Fjarðarpósturinn - 13.11.2014, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. nóvember 2014
Nýjar rannsóknir Náttúrufræði
stofnunar Íslands við iðnaðar
svæðið í Hellnahrauni í Hafnarfirði
sýna að mosi á svæðinu er sums
staðar talsvert skemmdur. Þar sem
skemmdirnar eru mestar er mosi
dauður og endurvöxtur ekki
sjáanlegur. Út frá loftmyndum má
sjá að mosi hefur byrjað að láta á
sjá eftir að iðnaðarstarfsemi hófst
á svæðinu á milli Berghellu og
Gjáhellu. Háplöntur á svæðinu
virðast þrífast allvel.
Í byrjun júlí 2014 fóru starfmenn
Náttúrufræðistofnunar að Hellna
hrauni til að kanna hugsanlegar
skemmdir á gróðri við há spennu
línuna sem flytur orku að álverinu
í Straumsvík en þekkt er að gal
van húðuð háspennumöstur geta
valdið skemmdum á gróðri í sínu
næsta nágrenni. Áhugavert þótti
að kanna skemmdir á mosa við
línuna en sett hafði verið fram sú
tilgáta að háan styrk nokkurra
þungmálma sem mælst hefur í
mosa við Hellnahraun mætti rekja
til háspennulínunnar.
Í ljós kom að mosinn hraun
gambri var sums staðar mikið
skemmdur við iðnaðarsvæðið í
Hellna hrauni en hann er ríkjandi á
hraununum við Hafnarfjörð eins
og víðast á ungum hraunum hér á
landi. Ákveðið var að kanna þetta
nánar og dagana 29.31. júlí 2014
var gróður skoðaður og skemmdir
kortlagðar með kerfisbundnum
hætti við háspennulínuna og
sunnan við hana þar sem hún
liggur meðfram iðnaðarsvæðinu í
Hellnahrauni.
Kortlagning skemmda
Afmörkuð voru snið u.þ.b.
hornrétt á háspennulínuna, eitt út
frá hverju mastri og síðan eitt á
milli þeirra. Á hverju sniði var
mosi skoðaður á stöðum með um
60 m millibili, bæði beint undir
línunni og síðan í um 150 og 300
m fjarlægð frá henni þar sem því
var við komið vegna bygginga og
gatna. Alls voru skoðunarstaðir 46
að tölu.
Útbreiðsla skemmda
Skemmdir á mosa var að finna
allvíða á rannsóknarsvæðinu en
þær voru mjög mismiklar. Lang
mestar voru þær næst lóð fyrir
tækisins Furu sem er á milli gatn
anna Gjáhellu og Berghellu.
Skemmd irnar teygja sig þaðan til
suðvesturs en úr þeim dregur
tiltölulega hratt með aukinni
fjarlægð. Þar sem skemmdir voru
mestar var nánast allur mosi dauð
ur og endurvöxtur ekki sjáanlegur.
Háplöntur virtust hins vegar ekki
hafa orðið fyrir eins miklum
áhrifum en tegundirnar krækilyng,
bláberjalyng, beitilyng og blá
vingull litu út fyrir að vera þar í
allgóðum vexti.
Mosaskemmdir var að finna á
til tölulega takmörkuðu svæði
norð vestan við öll háspennu
möstur.
Hvenær skemmdist mosinn
og hvers vegna?
Með því að skoða loftmyndir
frá mismunandi tímum má fá
upplýsingar um hvenær skemmdir
komu fram og greina útbreiðslu
þeirra. Á loftmynd frá 2009 eru
skemmdir greinilegar og er
út breiðsla þeirra svipuð þeirri sem
fékkst með kortlagningunni 2014
Á loftmynd sem tekin var 10
árum fyrr eða 1999 sést að
skemmd ir eru þá komnar fram
umhverfis þáverandi iðnaðarsvæði
í Hellnahrauni og við há
spennumöstur.
Á loftmynd sem tekin var 1985,
þ.e. áður en iðnaðaruppbygging
hófst í Hellnahrauni, eru mosa
skemmdir ekki greinilegar nema
við háspennumöstur.
Skemmdir við háspennumöstur
voru því komnar fram strax árið
1985 og má þær að öllum
líkindum rekja til efna sem úr
möstrunum koma við veðrun.
Miðað við loftmyndirnar má ætla
að skemmdirnar við iðnaðar
svæðið hafi byrjað eftir að starf
semi hófst á svæðinu á milli Berg
hellu og Gjáhellu. Útbreiðsla
skemmd anna bendir eindregið til
þess að þær megi rekja til þeirrar
starfsemi sem þar hefur farið
fram.
Athyglisvert er að á svæðinu
eru skemmdir í flokkum 12 (litlar
og nokkrar skemmdir) allvíða að
finna á rannsóknarsvæðinu. Þetta
eru að öllum líkindum nýlegar
skemmdir, sem sýnir að svæðið er
undir verulegu álagi. Lélegur
endurvöxtur mosa á verst förnu
svæðunum bendir í sömu átt.
Ályktanir
Fyrri mælingar hafa sýnt að
sunnan við iðnaðarsvæðið í
Hellna hrauni hefur styrkur nokk
urra efna í mosa reynst hærri en
víðast hvar annars staðar á land
inu. Einkum eru það þung málm
arnir blý, sink, arsen og nikkel auk
brennisteins. Útbreiðsla þessara
efna bendir til þess að arsen,
nikkel og brennisteinn komi frá
álver inu en að blý og sink og
raunar fleiri efni megi að verulegu
leyti rekja til þeirrar iðnaðar starf
semi sem starfrækt er í Hellna
hrauni.
Ekki er ljóst hvað valdið hefur
mosaskemmdunum við
Hellnahraun en ef þær endurspegla
styrk þeirra efna sem nefnd eru
hér að ofan er fátt sem bendir til
þess að þau komi eingöngu frá
há spennulínunni. Í ljósi þess að
hér er um verulegar skemmdir að
ræða er mikilvægt að rannsaka
nánar hvað þeim veldur. Í því
sam bandi er m.a. áhugavert að
kanna betur efnainnihald í gróðri
við Hellnahraun, einkum blý og
sink.
Heimild: Vefur Náttúrfræði
stofnunar Íslands.
húsnæði í boði
2ja herb. íbúð til leigu í Áslandi.
Uppl. í s. 893 5235 og 849 7555.
Óska eftur 4 herb. íbúð til leigu í
Hafnarfirði sem fyrst, helst í
Vallahverfi. Reglusemi og
skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. í s. 774 0700.
þjónusta
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hagstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn
fyrir veturinn. Úrvals efni. Hagstætt
verð. Uppl. í s. 845 2100.
Við djúphreinsum hægindastóla,
sófasett, rúmdýnur og teppi.
Notum viðurkennd efni og tæki frá
Karcher. Hreinsum í höndum leður-
áklæði, notum viðurkennd efni
Leather. Sími 780 8319.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Listamannaspjall
Í kvöld kl. 20 mun Helgi Þórsson
ræða við gesti um verk sín á
sýningunni Vara-litir sem nú stendur
yfir í Hafnarborg.
Hafsteins miðils minnst
Í kvöld kl. 20 mun Guðlaug Elísa
Kristinsdóttir minnast eiginmanns
síns Hafsteins Björnssonar miðils í
Gúttó við Suðurgötu. Hundrað ár eru
liðin frá fæðingu hans um þessar
mundir. Einnig mun Áshildur
Haraldsdóttir flautuleikari flytja tónlist.
Frítt inn, allir hjartanlega velkomnir,
kaffi á könnunni.
Málverkasýning
Elínbjörg Kristjánsdóttir sýnir málverk
í Menningarsalnum á Hrafnistu.
Sýningin stendur til 26. nóvember.
Sendið stuttar tilkynningar á
ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Mosaskemmdir á afmörkuðu svæði í Hellnahrauni
Hraungambri skemmdur við háspennumöstur og meira við iðnaðarsvæði
Loftmynd af rannsóknarsvæðinu 2009. Háspennumöstur eru
merkt með M. Athugunarstaðir eru merktir mismundandi litum í
samræmi við flokkun skemmda. Loftmynd frá Loftmyndum ehf.
Matbær veitinga- og veisluþjónusta
Óskum eftir manneskju
til starfa í mötuneyti
Vinnutími frá kl. 10.00 til 14.30
Upplýsingar í síma 6990434
verður haldinn
í Bungalowinu
að Vesturgötu 32,
miðvikudaginn 19. nóvember
nk. kl. 20:00
Dagskrá: Aðalfundarstörf
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Naf spjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Skoðaðu fjölmargar
myndir úr bæjarlífinu
Smelltu á
LÍKAR VIÐ