Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2011, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 25.08.2011, Blaðsíða 4
4 FIMMTudagurInn 25. ÁgÚST 2011 • VÍKURFRÉTTIR 118 ja.is Símaskráin Já, við leitum að þér Úthringiver Já í Reykjanesbæ leitar að frábærum liðsmönnum í áskriftasölu fyrir SkjáEinn. Við leitum að hressu fólki, 20 ára eða eldra, sem er árangursdrifið, hefur mikla hæfni í mannlegum samskiptum, með framúrskarandi þjónustulund og er tilbúið til að láta til sín taka. Viðkomandi þarf að vinna töluvert sjálfstætt og sýna vönduð og skipulögð vinnubrögð. Um er að ræða hlutastörf þar sem unnið er 2-4 kvöld í viku. Ef þessi lýsing á við þig, sendu þá umsókn með mynd á netfangið: iris@ja.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Íris Sigtryggsdóttir, svæðistjóri Já í Reykjanesbæ, netfang: iris@ja.is, vinnusími: 522 3260. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 2. september 2011. Íslenska sjávarútvegssýningin 2 0 11 Smárinn, Kópavogur • September 22-24 www.icefish.is Eini viðburðurinn sem nær til íslenska sjávarútvegsins í heild sinni * Alþjóðlegar VIP-sendinefndir verða á staðnum * Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent í fimmta sinn þann 22. september 2011 Forðist biðraðir og sparið fé! Skráið ykkur á Netinu á www.icefish.is til þess að spara 20%! Allt fyrir atvinnumenn í sjávarútvegi frá veiðum til vinnslu og dreifingar á fullunnum afurðum Nánari upplýsingar veitir Marianne Rasmussen-Coulling í síma +44 (0) 1329 825335, netfang: mrasmussen@mercatormedia.com Íslenska sjávarútvegssýningin er atburður á vegum Mercator Media Samstarfsaðili um flutninga SkipuleggjandiAlþjóðleg útgáfa Opinber íslensk útgáfa Opinbert flugfélag/loftflutningafélag & hótelkeðja Icefish 2011_140wx90h_Aug22nd_Icefish 22/08/2011 08:10 Page 1 Til sölu 159,9 fm verslunarhúsnæði að Hafnargötu 6 í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar í síma: 420-3700 eða með tölvupósti á netfangið fasteignahollin@fasteignahollin.is Engin lán áhvílandi. Verð: 11.000.000. TIL SÖLU Jóhanna Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali Hafnargata 16 • 230 Reykjanesbæ • sími 420 3700 • fax 420 3701 www.fasteignahollin.is • fasteignahollin@fasteignahollin.is Hefur þú áhuga á tónlist og langar þig til að reyna á þig í nýjum aðstæðum? Viltu vinna með flottu listafólki að skapandi verkefni? Þá er Listefli á Ljósanótt eitthvað fyrir þig. Listefli á Ljósanótt er nýtt og spenn- andi verkefni með ólíkum hópum fólks. Verkefnið mun standa yfir dagana 26. til 28. ágúst nk. Verk- efnið er unnið undir merkjum Energí & trú hjá Keflavíkurkirkju en verkefnisstjóri er Hjördís Krist- insdóttir. Í samtali við Víkurfréttir segir Hjör- dís að Listefli á Ljósanótt sé ætlað fólki á aldrinum 18 til 25 ára. Horft sé til þeirra sem séu án atvinnu en ›› FRÉTTIR ‹‹ ›› Energí & trú með Listefli fyrir Ljósanótt: Skemmtilegt verkefni fyrir 18-25 ára um helgina vilji hafa eitthvað skemmtilegt fyrir stafni. Þó sé öllum á þessum aldri velkomið að taka þátt og tónlistar- menntun sé ekki skilyrði. Þátttaka í verkefninu er ókeypis og það eina sem þarf er áhugi. Keflavíkurkirkja heldur utan um verkefnið og er í góðu samstarfi við Vinnumála- stofnun, félagsþjónustur sveitar- félaganna og fleiri. Þrátt fyrir að kirkjan sjái um verkefnið, þá er það ekki á trúarlegum nótum. Aðalstjórnandi verkefnisins er Sigrún Sævarsdóttir Griffiths tón- listarkennari við Guildhall tón- listarskólann í London. Með henni verða m.a. þau Arnór Vilbergsson organisti, Valdimar Guðmunds- son og Þorvaldur Halldórsson úr hljómsveitinni Valdimar og Jana María Guðmundsdóttir söng- og leikkona. Hjördís segir ennþá nokkur sæti laus á námskeiðinu sem verður eins og verkstæðisvinna frá kl. 10 að morgni til kl. 17 síðdegis bæði laugardag og sunnudag. „Úr þessu verður til eitthvað verk sem síðan verður flutt á Ljósanótt í Reykja- nesbæ um aðra helgi. Við fáum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í lið með okkur og þetta verður örugg- lega bæði spennandi og skemmti- legt“ segir Hjördís. Framundan eru fleiri verkefni undir hatti Energí & trú. Í september og fram að jólum verður námskeiðið „Að lifa lífinu“ sem verður unnið eins og lífsleikniverkefni þar sem m.a. kemur fyrirlesari frá velgengni. is sem fjallar um það hvernig við getum notað peningana okkar á skynsaman hátt. Þar verður Energí & trú einnig í samstarfi við Mið- stöð símenntunar á Suðurnesjum. Í vetur ætla þátttakendur í Energí & trú einnig að læra að búa til hollan og góðan mat, fara í sjálfseflingu og þá verður málþing í október þar sem Sigrún Sævarsdóttir mun koma aftur. Þar vilja aðstandendur Energí & trú heyra hvað hvetur ungt fólk áfram. „Í framhaldi af því viljum við fara af stað með frumkvöðlaverkstæði þar sem ungt fólk getur t.a.m. lært að sækja í Evrópusjóði fyrir flott verkefni sem þau geta unnið að hér. Það er því nóg í gangi hjá okkur,“ segir Hjördís Kristinsdóttir, verk- efnastjóri hjá Energí & trú. Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í Listefli, en námskeiðið fer fram um næstu helgi, geta sent skráningu á hjordis@keflavikurkirkja.is eða hringt í síma 8460621. Taka skal fram nafn, aldur, netfang og síma- númer og hvers vegna þú vilt vera með í verkefninu. LISTEFLI Á LJÓSANÓTT Listefl i á Ljósanótt ER nýtt og spennandi VERKEFNI með ólíkum hópum fólks. Þekkt tónlistarfólk starfar með áhugafólki að því að skapa tónlist. Listefl i STENDUR YFIR FRÁ 26.-28. ágúst. Aðalstjórnandi er Sigrún Sævarsdótti r Griffi ths tónlistarkennari við Guildhall tónlistar- skólann í London. Með henni verða m.a. þau Arnór Vilbergsson organisti , Valdimar Guðmundsson og Þovaldur Halldórsson úr hljómsveiti nni Valdimar og Jana María Guðmundsdótti r söng- og leikkona. Þátt taka er ókeypis og það eina sem þarf er áhugi! Verkið verður fl utt á Ljósanótt 2011. Námskeiðið er fyrir fólk á aldrinum 18-25 ára Hefur þú áhuga á tónlist? Langar þig ti l þess að reyna á þig í nýjum aðstæðum? Viltu vinna með fl ott u listafólki að skapandi verkefni? Þá er Listefl i á Ljósanótt eitt hvað fyrir þig. Skráning er hafi n á hjordis@kefl avikurkirkja.is Sendu nafn, aldur, netf ang og símanr. og hvers vegna þú vilt v ra með. Hvar er hundurinn þinn að skíta? Er hundurinn þinn að skíta í garðinum hjá nágrann- anum? Það virðist a.m.k. vera alltof algengt í Reykjanesbæ að hundaeigendur hirði ekki upp eftir dýrin sín. Varla er sá göngustígur þar sem ekki er að finna hundaskít og svo virðast hundaeigendur gefa hundum sínum lausan tauminn til að skíta í garðinn hjá nágrann- anum. Á myndinni hér að ofan má sjá sjálfsafgreiðslu úr hundsrassgati í efri byggðum Keflavíkur. Þar venur hundur komur sínar undir svefnherbergisglugga nágranna síns og gerir stykkin sín þegar nágranninn er ekki heima. Leita að ein- býlishúsi fyrir bæjarstjóra Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að fjár- festa í einbýlishúsi sem þjóna muni sem bæjarstjórabústaður í framtíðinni. Húsið kemur í stað húss sem bærinn hefur ný- verið selt. Leitað er að tiltölu- lega nýlegu fullbúnu húsi með a.m.k. 4 svefnherbergjum. Hægt er að senda upplýsingar um slíkar eignir á Jón Þórisson fjármálastjóra (jh@grindavik.is) til 26. ágúst næstkomandi. Skemmdarvargar á ferð um Keflavík Skemmdarvargar voru á ferð um Keflavík í morg- unsárið síðasta laugardag og brutu m.a. grindverk við hús í bænum. Meðfylgjandi mynd er af brotnu grindverki við Aðal- götu 1 í Keflavík en einnig mun grindverk hafa verið brotið við hús á Vallargötu. 22% fleiri ferða- menn um Leifs- stöð en í fyrra Ferðamönnum sem fara um Leifsstöð fjölgar um 22% frá árinu 2010. Það gæti skilað um 600 þúsund erlendum ferðamönnum til landsins á árinu 2011. Erlendum ferða- mönnum fjölgar um 20% frá því í fyrra. Reiknað er með að farþegar Icelandair árið 2011 verði tæplega 1,8 milljónir talsins og hafa þeir aldrei verið fleiri. Átakið Inspired by Ice- land er talið hafa skilað sér vel. Þetta kom fram í Fréttablaðinu á þriðjudag. Fyrirhugað er nýtt markaðsátak á vegum iðnaðarráðuneytisins og hagsmunaaðila. Þar verður Ísland kynnt sem vetraráfanga- staður. Auglýsingadeild í síma 421 0001 Fréttadeild í síma 421 0002 Afgreiðsla í síma 421 0000 vf.is • m.vf.is • kylfingur.is Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.