Fjarðarpósturinn - 13.11.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. nóvember 2014
Það vottar ekki mikið fyrir sam
ráðs og samstarfsviljanum í bæj
ar stjórn. Virðist sem fögur fyrirheit
heyri sögunni til.
Það er kannski ekkert skrýtið
þegar sama fólkið á í hlut og átti að
leika sér saman í síðustu bæjar
stjórn. Þar var leikgleðin ekki meiri en svo að þeir sem
réðu töldu sig þurfa að hafa hina út undan svo þeir
skemmdu ekki fyrir í leiknum. Leikurinn var líka mikil
vægur og snérist um endurfjármögnun á erlendum lánum
Hafnarfjarðarbæjar. Hvort tilgangurinn helgi meðalið
verða aðrir að dæma um en það er aumkunarvert að sjá
þá sömu sem gagnrýna leynimakk og viðhalda því svo
sjálf ir þegar þeir fá að ráða í leiknum. Það er eins gott að
sandkassinn sé stór.
Það sem vekur mig til umhugsunar er sú staðreynd að
stjórnmálamenn eru greinilega ekkert sérstaklega að
fylgjast með hvort verið sé að fara eftir fjárhagsáætlun og
treysta greinilega embættismönnum til þess þó þeir sjálfir
beri ábyrgðina. Undanfarin ár er búið að skipta nokkrum
sinnum um upplýsingahugbúnað sem í hvert sinn átti að
vera sá besti á markaðnum og vera til þess að hægt væri
að fylgjast með öllum fjármálahreyfingum frá degi til
dags. Með hjálp slíks hugbúnaðs hefur verið hægt að
birta uppgjör mun oftar en ella. Hvernig geta 105
milljónir horfið sjónum manna og finnast svo ekki fyrr en
beðið er sérstaklega um yfirlit? Nú er komið nóg af
leynimakki og pukri. Greinið skýrt og greinilega frá því
hvernig 105 milljón kr. samningur var gerður – án
sérstaks samþykkis bæjarráðs. Það er reyndar sérstakt að
fulltrúar í bæjarráði skuli aðeins tala saman í fjölmiðlum
um þetta mál, engum dettur víst í hug að hafa samband
við hinn til að fá upplýsingar.
Það sem vakti mig líka til umhugsunar er að yfirlýsing,
í kjölfar frétta af bæjarráðsfundi, skuli hafa komið frá
bæjarstjóra, formanni bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar.
Er bæjarstjóri þá farinn að taka þátt í pólitísku þrasi? Af
hverju skrifar forseti bæjarstjórnar undir yfirlýsingu í
kjölfar fundar í bæjarráði? Er það vegna þess að hann er
fulltrúi hins meirihlutaflokksins en ekki vegna stöðu
sinnar í bæjarstjórn sem forseti?
Stór hluti þjóðarinnar hefur nú kannað stöðu sína á
leiðretting.is Sumir fagna og aðrir eru óánægðir. Jafnvel
þeir sem fá væna leiðréttingu eru ekkert sérstaklega
ánægðir. Vegna þess að þeir vita að þetta er bara lítill hluti
sem er verið að leiðrétta. Þeir hafa fengið fréttir af hækk
un matarskatts, af lækkun skatta á stóreignafólk og vita
að þeir sem hafa m.a. þurft að borga hærra verð fyrir
leigu húsnæði, fá ekki þessa leiðréttingu. Auðvitað kemur
það fólki vel að höfuðstóll lána þeirra sé lækkaður. Fólk
getur þá valið að greiða minna á mánuði eða leggja
lækkunina til hliðar og greiða sjálft inn á höfuðstól lána
sinna. Þá greiðast þau hraðar niður.
Menn gátu skráð sig inn á leiðretting.is með veflykli
RSK og séð hvort þeir höfðu fengið leiðréttingu, hversu
mikla og hvernig hún deildist á þau lán sem fólk var með.
Með þessum sama veflykli getur þú fyllt út þína
skattskýrslu, skoðað eldri gögn og ýmislegt fleira.
En þegar kemur að því að samþykkja þessa leiðréttingu
á verðbólguskoti hrunáranna, þá kveður við annan tón.
Nú þarf að nota sérstakt rafrænt skilríki sem á að vera
mikið öruggara en þú sjálfur. Það skapar fjölmörgu fólki
vinnu og auðvitað munu skattgreiðendur og eða notendur
síðan greiða fyrir þá þjónustu. Hvað getur verið svo
hættulegra að smella á takkann SAMÞYKKJA en
takkann SKOÐA?
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 16. nóvember
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Umfjöllunarefni: Ástin og hjónabandið.
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
www.frikirkja.is
Sunnudaginn 16. nóvember
Leikhúsdagur
Sunnudagaskóli kl. 11
Tófa kemur í heimsókn
„Upp, upp“ kl. 20
Stoppleikhópurinn sýnir leikritið
sem er um ævi Hallgríms Péturssonar
Starf eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.00 - 15.30.
www.astjarnarkirkja.is
Sunnudagurinn 16. nóvember
Messa kl. 11
Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur
predikar í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar.
Prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari.
Félagar úr Barbörukórnum syngja
undir stjórn Guðmundar organista.
Kaffisopi eftir stundina
Sunnudagaskóli kl. 11
með Önnur Elísu og aðstoðarfólki.
Alla miðvikudagsmorgna
Morgunmessa kl. 8.15
Morgunverður.
Fimmtudagur 13. nóvember
Kvenfélagsfundur kl. 19.30
Salsa og stílistakvöld.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 16. nóvember:
Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11
Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir þjónar.
Félagar úr kór Víðstaðakirkju leiða söng
undir stjórn Helgu Þórdísar.
Siggi og María stýra sunnudagaskólanum.
Kaffi og djús á eftir.
Allir velkomnir
www.vidistadakirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Þekkir þú staðinn?
Þegar myndir eru teknar með aðdráttarlinsu virðast
fjarlægðir verða óraunverulegar. Þessi mynd var tekin í
Hafnarfirði sl. þriðjudag.
Veist þú hvar þetta er?
www.facebook.com/fjardarposturinn