Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2011, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 25.08.2011, Blaðsíða 10
10 FIMMTudagurInn 25. ÁgÚST 2011 • VÍKURFRÉTTIR ATVINNA Aðalbókari Sandgerðisbær óskar eftir að ráða til sín aðalbókara. Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Sandgerðisbæjar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Um er að ræða hlutastarf. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið: • Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi • Afstemming og önnur úrvinnsla fjárhagsbókhalds • Uppgjör og frágangur bókhalds • Þátttaka í áætlanagerð • Innra eftirlit • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar og hæfniskröfur: • Viðskiptafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla á bókhaldi • Þekking og reynsla á opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er æskileg • Góð tölvukunnátta • Nákvæmni og skipulagning í vinnubrögðum • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar Laun og starfskjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag Umsóknir sendist til Sandgerðisbæjar, Miðnestorg 3, eða í gegnum http://www.sandgerdi.is Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2011. Bæjarstjóri. ATVINNA Skrifstofustarf Sandgerðisbær óskar eftir að ráða til sín starfsmann til skrifstofustarfa í 100% starf. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið: • Móttaka og símaafgreiðsla • Umsjón með skjalasafni sveitarfélagsins • Umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins • Undirbúningur og frágangur funda bæjarráðs og bæjarstjórnar • Greiðsla reikninga • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun og reynsla sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af störfum fyrir sveitarfélög er æskileg • Góð tölvukunnátta • Nákvæmni og skipulagning í vinnubrögðum • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar Laun og starfskjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag Umsóknir sendist til Sandgerðisbæjar, Miðnestorg 3, eða í gegnum http://www.sandgerdi.is Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2011. Bæjarstjóri. Fyrir hönd aðstandenda, Karl G. Sævar og Fríða Bjarnadóttir Elskuleg móðursystir okkar, Eyja Guðbjörg Karlsdóttir, Kirkjuvegi 11, Keflavík, andaðist þriðjudaginn 26. júlí á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir færum við séra Sigfúsi B. Ingvarssyni, starfsfólki D-deildar HSS og öryggisvörðum Securitas á Reykjanesi. Setning Ljósanætur fer fram við Myllubakkaskóla fimmtu- daginn 1. september nk. Allir nemendur grunnskóla og elsti árgangur leikskóla koma gangandi í skrúðgöngu, hver frá sínum skóla, merktir skólalitunum og safnast saman við Myllubakkaskóla, elsta skóla bæjarins. 2000 blöðrum verð- ur sleppt til himins. Listasafn Reykjanesbæjar tók sl. vetur þátt í norrænu listverkefni ásamt listasöfnum bæði í Noregi og Svíþjóð og mun verkefnið enda á sýningum í öllum löndunum nú í haust. Íslenska sýningin Óvættir og aðrar vættir, opnar fimmtudag- inn 1. september kl. 14.00 í Bíósal Duushúsa og er þar með á dagskrá Ljósanætur, menningar- og fjöl- skylduhátíðar Reykjanesbæjar. Á sýningunni má sjá tæplega 60 verk frá öllum þremur þátttökulönd- unum. Bókasafn, Flughótel o.fl. opna margvíslegar sögu- og listsýngingar í Kjarna, Hafnargötu 57 fimmtu- daginn 1. sept. kl. 17:15. M.a. er sýning á leikmunum úr myndinni Flags of our fathers sem tekin var upp hér á Suðusrnesjum um árið. Listasafnið opnar Ljósanætursýn- inguna kl. 18 þann 1. september og einnig opna myndlistarsýningar víðs vegar um bæinn. Sýning Valgerðar Guðlaugsdóttur “Dúkka” opnar í Listasafni Reykja- nesbæjar fimmtudaginn 1. septem- ber klukkan 18 00. Sýningin er lið- ur í Ljósanæturhátíðinni. Í tengslum við Ljósanótt 2011 verða haldnir tónleikar unga fólksins í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ, fimmtudagskvöldið 1. september nk. kl. 20:00. 88 Húsið skipuleggur tónleikana í samstarfi við Ljósanæt- urnefnd. Gert er ráð fyrir að tón- listarmennirnir geti tekið 3-4 lög Sagnakvöld á Nesvöllum kl. 20 á fimmtudagskvöldinu. Hanna María Karlsdottir, leikari, Ingibjörg Kjart- ansdóttir, leiðbeinandi. Föstudagur 2. september: Dagskrá á útisviði við Ægisgötu á föstudagskvöldinu, 2. september frá kl. 20-23. Súpa í boði fyrirtæk- isins Skólamatur. Á sviðinu koma fram Lifun, Hellvar, Who Knew, Of Monsters and Men og Blaz Roca. Óhætt er að lofa góðri stemningu á stóra sviðinu á föstudagskvöldi Ljósanætur. Þar verður heimafólk í meirhluta og ljóst að tónlistarbær- inn stendur enn undir nafni og þarf engu að kvíða. Einnig á föstudagskvöldinu: Harmonikkuball á Nesvöllum kl. 20. Laugardagur 3. september: Reykjanesbær er aðalstyrktaraðili Reykjanes Maraþons sem haldið verður laugardaginn 3. septem- ber kl. 09. Reykjanes Maraþon er árlegur viðburður sem fram fer á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fram- kvæmd hlaupsins er í höndum lík- amsræktarstöðvarinnar Lífsstíls í Reykjanesbæ. Söguganga á vegum Leiðsögu- manna Reykjaness kl. 11. Mæting við Skessuhelli, gengið verður um Grófina og á Hólmsberg. Leiðsögu- maður Rannveig Garðarsdóttir. Árgangaganga leggur af stað frá Hafnargötu 88 kl. 13:30. Kl. 14.00-18.00 Dagskrá á útisviði við Ægisgötu Ávarp bæjarstjóra Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar Leikfélag Keflavíkur Gospelkrakkar Danskompaní Listefli frá Keflavíkurkirkju Brynballett Töframaður Salsatónlist Tónleikadagskrá í Duushúsum kl. 14.30-18.00 Karlakór Keflavíkur Félag harmonikkuunnenda Söngsveit Suðurnesja Bossa Nova, brasilísk tónlist Kvennakór Suðurnesja Söngsveitin Víkingarnir Dans og tónlist í Svarta pakkhús- porti kl. 14.30-18.00 Ýmsir listhópar og listamenn Dans og tónlist á Hljómvalshorni kl. 14.30-18.00 Ýmsir listhópar og listamenn Dagskrá á útisviði við Ægisgötu kl. 20-23 Að vanda verður boðið upp á glæsilega tónlistarveislu á Ljósa- nótt. Það er heimamaðurinn og fjölmiðlamaðurinn knái Guðfinnur Sigurvinsson sem stýrir dagskránni á sviðinu á laugardagskvöldið. Fram koma: 20:00 Friðrik Dór 21:00 Baggalútur 21:40 Helgi Björns og reiðmenn vindanna. 22:15 Flugeldasýning Björgunar- sveitarinnar Suðurnes og Gamli bærinn minn hljóma 22:30 Hljómsveitin Valdimar Sunnudagur 4. september Tónleikar Tónlistarfélags Reykja- nesbæjar í Andrew´s kl. 16 og 20. Með blik í auga – Tónlist og tíð- arandi áranna 1950-1970 - Sjá nánar umfjöllun á öðrum stað í blaðinu í dag. Nánar í dagskrá Ljósanætur sem dreift verður í næstu viku inn á öll heimili í Reykjanesbæ. Lífleg Ljósanótt sett eftir viku ›› Menningin og mannlífið blómstrar á Suðurnesjum:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.