Víkurfréttir - 25.08.2011, Page 10
10 FIMMTudagurInn 25. ÁgÚST 2011 • VÍKURFRÉTTIR
ATVINNA
Aðalbókari
Sandgerðisbær óskar eftir að ráða til sín aðalbókara.
Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Sandgerðisbæjar, stofnana
og fyrirtækja sveitarfélagsins. Um er að ræða hlutastarf.
Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
• Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi
• Afstemming og önnur úrvinnsla fjárhagsbókhalds
• Uppgjör og frágangur bókhalds
• Þátttaka í áætlanagerð
• Innra eftirlit
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur:
• Viðskiptafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla á bókhaldi
• Þekking og reynsla á opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er æskileg
• Góð tölvukunnátta
• Nákvæmni og skipulagning í vinnubrögðum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
Laun og starfskjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga við
viðkomandi stéttarfélag
Umsóknir sendist til Sandgerðisbæjar, Miðnestorg 3, eða í
gegnum http://www.sandgerdi.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2011.
Bæjarstjóri.
ATVINNA
Skrifstofustarf
Sandgerðisbær óskar eftir að ráða til sín starfsmann til
skrifstofustarfa í 100% starf. Mikilvægt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
• Móttaka og símaafgreiðsla
• Umsjón með skjalasafni sveitarfélagsins
• Umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins
• Undirbúningur og frágangur funda bæjarráðs og bæjarstjórnar
• Greiðsla reikninga
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af störfum fyrir sveitarfélög er æskileg
• Góð tölvukunnátta
• Nákvæmni og skipulagning í vinnubrögðum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
Laun og starfskjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga við
viðkomandi stéttarfélag
Umsóknir sendist til Sandgerðisbæjar, Miðnestorg 3, eða í
gegnum http://www.sandgerdi.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2011.
Bæjarstjóri.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl G. Sævar og Fríða Bjarnadóttir
Elskuleg móðursystir okkar,
Eyja Guðbjörg Karlsdóttir,
Kirkjuvegi 11, Keflavík,
andaðist þriðjudaginn 26. júlí á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir færum við séra Sigfúsi B. Ingvarssyni, starfsfólki D-deildar
HSS og öryggisvörðum Securitas á Reykjanesi.
Setning Ljósanætur fer fram við Myllubakkaskóla fimmtu-
daginn 1. september nk.
Allir nemendur grunnskóla og elsti
árgangur leikskóla koma gangandi
í skrúðgöngu, hver frá sínum skóla,
merktir skólalitunum og safnast
saman við Myllubakkaskóla, elsta
skóla bæjarins. 2000 blöðrum verð-
ur sleppt til himins.
Listasafn Reykjanesbæjar tók sl.
vetur þátt í norrænu listverkefni
ásamt listasöfnum bæði í Noregi
og Svíþjóð og mun verkefnið enda
á sýningum í öllum löndunum nú
í haust. Íslenska sýningin Óvættir
og aðrar vættir, opnar fimmtudag-
inn 1. september kl. 14.00 í Bíósal
Duushúsa og er þar með á dagskrá
Ljósanætur, menningar- og fjöl-
skylduhátíðar Reykjanesbæjar. Á
sýningunni má sjá tæplega 60 verk
frá öllum þremur þátttökulönd-
unum.
Bókasafn, Flughótel o.fl. opna
margvíslegar sögu- og listsýngingar
í Kjarna, Hafnargötu 57 fimmtu-
daginn 1. sept. kl. 17:15. M.a. er
sýning á leikmunum úr myndinni
Flags of our fathers sem tekin var
upp hér á Suðusrnesjum um árið.
Listasafnið opnar Ljósanætursýn-
inguna kl. 18 þann 1. september
og einnig opna myndlistarsýningar
víðs vegar um bæinn.
Sýning Valgerðar Guðlaugsdóttur
“Dúkka” opnar í Listasafni Reykja-
nesbæjar fimmtudaginn 1. septem-
ber klukkan 18 00. Sýningin er lið-
ur í Ljósanæturhátíðinni.
Í tengslum við Ljósanótt 2011 verða
haldnir tónleikar unga fólksins í
Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ,
fimmtudagskvöldið 1. september
nk. kl. 20:00. 88 Húsið skipuleggur
tónleikana í samstarfi við Ljósanæt-
urnefnd. Gert er ráð fyrir að tón-
listarmennirnir geti tekið 3-4 lög
Sagnakvöld á Nesvöllum kl. 20 á
fimmtudagskvöldinu. Hanna María
Karlsdottir, leikari, Ingibjörg Kjart-
ansdóttir, leiðbeinandi.
Föstudagur 2. september:
Dagskrá á útisviði við Ægisgötu á
föstudagskvöldinu, 2. september
frá kl. 20-23. Súpa í boði fyrirtæk-
isins Skólamatur. Á sviðinu koma
fram Lifun, Hellvar, Who Knew, Of
Monsters and Men og Blaz Roca.
Óhætt er að lofa góðri stemningu
á stóra sviðinu á föstudagskvöldi
Ljósanætur. Þar verður heimafólk í
meirhluta og ljóst að tónlistarbær-
inn stendur enn undir nafni og þarf
engu að kvíða.
Einnig á föstudagskvöldinu:
Harmonikkuball á Nesvöllum kl.
20.
Laugardagur 3. september:
Reykjanesbær er aðalstyrktaraðili
Reykjanes Maraþons sem haldið
verður laugardaginn 3. septem-
ber kl. 09. Reykjanes Maraþon er
árlegur viðburður sem fram fer á
Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fram-
kvæmd hlaupsins er í höndum lík-
amsræktarstöðvarinnar Lífsstíls í
Reykjanesbæ.
Söguganga á vegum Leiðsögu-
manna Reykjaness kl. 11. Mæting
við Skessuhelli, gengið verður um
Grófina og á Hólmsberg. Leiðsögu-
maður Rannveig Garðarsdóttir.
Árgangaganga leggur af stað frá
Hafnargötu 88 kl. 13:30.
Kl. 14.00-18.00 Dagskrá á útisviði
við Ægisgötu
Ávarp bæjarstjóra
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar
Leikfélag Keflavíkur
Gospelkrakkar
Danskompaní
Listefli frá Keflavíkurkirkju
Brynballett
Töframaður
Salsatónlist
Tónleikadagskrá í Duushúsum kl.
14.30-18.00
Karlakór Keflavíkur
Félag harmonikkuunnenda
Söngsveit Suðurnesja
Bossa Nova, brasilísk tónlist
Kvennakór Suðurnesja
Söngsveitin Víkingarnir
Dans og tónlist í Svarta pakkhús-
porti kl. 14.30-18.00
Ýmsir listhópar og listamenn
Dans og tónlist á Hljómvalshorni
kl. 14.30-18.00
Ýmsir listhópar og listamenn
Dagskrá á útisviði við Ægisgötu
kl. 20-23
Að vanda verður boðið upp á
glæsilega tónlistarveislu á Ljósa-
nótt. Það er heimamaðurinn og
fjölmiðlamaðurinn knái Guðfinnur
Sigurvinsson sem stýrir dagskránni
á sviðinu á laugardagskvöldið.
Fram koma:
20:00 Friðrik Dór
21:00 Baggalútur
21:40 Helgi Björns og reiðmenn
vindanna.
22:15 Flugeldasýning Björgunar-
sveitarinnar Suðurnes og Gamli
bærinn minn hljóma
22:30 Hljómsveitin Valdimar
Sunnudagur 4. september
Tónleikar Tónlistarfélags Reykja-
nesbæjar í Andrew´s kl. 16 og 20.
Með blik í auga – Tónlist og tíð-
arandi áranna 1950-1970
- Sjá nánar umfjöllun á öðrum stað
í blaðinu í dag.
Nánar í dagskrá Ljósanætur sem
dreift verður í næstu viku inn
á öll heimili í Reykjanesbæ.
Lífleg Ljósanótt sett eftir viku
›› Menningin og mannlífið blómstrar á Suðurnesjum: