Fréttatíminn - 01.08.2014, Blaðsíða 6
É g get því miður ekki sagt þér að ég hafi það gott,“ segir Mufeed Shami, sendiherra Palestínu á Íslandi, en
hann er nú staddur hjá fjölskyldu sinni á
Vesturbakkanum. „Fjölskyldan mín býr
öll hér en auðvitað eru allir Palestínumenn
eins og fjölskylda. Það er hryllingur að
sitja hér á Vesturbakkanum og geta ekkert
gert fyrir fólkið okkar sem er innilokað í
þessum hörmungum sem eiga sér stað á
Gaza. Við erum öll yfirbuguð af sorg.“
Ekkert blóð eftir á spítölum Gaza
Shami segir íbúa Vesturbakkans reyna
eftir fremsta megni að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að hjálpa, eins og
með því að senda vistir og peninga yfir til
landa sinna á Gaza. „Í gærkvöldi var haft
samband við okkur til að gefa blóð því það
er ekkert blóð eftir á spítölunum á Gaza.
Ástandið þarna er ólýsanlega hryllilegt.
Það er ekkert vatn og ekkert rafmagn. Svo
er sett á nokkurra klukkutíma vopnahlé
svo fólk geti náð sér í vistir og komið sér
í skjól, en það eru hvorki vistir né skjól á
svæðinu. Fólk situr og bíður eftir að vera
drepið og enginn er óhultur, ekki neins
staðar. Fólk er drepið í almenningsgörðum,
börn eru drepin við leik á strönd, fjölskyld-
ur sem leita sér hælis í skýlum Sameinuðu
þjóðanna eru drepnar. Við skiljum ekki
hvernig þetta getur viðgengist.“
Palestína verður að fá frelsi
Shami segir einu lausnina vera að Gaza fái
frelsi. „Fólk er löngu komið með nóg. Pal-
estínumenn á Gaza hafa búið við hörmuleg-
ar aðstæður í 8 ár núna, verið innilokaðir
með mengað vatn og takmarkað rafmagn.
Það eru engir peningar, engin vinna og
fáir skólar. Íbúar Gaza vilja lifa eðlilegu
lífi, mennta sig og ferðast rétt eins og allir
aðrir. Það hefur ekki gefist nokkur mögu-
leiki á því að byggja samfélagið upp, en það
hefur auðvitað alltaf verið langtímamark-
mið Ísraelsmanna að buga palestínsku
þjóðina. En við erum samt að horfa upp á
grimmd núna sem engin getur skilið. Þetta
eru ekki átök, þetta eru stríðsglæpir.“ Hann
segir alþjóðasamfélagið verða að skilja það
að fólkið á Gaza geti ekki horfið aftur til
fyrra lífs, að vera innilokaðir fangar. „Það
væri líka vanvirðing við fórnarlömb þess-
arar útrýmingar sem á sér stað núna.“
Shami segir afstöðu Íslands skipta máli.
„Við erum að fá einhvern stuðning utan úr
heimi og við finnum fyrir honum. Ísland
hefur alltaf verið okkur hjartnæmt því það
var fyrsta vestræna þjóðin til að viðurkenna
sjálfstæði okkar. Og Ísland gerði það ekki
í pólitískum tilgangi heldur vegna þess að
Ísland er land mannréttinda. Við höfum
alltaf kunnað að meta stuðning Íslands og
hann hefur skipt máli þrátt fyrir að þjóðin
sé smá.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
stríð sendiherra Palestínu á íslandi er staddur á Vesturbakkanum
Ísland
hefur alltaf
verið okkur
hjartnæmt
því það
var fyrsta
vestræna
þjóðin til að
viðurkenna
sjálfstæði
okkar.
Ástandið er hryllilegt
Mufeed Shami, sendiherra Palestínu á Íslandi, er staddur á Vesturbakkanum hjá fjölskyldu sinni. Hann segir
fólk yfirbugað af hjálparleysi og sorg frammi fyrir hörmungunum sem eiga sér stað á Gaza, en að það væri
vanvirðing við fórnarlömbin að hverfa aftur til fyrra lífs á Gaza. Shami segir afstöðu Íslands skipta máli.
stjórnsýsla samskiPti innanríkisráðherra og lögreglustjóra
Umboðsmaður leitar svara Hönnu Birnu
t ryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþing-
is, hefur ritað Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innan-
ríkisráðherra bréf með ósk
um tilteknar upplýsingar
um samskipti ráðherrans
við Stefán Eiríksson, lög-
reglustjóra á höfuðborgar-
svæðinu. Umboðsmaður
hefur, í kjölfar umfjöllunar
DV fyrr í vikunni, rætt við
Stefán og Sigríði Friðjóns-
dóttur ríkissaksóknara. DV
fullyrti að Stefán hefði hætt
störfum sem lögreglustjóri
vegna afskipta ráðherrans
af lekamálinu svokallaða.
Stefán sagði, í framhaldi
þessarar umfjöllunar, að
tímabært hefði verið að
skipta um starfsvettvang.
Því hafi hann sótt um nýtt
og áhugavert starf. Ekk-
ert annað hafi ráðið þeirri
ákvörðun.
Í bréfi umboðsmanns eru
tvær spurningar. Annars
vegar hvort innanríkisráð-
herra hafi að eigin frum-
kvæði óskað eftir því að
lögreglustjórinn á höfuð-
borgarsvæðinu kæmi til
fundar/viðtals við Hönnu
Birnu í ráðuneytinu „þar
sem þér rædduð við hann
um lögreglurannsókn sem
embætti hans vann að á
sama tíma og beinist að
meðferð tiltekinna trún-
aðarupplýsinga sem voru
til staðar í innanríkisráðu-
neytinu.“ Hins vegar óskar
umboðsmaður eftir upp-
lýsingum um símtöl sem
ráðherra kunni að hafa átt
við lögreglustjórann „þar
sem þér rædduð um áður-
nefnda lögreglurannsókn.“
Hanna Birna Kristjáns-
dóttir sagði í yfirlýsingu
að hún hafnaði með öllu
stóryrtum og ósönnum full-
yrðingum DV vegna þessa
máls. Fram hefur komið hjá
Hönnu Birnu að hún telji
það farsælt að umboðsmað-
ur fari yfir málið og að hún
geri engar athugasemdir
við spurningar hans. -jh
Látnir Palestínumenn um 1370
70% óbreyttir borgarar
Slasaðir yfir 6000
Heimilislausir yfir 200.000
Látnir Ísraelsmenn 56
5% óbreyttir borgarar
„Fólk er drepið í almenningsgörðum, börn eru drepin við leik á strönd, fjölskyldur sem leita sér hælis í skýlum Sameinuðu þjóðanna
eru drepnar. Við skiljum ekki hvernig þetta getur viðgengist,“ segir Mufeed Shami, sendiherra Palestínu á Íslandi. Mynd/Getty.
Mufeed Shami,
sendiherra
Palestínu á Ís-
landi. Mynd/Hari.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra.
Stefán Eiríksson
lögreglustjóri.
6 fréttir Helgin 1.-3. ágúst 2014
Aros
borðstofustóll
– Komdu núna –
TAXFREE
DAGAR
20,32% Afsláttur Af öllum vörum
– EKKI mISSa aF ÞESSu –
– reykjavík – Akureyri –
tAxfree verð!
11.944
Krónur
að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðisaukaskatt af söluverði.
20,32% afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
tAxfree verð!
15.928
Krónur
WooDY
stóll,
margir litir