Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.11.2014, Page 11

Fjarðarpósturinn - 20.11.2014, Page 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 20. nóvember 2014 Handbolti: 20. nóv. kl. 18, Framhús Fram - FH úrvalsdeild kvenna 20. nóv. kl. 20, Ásvellir Haukar - FH úrvalsdeild karla 22. nóv. kl. 13.30, Hlíðarendi Valur - Haukar úrvalsdeild kvenna Körfubolti: 24. nóv. kl. 19.15, Frostaskjól KR - Haukar úrvalsdeild karla 26. nóv. kl. 19.15, Keflavík Keflavík - Haukar úrvalsdeild kvenna Körfubolti úrslit: Konur: Haukar - Snæfell: (miðv.d.) Haukar - KR: 72-66 Karlar: Hauakr - Þór Þ.: 94-109 Handbolti úrslit: Konur: Haukar - ÍR: 25-17 FH - Valur: 19-19 Karlar: FH - Fram: 29-22 Akureyri - Haukar: 28-21 Haukar - Fram: 26-13 ÍBV - FH: 21-26 Íþróttir ATVINNA Við óskum eftir starfskrafti í hlutastarf í sal og í afgreiðslu fyrri hluta virkra daga. Einnig í hlutastörf um kvöld og helgar. Upplýsingar á staðnum. Flatahrauni 5a • Opið alla daga kl. 11-22 FH-ingar sigursælir í skylmingum Þórdís Ylfa og Gunnar Egill Íslandsmeistarar í skylmingum Íslandsmótið í skylmingum með höggsverði var haldið í Baldurshaga um síðustu helgi. Þar voru FH-ingar sigursælir en nýbakaður Norðurlanda meist- ari, Gunnar Egill Ágústs son hampaði sínum fyrsta Íslands- meistaratitli í flokki fullorðinna er hann varð Íslandsmeistari í opnun flokki. Sigraði hann félaga sinn úr FH Guðjón Ragnar Brynjarsson í úrslitum 15-11. Þórdís Ylfa Viðarsdóttir varð Íslandsmeistari í kvennaflokki fullorðinna einnig í fyrsta sinn. Þórdís Ylfa Viðarsdóttir og Aldís Edda Ingvarsdóttir Tilboð Linnetsstíg 1 • sími 565 5250 • www.tilveranrestaurant.is Fiskur dagsins kr. 2.990,- Hvítvínsglas* fylgir með fiski dagsins á kvöldin! *eða bjórglas Íslandsmeistarlið FH, Guðjón Ragnar Brynjarsson, Þórdís Ylfa Við­ arsd óttir og Aldís Edda Ingvarsdóttir og Gunnar Egill Ágústsson. Sigraði hún stöllu sína úr FH, Aldísi Eddu Ingvarsdóttur 15-11 í úrslitaleik. Þá yrðu þau Gunnar Egill, Þórdís Ylfa, Guðjón Ragnar og Aldís Edda Íslandsmeistarar í liðakeppni. Aldís Edda varð svo Íslands- meistari í ungmennaflokki þar sem hún sigraði Þórdis Ylfu í úrslitaviðureign. Auk flokkanna sem hér hafa verið nefndir var keppt í flokki unglinga I og II, ungmenna karla og „veteran“ auk flokkum byrjenda. Drekaskátar vígðir Stoltir skátar sem feta í fótspor Mowglis 7-9 ára skátar nefnast í dag drekaskátar. Eins og ylfingarnir forðum liggur bakgrunnur verkefna þeirra í sögum Rud yard Kipling, Dýrheimum, sem fjallar um drenginn Mowgli sem villtist inn í frumskóga Indlands og var alinn upp af úlfum. Þar giltu lögmál skóg arins og Mowgli varð að læra að umgangast hin dýrin í skógi num. Fjölmargir leikir og verkefni eru tengdar sögunni um Mowgli og skógardýrin og gera þau starf drekaskáta spennandi og um leið framandi en lærdómsrík. Hópur nýrra drekaskáta fékk fyrsta skátaklút sinn fyrir skömmu þegar þeir voru vígðir við hátíðlega athöfn. Nú vita þeir að skátar eru hjálpsamir, glað- værir, traustir og náttúrvinir og vinna ýmis verkefni sem miða að því að útvíkka skilning þeirra á þessum hugtökum. Strákarnir eru allir í dreka- skátasveitinni Rauðúlfum einni af þremur drekaskátsveitum í Skátafélaginu Hraunbúum.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.