Fréttatíminn - 01.08.2014, Qupperneq 18
18 fréttaskýring Helgin 1.-3. ágúst 2014
Skiptir stærð máli?
Sú mynd sem við höfum af heiminum hefur áhrif á það hvernig við
hugsum um hann. Á heimskortinu sem við ólumst flest upp við er Afríka
jafn stór Grænlandi og Evrópa á stærð við Suður-Ameríku. Þessi heims-
mynd okkar byggir á kortagerð frá 16. öld en þrátt fyrir að ný kort með
réttum hlutföllum hafi verið gefin út á seinni hluta 20. aldar eigum við
erfitt með að sjá heiminn í réttu ljósi.
Kort dr. Arno Peters 1976
Árið 1976 gaf þýski sagnfræðingurinn dr. Arno Pet-
ers út nýtt kort til að sýna fram á að heimskortið
gefur okkur ákveðna heimsmynd, sem óneitanlega
er pólitísk í eðli sínu. Á korti Peters er suðurhveli
jarðar gefið mun meira vægi en norðurhvelinu.
Kortið hefur ekki fest sig í sessi en er þó notað af
UNESCO og við kennslu í breskum skólum.
Kort Gerardus Mercator frá 1596
Jörðin er hnöttótt og kortagerðamenn hafa
alltaf þurft að takast á við þá áskorun þegar
hnettinum hefur verið varpað á blað. Til er
fjöldinn allur af heimskortum, hvert og eitt með
sína kosti og galla en það sem ræður heimsmynd
okkar flestra er siglingakort hollenska land-
fræðingsins Mercator frá árinu 1596.
Löndin eins og við þekkjum þau af heimskorit Gerardus Mercators frá áirnu 1596.
Löndin eins og þau birtast í heimskorti Arno Peters frá árinu 1976.
Sjórinn.
Afríkukort Kai Kraus 2010
Árið 2010 gaf forritarinn Kai Krause út
kort af Afríku til að vekja athygli fólks á
skakkri heimsmynd okkar. Samkvæmt
niðurstöðu hans hættir Vesturlandabúum
til að horfa á Afríku sem einn frekar
lítinn massa þegar staðreyndin er sú að
Afríka er heimsálfa þar sem 2200 tungu-
mál eru töluð í 54 ólíkum ríkjum. Kortið
lætur okkur hugsa um hversu stór Afríka
(30,3 milljónir ferkílómetra) er í raun og
veru. Hún er stærri en Kína (9,6 milljónir
ferkílómetra), Bandaríkin ( 9,4 milljónir
ferkílómetra), Vestur-Evrópa ( 4,9 millj-
ónir ferkílómetra), Indland (3,2 milljónir
ferkílómetra) Argentína, tvö Skandinavíu-
lönd og Bretlandseyjar, til samans.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
PortúGAl
BelGíA
HollAnd
sviss
stórA BretlAnd
sPánn FrAKKlAnd
ÞýsKAlAnd
ítAlíA
indlAnd
KínA
BAndAríKin
Austur-
evróPA
Fyrsta
táknið
um
mikil-
vægi
landa er
stærð
þeirra.“
Dr. Arno Peters.
Bandaríkin Evrópa Indland Japan Kína
Land Stærð x 1000 km2
Kína 9.597
Bandaríkin 9.629
Indland 3.287
Mexíkó 1.964
Perú 1.285
Frakkland 633
Spánn 506
Nýja-Gínea 462
Svíþjóð 441
Japan 378
Þýskaland 357
Noregur 324
Ítalía 301
Nýja-Sjáland 270
Bretlandseyjar 243
Nepal 147
Bangladesh 144
Grikkland 132
Samtals 30.102
Afríka 30.221