Víkurfréttir - 20.04.2011, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagurinn 20. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar
berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á
fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur
frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar
birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu
greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent
efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum
Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Sigurður Jónsson, sími 421 0004, siggi@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Ritstjórnarpistill Víkurfrétta
Páll Ketilsson, ritstjóri
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 28. apríl. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Stefán Þorvaldsson
„Í sumarbústaðnum mínum.“
Soffía Sófaníusdóttir
„Með manninum mínum heima hjá mér.“
Tómas Enok Tomsen
„Ég ætla að eyða þeim með dóttur
wminni upp á Ásbrú.“
Fanney Grétarsdóttir
„Í rólegheitum með fjölskyldunni.“
Birna Ásbjörnsdóttir
„Ég ætla að hafa það gott með
fjölskyldunni.“
Spurning vikunnar // „Hvernig ætlar þú að eyða páskunum?“ siggi@vf.is
Það er fróðlegt að lesa viðtal við bæjarstjóra Reykjanes-
bæjar en hann kemur víða við í ítarlegu Víkurfréttaviðtali
sem birtist í blaðinu í dag. Hann leynir því ekki að það hafi
reynt á síðustu mánuði og eftir hrun eftir glæsta byrjun
á bæjarstjóraferli í bráðum áratug. Hann hefur staðið í
framlínu bæjarins og í hans tíð hafa orðið stakkaskipti á
mörgum sviðum, ekki síst í umhverfismálum sem virkilega
var orðið tímabært að taka á. Þá hefur hann barist fyrir
mikilli uppbyggingu í atvinnumálum en það hefur kostað
svita, tár og mikla fjármuni. Hann hefur fengið gagnrýni
fyrir að hafa farið fram úr sér í þeim málum því vissulega
kostar að byggja upp til framtíðar eins og hann hefur sagt.
Það má þó ekki gleyma því að á síðustu fimm árum fór
hér heilt varnarlið í burtu sem skapaði mikla atvinnu og
aðeins tveimur árum síðar skall kreppan á með ótrúlegum
efnahagslegum áhrifum. Í kosningum í fyrra sýndu bæj-
arbúar í Reykjanesbæ honum það traust að fylgja eftir
þeirri vinnu sem hann hefur staðið fyrir. Það má því segja
að bæjarstjórinn sé fremstur á vígvellinum í erfiðu stríði.
Vonandi tekst honum ætlunarverk sitt, sem er að koma
atvinnulífi og samfélagi hér á rétta braut þó svo að and-
stæðingar hinum megin séu erfiðir mótherjar; kreppan
með öllu tilheyrandi og ríkisvaldið sem hefur ekki sýnt
Suðurnesjamönnum nægan skilning eða veitt þann stuðn-
ing sem það ætti að gera.
Með tilkomu fyrsta alvöru verkefnisins í atvinnumálum
eftir kreppu, nýs kísilvers í Helguvík, sem skapa mun
mörg störf, jafnvel nokkur hundruð á byggingartímanum,
skulum við vona að bæjarstjórinn sé kominn yfir eina af
nokkrum hindrunum í erfiðu hlaupi og framundan séu
bjartari tímar.
Það er ekki hægt annað en að óska Keflavíkurstúlkum,
ungum sem eldri til hamingju með frábæran árangur
í körfuboltanum í vetur. Að vinna Íslandsmeistaratitil
í öllum flokkum kvenna í vetur er einstakt. Hápunkt-
urinn auðvitað þrefaldur sigur meistaraflokks, þar af tveir
stærstu titlarnir, bikar- og Íslandsmeistarar. Njarðvíkingar
og Grindvíkingar eiga líka sigurvegara í unglingaflokkum
drengja þannig að enn er karfan stærst á Suðurnesjum.
Í blaðinu í dag er rætt við Birnu Valgarðsdóttur sem hefur
verið körfuboltadrottningin í Keflavíkurliðinu undanfar-
in ár. Hún tók við forystuhlutverki í liðinu eftir að Anna
María Sveinsdóttir hafði verið burðarás í því í áraraðir.
Birna er gott dæmi um íþróttamann sem æfir vel og hugsar
vel um líkamann. Þrátt fyrir að vera kominn vel á fertugs-
aldurinn er hún lykilmanneskja í liðinu og sýnir öðrum,
m.a. leikmönnum sem gætu jafnvel verið dætur hennar,
frábært fordæmi með ástundun, áhuga og metnaði.
Um leið og við sendum lesendum okkar nær og fjær okkar
bestu óskir um gleðilega páska og gleðilegt sumar viljum
við þakka fyrir frábærar mótttökur á fyrsta blaði eftir
breytingu. Það yljar okkur vissulega um hjartaræturnar
og hvetur okkur áfram í baráttunni.
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin
alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15.
vf.is
vf.is
Bæjarstjóri og boltakona
Hernaðarbrölt í Reykjanesbæ
›› Þýskur sjóher á Stakksfirði ›› Kanadískur flugher á Miðnesheiðinni
F-18 þota kanadíska flughersins kemur inn til lendingar
á Keflavíkurflugvelli um sl. helgi.
Freigátan Brandenburg liggur fyrir
festum á Stakksfirði í síðustu viku.
Freigátan Brandenburg kastaði festum á Stakksfirði skammt frá landi í Njarðvík í síðustu viku. Í kjölfarið
komu svo tvö önnur herskip þýska hersins, m.a. Berlín, sem
er stærsta skip þýska flotans og önnur freigáta, Rheinland-
Pfalz.
Skipin voru á Stakksfirðinum yfir nótt en snemma næsta
morgun fóru þau til Reykjavíkur til að gleðja borgarstjórann.
Sea King þyrla af herskipinu Berlin var á bakvakt hjá Landhelgis-
gæslunni á meðan skipin voru hér á Íslandi.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson