Fjarðarpósturinn - 13.11.2014, Side 7
www.fjardarposturinn.is 7 Fimmtudagur 13. nóvember 2014
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Álfabakka 14
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Fjarðargötu 13-15
Sími 555 4789
SELFOSS
Austurvegi 4
Sími 482 3949
Tilboðið gildir 30. okt.–14. nóv.
Umgjarðir
frá 2.500 kr.
15–80%
afsláttur af umgjörðum
TILBOÐSDAGAR Í AUGASTAÐ
Steiktar núðlur
m/kjúkling og
grænmeti
Djúpsteiktar
rækjur
Súrsætt
svínakjöt
aðeins
1.200 kr.
á mann fyrir
tvo eða fleiri
Tilboð
í nóvember!
Dong Huang
Chinese Restaurant
Reykjavíkurvegi 68 • sími 555 6999
Skoðaðu matseðilinn á www.kinaferdir.is
Skera niður eða byggja upp?
Það þarf ekki djúpstæða þekk
ingu á stjórnmálum í Hafnarfirði
til þess að átta sig á því á hvaða
vegferð nýr meiri hluti er undir
forystu Sjálfstæðis flokksins.
Þrátt fyrir að allar opin berar tölur
sýni mikinn við snúning og hratt
batn andi afkomu bæj
arins er nokkuð ljóst að
það er markmið nýs
meiri hluta að draga upp
allt aðra mynd og skera
niður þá þjónustu sem
við í Hafnarfirði höfum
staðið vörð um sl. ár.
Á sama tíma og hin
stóru sveitarfélögin
sem hafa glímt við
sam bærileg vandamál í
kjölfar efna hagshrunsins eru að
leggja drög að sókn til framtíðar
með áherslu á bætta þjónustu,
lægri þjónustugjöld á barna
fjölskyldur og metnaðarfulla
uppbyggingu atvinnulífs og
íbúða byggðar, virð ist nýjum
meirihluta í Hafn ar firði ekki
detta annað og frum legra í hug
en að ráðast í alls herjar niður
skurð. Flokkurinn sem lofaði
breiðu samstarfi allra flokka
virðist bara fylgja með.
Með því að gera fjármál
bæjarins tortryggileg, draga upp
þá mynd að aðstæður kalli á rót
tækar aðgerðir, reynir meiri hlut
inn nú að sækja sér fylgi með
þeim aðgerðum sem eru í vænd
um. Með því er gerð tilraun til að
draga úr þeim mikla árangri sem
náðst hefur í fjármálum sveita
félagsins á síðustu árum á sama
tíma og tekist hefur að viðhalda
góðu þjónustustigi.
Hvar á að skera niður?
Nýr bæjarstjóri hefur
lýst því yfir að mörg
tækifæri séu til að
hagræða í rekstrinum
og ætlar hann að leggja
fram skýrslu eftir jól
með tillögum þess
efnis. Það er hið besta
mál, þ.e. að leitað sé
stöðugt nýrra leiða til
að nýta sameiginlega
fjármuni bæjarbúa sem
best. Það eiga sveitarfélög stöð
ugt að gera og um það er varla
nokkur ágrein ingur í bæjar
stjórninni. Hugmyndirnar eru
líka án efa margar og góðar. Ég
sé til dæmis strax að hægt væri
að spara tölu verða upphæð með
því að draga til baka stórfellda
launa hækkun sem nýr meirihluti
ákvað að veita nýja
bæjarstjóranum fyrir nokkrum
vikum.
Við eigum að byggja upp!
Skuldir bæjarins eru fyrst og
fremst vegna fjárfestinga í fram
tíðinni, í innviðum nýrra íbúða
hverfa, veitumannvirkjum,
skólum og öðrum stofnunum.
Um þá uppbyggingu var almennt
breið og góð sátt í bæjarstjórn. Ef
greiða á skuldirnar hratt og
örugg lega verðum við að leyfa
þessum innviðum að vinna með
okkur, leyfa bænum að vaxa og
auka tekjur sínar á sama tíma og
við tryggjum skynsamlega
nýtingu takmarkaðra fjármuna. Í
stað þess að verja ómældri orku í
að draga upp dökka mynd af
stöðu bæjarins ætti bæjarstjórnin
að sameinast um það verkefni,
að byggja upp og laða til bæjarins
nýja íbúa og ný fyrirtæki. Í því
felast hagsmunir bæjarbúa allra.
Höfundur er bæjarfulltrúi.
Ófeigur
Friðriksson
Styrkir
Bæjarráð samþykkti í síðustu
viku að veita Hafnarfjarðarkirkju
einnar milljóna króna styrk
vegna söguritunar og 100 ára
afmælis kirkjunnar. Sagan er
rakin allt upphafi Garðakirkju
og til dagsins í dag.
Seltún
Hópbílar fengu ekki lóð sem
þeir sóttu um við Seltún þar sem
ekki hefur verið tekin ákvörðun
um framtíðarnot svæð isins.
Ferðamönnum sem koma í
Seltún hefur fjölgað gríðarlega á
undanförnum árum.
Bærinn selur á Strandgötu
Hafnarfjarðarbær hefur
samþykkt fyrirliggjandi kaup
samning vegna eignanna
Strandgötu 31 og Strandgötu
33, sem áður hýsti m.a. skóla
skrifstofu og skrifstofu félags
mála. Nýir eigendur hyggjst
breyta húsnæðinu í íbúðir og
stefna á að byggja eina þakhæð
ofan á húsið. Við þetta fjölgar
íbúum mjög í miðbæ Hafnar
fjarð ar.