Akureyri


Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 8

Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 8
8 38. tölublað 4. árgangur 16. október 2014 VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LOF fær Árni Arason bílstjóri hjá ferliþjónustunni hér í bæ fyrir einstaka lipurð og hjálpsemi. Svo skrifar kona fyrir höndstarfsmanna Skógarlundar. „Komi Árni auga á að einhver þarfnist hjálpar, býður hann strax fram aðstoð sína. Á þremur dögum hefur hann hjálpað þremur starfsmönnum Skógarlundar, þegar þeir hafa lent í vandræðum með bílana sína. Þess utan er hann mjög lipur í samskiptum og mjög gott er að eiga við hann samstarf. Í okkar huga er Árni Arason starfsmaður mánaðanna hjá Akureyrarbæ,“ segir í glaðlegu bréfi til blaðsins... LAST fá bíóhús enn á ný fyrir hávaða. „Ég tek undir með “öldungnum á efri brekkunni” í því að LASTA bíóin fyrir hávaðamengun. Ég hætti að fara í bíó fyrir nokkrum árum vegna óþolandi hávaða í augýsingum. En nú nýlega kom mynd sem mig langaði til að sjá og var að vona að þeir sem stjórna í bí húsunum hefðu séð að sér og lagað þetta. En - þvílík von- brigði! Hávaðinn sem aldrei fyrr, nánast pyntingar! Skyldi hljóðstyrkurinn aldrei hafa verið mældur? Eða er meiningin að gera alla heyrnarlausa? Eru ekki takmörk fyrir þvi hvað má bjóða fólki? Takk fyrir gott blað,“ skrifar kona á brekkunni... „Mig langar að LOFA þjónustu dekkjaverkstæða á Akureyri, en hún er undantekningarlítið góð,“ segir í bréfi frá Eyrarpúka. Hann getur þess í bréfinu að þjónustan kosti skildinginn en telur að þjónustuviðmót sé almennt gott – stundum við álag og erfiðar aðstæður. „Mér finnst við alveg mega vera duglegri að hrósa hvert öðru, þótt ég fagni því að hafa dálk eins og þennan þar sem hægt er að koma gagnrýni á framfæri líka,“ segir Eyrarpúkinn... LOF fær höfundur Hraunsins sem Ríkisútvarpið sýnir nú á sunnudagskvöld- um fyrir að „gleyma ekki mennskunni“ segir í bréfi frá Húsvíkingi. Hann bendir sérstaklega á að þegar hrotti og glæpa- maður sagði blíðlega við dóttur sína þegar hann var á leið í fangelsi í síðasta þætti: „Mamma les fyrir þig í kvöld.“ Ábending Húsvíkingsins kallast á við viðtal í blaði dagsins við Björn Thors um sjónvarps- persónuna Kenneth Mána. Lifi mennskan og umburðarlyndið... AKUREYRI VIKUBLAÐ 38. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2014 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND AÐSEND GREIN HJÖRLEIFUR HALLGRÍMS Ég hef engu logið Framkvæmdastjóri KEA er heldur óhress í síðasta tölublaði Akureyri vikublaðs og sakar mig um tilhæfu- lausar ásakanir og varla sé eitt sattt orð að finna í grein minni í þessu blaði frá 25. september s.l. En stöldrum nú aðeins við. Til að byrja með vil ég minna framkvæmdastjórann á að á fundi í Akureyrar- deild KEA þegar það hafði spurst út að KEA væri að kaupa hlut í Ásbyrgi- -Flóru spurði ég fram- kvæmdastjórann hvort satt væri og taldi hann þá ekki tímabært að svara nokkru þar um að svo stöddu, enda þyrfti hann ekki að leita samþykkis stjórnar KEA þegar ekki væri um stærri fjárfestingu að ræða. En það, sem kom á daginn eins og vitað er að keyptur var 1/3 hlutur í heildversluninni. Mér er meinilla við að bornar séu á mig sakir um óheilindi og lygar, enda allt of lengi búinn að vera í blaða- mennsku og útgáfustarfsemi til að ég viti ekki hvar mín mörk liggja í þeim efnum. Ég hef engu logið. Og að segja að það séu ósannindi, sem ég vitna til af deildarfundum og að- alfundum hjá KEA; hvað getur framkvæmdastjór- inn þá gengið langt í sinni óheiðarlegu vörn þar, sem hann sakar mig um ósann- indi og lygar. Það, sem ég tel að hafi e.t.v. farið mest fyr- ir brjóstið á honum er orðið, sem ég setti fram, og var “einkavinavæðing” í sambandi við kaupin á hlutnum í Ásbyrgi-Flóru og að hann geri sér enga grein fyr- ir merkingu orða séu þau sett innan gæsalappa. Þráspurði hann mig um heimildarmenn, sem ég eðlilega sagð- ist ekki gefa upp. Kannski hefur líka farið fyrir brjóstið á honum saman- burður minn á dapurlegu gengi KEA og öðrum kaupfélögum, sem eru í viða- miklum rekstri með góða afkomu en KEA ekki. Það er allt satt og rétt, sem ég segi í fyrrnefndri grein minni þar, sem vitnað er meira og minna til funda félagsins og einnig það að varamaðurinn í stjórn KEA gaf ekki kost á sér til áfram setu í stjórninni vegna þess að honum fannst ekki áhugi fyrir verulegum fjárfesting- um hjá félaginu. En að lokum ein saga af götu- horninu, sem segir að kaup fram- kvæmdastjórans á 1/3 hlut í Ásbyrgi- -Flóru hafi kostað u.þ.b. jafn mikið og heildverslunin öll þegar hún var keypt í upphafi. Þetta sel ég ekki dýrar en ég keypti. Það er illþolandi að geta ekki fjall- að um rekstur KEA eins og önnur fyrir tæki án þess að framkvæmdastjórinn fari af límingunum og auðvitað er stór spurning hvort ekki sé kominn tími á að skipta um mann í brúnni. Höfundur er framkvæmdastjóri Vinur er sá er til vamms segir Ekki verður annað séð en norðlensk menning sé í blóma. Svo aðeins sé tæpt á viðburðum næstu daga frumsýna a.m.k. tvö áhugamannaleikfélög um helgina. Annars vegar Leikfélag Hörgdæla og hins vegar Leikfélag Fjallabyggðar. Í báðum tilvikum er um glæný leikverk norðlenskra höfunda að ræða. Þá eru tónleikar út um allt, ýmsar myndlistarsýningar, Akureyri hefur getið af sér nýjan skáldsagnahöfund og svo mætti lengi telja. Það er því enn mikill hugur í Norðlendingum þótt margir velti fyrir sér „óréttlæti alheimsins“ – þá ekki síst hvernig fjárveitingum er misskipt. Einkennileg blanda ríkisstjórnarinnar af gamaldags hugsun og sið- blindri nýfrjálshyggju veldur áhyggjum. Ýmsar áherslur í fjárlagafrumvarpinu eru hreinlega gaga – svo sem hækkun á matvöru eins og stéttarfélög almennings hafa harðlega gagnrýnt. Ríkisstjórnin er þó ekki ein á báti. Ekkert hefur gerst eftir hrun sem bendir til grundvallarlærdóms eða nýrrar hugsunar. Enn er það svo að þeir sem fást við sköpun og listir – s.s. tónlistarskólakennarar – fá fingurinn frá fjárveitingavaldinu. Ríkisútvarpið, sam- eiginlegur menningarauður landsmanna, skal fjársvelt og sveigt til hlýðni. Næsta skref hjá Vigdísi Hauks og co gæti orðið að gera alvöru úr hótunum og uppræta öll listamannalaun. Í stefnu samtímans birtist einnig kynbundinn mun- ur. Konur sem starfa við menntun, sköpun eða umönnun eru líklegri en karlar sem sýsla við dauða hluti til að hafa það fjárhagslega skítt. Samt var það ekki hóf- semdarfólkið sem kennir í grunnskólanum á daginn og fer á leikæfingu á kvöldin sem skóp hrunið heldur hrundi bankaakerfið vegna vondra stjórnmálamanna og fólksins sem vann í því. Skussarnir fá samt endalausar launahækkanir, bæði fyrir og eftir hrun, eigum við að ræða lífeyrishneyksli stjórnmálamanna? Sjálftökuna sem þeir sóttu sér blygðunarlaust? Almenningur má éta það sem úti frýs. Margir halda að það sé best að kyngja óréttinum og láta duga að muldra ofan í kodda að kveldi dags. Má einnig rifja upp að þeir sem mótmæltu náttúruspjöllum voru dæmdir í fangelsi í síðustu viku. Þrátt fyrir blómstrandi menningu, leikhús, söng, ritlist og myndlist er mikið mein að hér megi menn helst ekki segja skoðun sína opinberlega undir nafni ef hún hentar ekki ráðandi öflum, hvað þá taka þátt í opinberum mótmælum. En hitt dugar ekki heldur að láta kúga sig endalaust, þá verða aldrei umbætur. Framfarir kosta fórnir og það er allt í lagi að taka pus ef leiða mun til farsælla áfangastaða. Akureyri Viku- blað hafnar þöggun. Því er blaðinu mikið ánægjuefni að sjá í nýrri rannsókn til meistaraprófs við HÍ, að æ fleiri akureyrskir blaðamenn horfi nú til mikilvægis gagnrýninna frétta. Björn Þorláksson Hjörleifur Hallgríms Misjöfn eru morgunverkin, segir einhvers staðar. Sama má segja um mörg önnur mannanna verk. Jón Ingi Hinriksson og Hrafnhildur Geirsdóttir, bændur í Mývatnssveit, hafa komið sér upp dálitlum geitastofni, ekki síst til gamans. Hafa geiturnar dvalið í einni af eyjum Mývatns í sumar, Slútnesi, en um helgina voru geiturnar sóttar á báti í slyddu og kulda og verða í útihúsum í vetur. Var nokkur stemmning í bátnum við þessi tímamót eins og sjá má á þessari skemmtilegu mynd.

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.