín.
Útivistartíminn styttist
Um svipað leyti og skólinn
hefst breytist útivistartími barna
og unglinga.
Virðum reglurnar
Börn 12 ára og yngri mega
ekki vera úti eftir klukkan 20
eftir 1. september. Börn 1216
ára mega lengst vera úti til 22 á
kvöldin en til er undanþága sem
leyfir þeim að fara heim af
viðurkenndri æskulýðsstarfsemi
eða íþróttaæfingu. Slíkar undan
þágur verða æ fátíðari og for
eldrar látnir vita um slíkt.
Foreldrar hafa fullan rétt til að
stytta þennan útivistartíma, taka
þarf mið af aðstæðum hverju
sinni og foreldrar bera ábyrgð á
börnum sínum og unglingum.
Virkir foreldrar
Geir Bjarnason forvarnafulltrúi
hjá Hafnarfjarðarbæ segir að
þátttaka foreldra í Foreldrarölti
hafi stutt við að útivistartíma sé
framfylgt auk þess sem það að
foreldrar hittast gefi þeim
tækifæri á að standa enn betur
saman því að huga að velferð
barna. Segir hann unglinga
ekkert erindi eiga út eftir að
útivistartíma er lokið.
„Foreldrar, stöndum saman að
því að tryggja að börnin okkar
alist upp í heilbrigðu umhverfi,“
segir Geir Bjarnason forvarna
fulltrúi.
Íbúar Hafnarfjarðarbæjar hafa orðið:
Grænir vellir
Grænt er vænt. Gras er grænt
allavega hálft árið. Til stendur
að tyrfa hraunmulning meðfram
Ásbrautinni fyrir grænkun Ás
valla.
Er þetta tímaskekkja og
ekkert sérlega grænt? Grasið
heimtar margar hendur, ófáar
vinnuvélar og nóg af eldsneyti.
Á meðan falla gróðurreitir í
órækt t.d við hverfisskólann.
Timburverk þyrst ir í fúavörn.
Leiksvæði drabb ast niður.
Torf…
Höfum við betri hugmyndir?
Margrét Geirsdóttir,
íbúi á Völlum.
...blaðið sem allir Hafnfirðingar lesa
Hvar auglýsir þú?
..bæjarblað Hafnfirðinga síðan 1983