Akureyri


Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 21

Akureyri - 16.10.2014, Qupperneq 21
16. október 2014 38. tölublað 4. árgangur 21 GALDRAR BIRTUNNAR Véronique Legros Landiða – Fata morgana Sjónlistamiðstöðin, Ketilhús 27. september – 2. nóvember 2014 Véronique Legros hefur búið hér á landi s.l. 16 ár og er þetta fjórða sýn- ing hennar á Íslandi. Á fyrstu sýn- ingunni, í Deiglunni á Listasumri 2001, sýndi hún stórar brúntóna ljósmyndir, annars vegar af náttúru Íslands í óbyggðum og hinsvegar borgarlandslagi Tokyo í morgun- skímunni; falleg og áhugaverð sýning sem bætti nýjum þætti við myndlistarflóru Eyjarfjarðar. Hún tók þátt í samsýningu erlendra lista- manna, búsettra í Eyjafirði, í Ket- ilhúsinu 2009, þar sem verk ólíkra listamanna mynduðu eftirminnilega heild. Þegar hún sýndi, nokkrum árum seinna, í Verksmiðjunni á Hjalteyri, varpaði hún myndum af fuglum í yfirstærð á veggi og spil- aði hljóð þeirra undir. Á sýningunni sem nú stendur yfir í Ketilhúsinu hefur Véronique skipt fuglahljóðun- um út fyrir flugnasuð sem vissulega reynir á þol áhorfandans en gefur sýningunni dýpt, jarðtengingu og líf. Galdrar birtunnar Á sýningunni Landiða – Fata morgana er eins og að báðar fyrri einkasýningar Véronique gangi í endurnýjun lífdaga með útvíkkuðu þema, birtunni og göldrum hennar. Hún notar ýmsar tæknibrellur og tæknimöguleika þar sem birtan og blekkingin (skynvillan) bregða á leik. Véronique talar um að hún hafi áhuga á að notfæra sér sjónræna veikleika tækninnar. Sýningin fjallar mikið um að horfa á hluti, skynja, tengja og melta náttúruna, umhverfið. Að sjá það sem kannski er ekkert en er samt eitthvað, allt eftir viðhorfi áhorfandans. Þessi sýning krefst þess að menn setji sig inn í hugmyndina að baki verkinu, sem skilgreind er að nokkru leyti í sýningarskrá. Áhorfandinn þarf að gefa sér tíma til að horfa vel og svo að lokum að tengja saman, það sem upplifað er, það sem maður sér á sýningunni. Í sýningaskrá Sjónlist- armiðstöðvarinnar 2014 segir á bls. 35 „Undirstaða og leiðarstef sýn- ingarinnar er hugtakið mirage (tí- brá), sem gefur til kynna skynvillu eða blekkingu“. Að horfa og að sjá Í sal Ketilhússins er hátt til lofts og nýtir Véronique það vel við gerð turnsins eða skúlptúrsins sem hún hefur staðsett þar. Á honum eru gægjugöt og er tréstólum raðað allt í kring, einum við hvert gat. Þetta er þátttökulist því stellingar áhorf- andans þegar hann horfir í gegn- um götin spila stóra rullu og hrífa augljóslega listakonuna, en allir sem hafa fengist við módelteikn- ingu vita hversu heillandi manns- líkaminn er í sínum margvíslegu stellingum. Hvað menn sjá í gegn- um götin fer síðan eftir hugmynda- flugi áhorfandans. Það sem Véron- ique er fyrst og fremst að fjalla um á þessari sýningu er að horfa og að sjá. Hvað við sjáum ákvarð- ast af því hvernig við horfum og horfi menn yfirborðslega sjá þeir kannski ekki mikið. Á sýningunni eru líka stórar landlagsmyndir, af sænsku landslagi, fjöllum sem geta verið hvar sem er í heiminum, við þekkjum þau sem íslensk en kannski sjá aðrir þau sem tilheyr- andi sínu eigin umhverfi. Mynd- irnar eru teknar á gamla filmuvél, tvisvar tekið ofan í sömu myndina, sem gefur þeim dularfullan og óræðan blæ. Myndirnar eru á ljós- ritum sem límd eru á veggina og líkjast, í fljótu bragði, grófum blý- ants- eða kolateikningum. Tilfinn- ingin í verkunum vekur minningu um einhver verk Georgs Guðna, þó að samtímis séu þau ólík eiga þau sameiginlega næmnina gagn- vart landslaginu og birtunni. Hluti ljósmyndarinnar í stóra salnum er einnig sýndur á myndskjá sem liggur á gólfinu framan við hana. Saman eru þau óræð og áhrifarík og hljóðið í verkinu eykur á dulúð þess og í raun allrar sýningarinnar. Véronique varpar þremur mynd- um á veggi og nýtir þar tæknina á nokkuð óvenjulegan hátt. Horft beint í sólina Á einni myndinni er horft beint í sólina, sem allir vita að er í raun hættulegt sjóninni og stranglega bannað. Á hinum tveimur vinn- ur hún með tíbrána eða ljósbrotin sem myndast við þær aðstæður og býr til regnbogalitað prisma eða geislabaug. Á ensku er þetta fyr- irbæri kallað Glory eða Circle of Ullao. Á landslagsmyndinni sem varpað er upp hefur Véronique teiknað með ösku Eyjafjallajökuls og reynt að ná burtu hluta prism- ans en þó læðist það í blátónum meðfram jöðrum og línum og ýtir undir sjónræn áhrif verksins; gef- ur tilfinningu fyrir einhverskonar Fata morgana. Annar myndvarpinn á svölunum lýsir beint upp í loftið og kallast það verk á við sólarverk- ið niðri. Kosturinn við svalirnar í Ketilhúsinu er að þaðan er hægt að skoða sýningar frá öðru sjón- arhorni. Eitt verkið á sýningunni eru tve- ir skjáir sem mynda 90 gráðu horn og sýna mynd af vegi og vegstikum; á keyrslu í myrkri og snjó. Þarna er fjallað um sjónsviðið því allir sem keyrt hafa við slíkar aðstæður vita hversu erfitt það getur verið. Véron- ique, Gústav Geir Bollason og Sig- urður Árni Sigurðsson stunduðu nám í sama listaskóla í París og nota öll ljósið og áhrif þess á hátt sem hefur algera sérstöðu í mynd- list á Íslandi, en löng hefð er fyrir í Frakklandi. List impressionistanna byggði á andartakinu og birtunni í því. Véronique segist hafa mikinn áhuga á ljósinu og því hafi hún val- ið að vinna með ljósmyndir. Hentar öllum skólastigum Þessi sýning hentar mjög vel til safnkennslu fyrir öll skólastig þar sem hægt er að nálgast hana á svo mismunandi hátt, allt eftir þroskastigi hvers og eins. Börn eru svo opin, forvitin og klár. Þau eru forvitin um heiminn og hvernig hann er gerður, bæði sólin (birt- an) og jörðin (landið). Ég hvet því alla kennara, ekki einungis mynd- menntakennara, til að gefa nem- endum sínum tækifæri til að skoða þessa sýningu. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi. Sýning Véronique Legros, Landiða – Fata morgana, stendur yfir í Ketilhúsinu til 2. nóvem- ber og er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis. Leiðsagnir á sýningar Ketilhússins og Listasafnsins á Akureyri eru alla fimmtudaga kl. 12.15. það er alltaf gaman að spila með góðu fólki, annars væri maður eki að þessu og gaman að flytja eigin verk og komast upp með það, að þurfa ekki lengur að kópíera aðra,” segir Magnús. FÆR STUNDUM MÚSÍKEITRUN Spurður um eigin lagasmíðar, segir Magnús að hann hafi ekkki tölu á þeim lögum sem hafi komið út eftir hann en u.þ.b. 40 lög hafi orðið vin- sæl. Hann gerir textana alltaf sjálf- ur en neitar að svara spurningum um eigið uppáhaldslag eða texta. Hann segir lagasmíðar velta á stuði og stemmningu hvers tíma. “Stund- um kemur nýtt lag á “no time” en stundum vinnur maður þau lengi, textarnir ráða miklu um hvern- ig lagið verður, ég er ánægðastur þegar hvort tveggja kemur nánast um leið. Oftast er maður búinn að semja lag og gerir svo textann en þetta gerist líka á hinn veginn. Svo fær maður stundum músíkeitrun og kemur ekki nálægt þessu í dá- lítinn tíma.” BRAGGABLÚS MAGGA Gegnum tíðina sem áður var nefnd er sennilega þekktasta plata Mannakorns. Hún kom út 1977 og geymdi tíu lög og texta eftir Magn- ús nema textann við Ræfilskvæði sem er eftir Stein Steinarr. Platan þótti marka tímamót í mörgum skilningi og með henni sannaði Magnús sig sem einn fremsta laga- og textahöfund landsins. Platan þótti þjóðleg þótt hún væri poppuð og grípandi. Umslagið vakti eftir- tekt. Platan geymir meðal annars lagið Braggablús sem löngu er orðið sígilt. Hljómsveitin Mannakorn mun með nýja diskinum fyrir jólin hafa 10 stúdíóplötur á ferilskránni og er þá ekki allt talið. Síðasta eig- inlega Mannakorns platan með frumkvöðlunum kom út 1979 og nefndist – „Brottför kl. 8“, sú þriðja í röðinni. Seinni plötur eins og „Í ljúfum leik“, 1985, „Mannakorn 5“ árið 1985, „Mannakorn 6“ sem kom út 1990 og „í Blómabrekkunni” sem kom út 2012 eru skipaðar ólíkum tónlistarmönnum en þeir Magnús og Pálmi mynda enn kjölfestuna í hljómsveitinni líkt og þeir hafa gert síðustu tæp 40 árin eða frá stofnun sveitarinnar. Mannakorn verður sjö manna hljómsveit á tónleikunum í Hofi. Ellen Kristjáns verður með í för eins og á öllum stærri Mannakorns- tónleikum í seinni tíð. Magnús Ei- ríksson segir mjög gaman að spila í svo stórri hljómsveit en Manna- korn hafa aldrei spilað í Hofi áður. Af uppáhalds húsum norðlensk- um nefnir hann Græna hattinn, Rauðku á Siglufirði og Laugaborg í Eyjafjarðarsveit. “Við hlökkum mikið til að koma norður.” -BÞ Magnús Eiríksson: Skipaði sér snemma í hóp með bestu lagasmiðum þjóðarinnar og er enn að.

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.