Fjarðarpósturinn - 13.11.2014, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. nóvember 2014
St. Jósefsspítali verður seldur
Deilt um sölu á
St. Jósefsspítala
Bæjarráð Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum í
síðustu viku með 3 atkvæðum
drög fjármálaráðneytis að sölu
auglýsingu með þeim breyting
um sem gerðar voru á fundinum.
Fulltrúar Samfylkingar og
VG sátu hjá og kvörtuðu yfir
skorti á samráði
Í bókun fulltrúa Samfylkingar
og VG segir að samkvæmt
fyrirliggjandi gögnum hafi
bæjaryfirvöld og einstaka
bæjarfulltrúar meiri hluta flokk
anna verið í samskipt um við
fulltrúa ríkisins um málið allt frá
því síðla sumars án þess að
bæjarráð hafi verið upplýst.
Erindi sem borist hafa frá m.a.
fjármálaráðuneyti hafi ekki verið
kynnt í bæjarráði né fjölskyldu
ráði og ekkert samráð hafi verið
haft um málið við fulltrúa minni
hlutans. Segja þeir þetta enn eitt
dæmið um það hvernig nýr
meirihluti kýs að standa að
málum þvert á yfirlýsingar um
aukið samráð og samvinnu þvert
á stjórnmálaflokka. Fulltrúar
Samfylkingar og VG benda á að
í fyrri samskiptum við ríkisvaldið
vegna sama máls hefur verið haft
fullt samráð við þáverandi
minnihluta.
Í fyrirliggjandi drögum að
auglýsingu umræddra eigna er
lögð áhersla á að eignirnar verði
nýttar undir heilbrigðis starfsemi.
Kemur fram að krafa þessi sé sett
fram af hálfu Hafnar fjarðar
bæjar. Fulltrúar minni hlutans
segja enga umræða eða
samþykkt þess efnis hafa verið
gerða í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
eða fastanefndum sveitar
félagsins, né hafi verið sett fram
einhver rök fyrir þessu fyrir
komulagi. Það liggi því ekkert
fyrir um það hvers vegna þessi
sérstaka heimild sé gerð né
hvernig það geti þjónað hags
munum sveitarfélagsins og
íbúum þess að þrengja með
þessum hætti mögulega nýtingu
umræddra fasteigna. Benda þeir
á að núverandi heilbrigðis ráð
herra hafi tekið af öll tvímæli um
að til standi að nýta umræddar
byggingar undir opinbera heil
brigðisþjónustu af einhverju tagi.
Í samræmi við
málefnasamning
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og Bjartrar framtíðar svöruðu
með bókun þar sem vitnað er í
málefna samning meirihluta
Sjálf stæðisflokks og Bjartrar
framtíðar þar sem segi að leitað
verði leiða til að hefja aftur
starfsemi í St. Jósefsspítala í
samstarfi hagsmunaaðila.
Í samræmi við þetta hafi forseti
bæjarstjórnar, formaður bæjar
ráðs og bæjarstjóri gert grein
fyrir stöðu mála í september sl. á
óformlegum fundi með stjórn
Hollvinasamtaka St. Jósefs
spítala í framhaldi af umbeðnum
fundi með fulltrúum Fasteigna
ríkisins.
Á forræði bæjarstjóra
Að öðru leyti hafi bæjarstjóri
annast framgang málsins. „Enn
um sinn mun meirihlutinn leitast
við að framtíðarstarfsemi í
húsinu endurspegli á einhvern
hátt fyrri sögu þess í bænum, þótt
það sé ekki skilyrt í auglýs
ingunni,“ segir í bókuninni
Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu
Miða
pantanir
“Stórt Læk á þessa”
frumsýningargestur
565 5900
midi.is
gaaraleikhusid.is
Síðustu sýningar
fyrir jól
sunnudagur
16. nóvember kl 17.00
sunnudagur
23. nóvember kl 20.00
Frúardagur Menntaskólans í Reykjavík
sýnir
söngleikinn Leg eftir Hugleik Dagsson
Frumsýning föstudaginn 14. nóvember kl. 20.00
2 sýning sunnudaginn 16. nóvember kl 20.00
3 sýning þriðjudaginn 18. nóvember kl 20.00
Eimskip hefur ákveðið að
ráðast í byggingu á fullkominni
10.000 tonna frystigeymslu á
athafnasvæði sínu í Hafnarfirði.
Ákvörðunin er tekin í ljósi
þess að veruleg aukning hefur
orðið í veiðum og vinnslu á upp
sjávarfiski sem kallar á vaxandi
frystigeymsluþjónustu. Einnig er
aukin eftirspurn eftir vöru
hótelþjónustu fyrir frystar neyt
enda vörur. Eimskip hefur verið
með starfsemi í Hafnarfirði allt
frá árinu 1970 og rekur þar
frysti geymsluna Fjarðarfrost
sem rúmar um 3.000 tonn, ásamt
því að vera með umfangsmikla
lönd unar þjónustu fyrir sjávar
útveginn auk tengdrar hliðar
þjónustu.
Eimskip hefur lengi átt þessa
lóð sem gefur kost á mun meiri
uppbyggingu en hún hefur að
mestu verið notað eins og hvert
annað geymslusvæði. Hefur
mörgum sviðið að sjá svo illa
farið með verðmætt hafnarsvæði.
Í tilkynningu á heimasíðu
Eimskipa segir að markmið
félags ins sé að byggja upp öfluga
þjónustumiðstöð fyrir sjávar
útveginn staðsetta í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarhöfn er vel staðsett
og býður upp á góða aðstöðu
fyrir útgerðir.
Gert er ráð fyrir að fram
kvæmdir hefjist fyrir áramót og
að fyrsti áfangi nýrrar frysti
geymslu verði tilbúinn til notk
unar sumarið 2015. Auk þess er
til staðar möguleiki á að stækka
nýju geymsluna í áföngum um
allt að 14.000 tonn í samræmi
við þarfir viðskiptavina.
„Með þessari ákvörðun er
Eimskip að fylgja eftir þeirri
þróun sem verið hefur til að geta
þjónustað viðskiptavini sína enn
betur en áður, enda er sjávar
útvegurinn ein af grunnstoðum
íslensks efnahagslífs og þjónusta
við sjávarútveginn er mikilvæg
stoð í rekstri félagsins.“
Hafnfirðingar fagna aukinni
starfsemi félagsins í Hafnarfirði.
Grænleita svæðið er lóð Eimskipa, rauðleiti flöturinn er
Fjarðarfros en nýbyggingin verður vestast á lóðinni. Gamli
Suðurgarðurinn sést efst á myndinni fyrir miðju.
10 þúsund tonna frystigeymsla
Eimskip ætlar að fjórfalda geymslugetu sína við Hafnarfjarðarhöfn
S
am
se
tt
úr
g
öf
nu
m
á
v
ef
H
af
na
rfj
ar
ða
rb
æ
ja
r
Laun bæjarfulltrúa hækka um 6,2%
Bæjarráð samþykkti á fundi
símum 7. nóvember tillögu
forseta nefndar um að laun kjör
inna full trúa taki breytingum í
samræmi við nýgerða kjara
samn inga.
Samband íslenskra sveitar
félaga hefur metið nýgerða
kjara samninga starfs manna
félaga sveitarfélaganna sem
8,3% og nýgerða samninga við
BHM sem 6,2%.
Laun sviðsstjóra hjá Hafnar
fjarðarbæ breyttust í samræmi
við kostnaðarmat samninga
BHM eða um 6,2%. Lagði for
seta nefndin til að viðmiðunarlaun
kjörinna fulltrúa breytist um
6,2% og verði 532.380 kr.
Bendir nefndin á að hefðu við
mið unarlaun kjörinna fulltrúa
breyst í samræmi við vísitölu
launa starfsmanna sveitarfélaga
þá væru þau í dag 561.993.
Launahæstu bæjarfulltrúarnir
eru Guðlaug Kristinsdóttir með
90% af viðmiðunarlaunum.
Rósa Guðbjartsdóttir með
82,5% af viðmiðunarlaunum.
Helga Ingólfsdóttir með
70,5% af viðmiðunarlaunum.
Ólafur Ingi Tómasson með
66,5% af viðmiðunarlaunu.
Aðeins er miðað við laun
bæjarfulltrúa í ráðum bæjarins
og í Hafnarstjórn.
Hlutfall af viðmiðunarlaunum* Laun
Forseti bæjarstjórnar 49,50% 263.528
Aðrir bæjarfulltrúar 33,00% 175.685
Formaður bæjarráðs 27,00% 143.743
Nefndarmenn í bæjarráði 18,00% 95.828
Önnur ráð en bæjarráð formaður 22,50% 119.786
Aðrir ráðsmenn 15,00% 79.857
Barnaverndarnefnd, formaður 10,50% 55.900
Barnaverndarnefnd, aðrir 7,00% 37.267
Hafnarstjórn, formaður 16,50% 87.843
Hafnarstjórn, aðrir 11,00% 58.562
Formaður nefndar 4,50% 23.957
Aðrir nefndarmenn 3,00% 15.971
Starfsnefndir, formaður 3,00% 15.971
Starfsnefndir, aðrir nefndarmenn 2,00% 10.648
Bæjarfulltrúar í ráðum fá þau laun til viðbótar.
Við Hvaleyrarlón