Víkurfréttir - 25.08.2011, Side 6
6 FIMMTudagurInn 25. ÁgÚST 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýs-
ingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á
fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur
frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar
birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu
greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent
efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum
Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Leiðari Víkurfrétta
EYÞÓR SÆMUNDSSON, BLAÐAMAÐUR
Bjallan glymur og skólastarf er hafið á ný. Glaðlegir ung-
lingar og góðlegir gamlingjar
vakna til lífs á ný eftir hýði sum-
arsins og svo eru það litlu krílin sem
hafa beðið þess með óþreyju að komast
aftur í skólann og hitta vinina. Lífið er að
komast í fastar skorður eftir sumarfrí hjá
flestum og ég er einn af þeim sem fagna
því. Nú fer maður kannski loks að drífa sig í ræktina
enda búinn að bæta á mig óvelkomnum kílóum enda
má varla skína sól þá er maður kominn með ís í hönd,
já eða ákveðinn gulleitan vökva sem rennur vel niður
með sólskini.
Bæjarhátíðirnar á Suðurnesjum eru senn á enda en
nóg hefur verið um að vera síðan Sjóarinn síkáti reið á
vaðið í byrjun júní. Nú um helgina ná Sandgerðisdagar
hámarki og svo rennur upp Ljósanótt og þá er haustið
sennilega byrjað að banka á dyrnar.
Blaðið í dag ber þess merki um að Ljósanótt sé á næsta
leiti og þar ætti eitthvað að vera í boði fyrir alla. Það
sem stendur upp úr í dagskránni er fjöldinn allur af
hæfileikafólki sem við eigum hér á Suðurnesjunum. Við
þurfum ekki mikið að leita út fyrir Gull-
bringusýslu til þess að fylla daskrána hér
á Ljósanótt enda koma héðan listamenn í
fremstu röð og sjaldan hefur jafn mikið
af heimaræktuðum hæfileikum komið
fram og einmitt í ár.
Sumarið hefur annars verið ágætt. Þurrt
og bjart þó það sé endilega ekki allra
tebolli. En þó sennilega flestra. Íslend-
ingar eru helteknir af veðrinu og oftar en ekki heyrir
maður fólk í kringum sig hreinlega ljúga að sjálfu sér
þegar kemur að veðri, það hreinlega telur sér trú um
að veðrið sé frábært en innst inni veit það að svo er alls
ekki. Þetta skemmtir mér mjög.
Svo er ég alveg handviss um það að skiltið við KFC í
Reykjanesbæ sem sýnir hitastigið er bilað eða þá að
mælirinn sem lesið er af er ekki í skugganum. Ég tek
haustinu fagnandi og finnst alltaf eitthvað notalegt
þegar fyrstu lægðirnar koma yfir landið og maður nýtur
þess bara að vera heima í notalegheitum og kveikir jafn-
vel á kerti við og við. Ég er líklega allur að mýkjast með
aldrinum og það er greinilegt að ég er orðinn gamall
fyrst ég er að tala svona mikið um veðrið.
Lífið að komast í fastar skorður
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 18. ágúst. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Með blik í auga
›› Tónlist og tíðarandi áranna 1950-1970:
Myndlistarkennari
Vegna forfalla vantar myndlistarkennara í Heiðarskóla.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsjónarmaður í Frístund í Heiðarskóla
Starfið er hlutastarf og felst m.a. í umsjón og skipulagi
Frístundar í Heiðarskóla.
Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu,
Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Þór Jónsson
skólastjóri í síma 420-4501 og 894-4501
LAUSAR STÖÐUR
Í HEIÐARSKÓLA
Venju samkvæmt verður boð-ið upp á glæsilega hátíð-
artónleika í tilefni af Ljósanótt í
Reykjanesbæ.
„Þetta árið hafa þeir hlotið nafnið
Með blik í auga, og er tímaferða-
lag aftur til áranna 1950 til 1970
í tónum, máli og myndum. Við
förum í tímaflakk aftur til áranna
þegar Hafnargatan var ómalbikuð
og breyttist í stórfljót í rigningum.
Þegar kaupmenn versluðu á
öllum hornum og Kaupfélagið var
stórveldi. Bærinn ilmaði fyrst og
fremst af fiski og herinn nýbúinn
að koma sér fyrir á Háaleitinu.
Hallbjörg Bjarnadóttir, Ellý Vil-
hjálms, Haukur Morthens og Raggi
Bjarna hljómuðu í óskalagaþáttum
sjúklinga og sjómanna,“ segja þeir
Arnór Vilbergsson og Kristján
Jóhannsson hjá Tónlistarfélagi
Reykjanesbæjar í samtali við Víkur-
fréttir.
Það verður einmitt boðið upp á
tónlist Hallbjargar, Ellýar, Hauks
Mortens og Ragga Bjarna, auk
– á hátíðartónleikum í Andrews á Ljósanótt
Hljóma, Villa Vill, Flowers og Trú-
brots í Andrews Theater á Ásbrú í
Reykjanesbæ, sunnudaginn 4. sept-
ember kl. 16 og aftur kl. 20.
„Það eru frábærir söngvarar af
Suðurnesjum sem stíga á svið,
Valdimar Guðmundsson, Fríða
Dís Guðmundsdóttir, Bríet Sunna
Valdemarsdóttir Jana María Guð-
mundsdóttir, Guðmundur Her-
mannsson, Birna Rúnarsdóttir,
Sveinn Sveinson og fleiri. Það er
14 manna hljómsveit sem leikur
undir,“ segja þeir félagar. Sýning-
in í Andrews verður einnig klædd
í búning áranna 1950 til 1970 og
m.a. mun Gerður G. Bjarklind ljá
fréttalestrinum rödd sína.
Arnór B. Vilbergsson stjórnar
hljómsveitinni og útsetur tónlistina
í upprunalegum anda. Kristján Jó-
hannsson skrifar handrit og kynnir
viðburðinn. Dagskráin öll er verk
Suðurnesjafólks en mikil vinna
hefur verið lögð í undirbúning
hátíðartónleikanna og þrotlausar
æfingar. Aðstandendur Með blik í
augum ætla að fylla Andrews tví-
vegis á sunnudeginum, 4. septem-
ber, og lofa mikilli upplifun.
Miðasala er á midi.is en einnig
verður hægt að nálgast miða á
heimaslóð í forsölu sem nánar
verður auglýst síðar.
Sa m n i n g a r hafa náðst
milli HS Orku
og spænska fyr-
irtækisins Stolt
Seafarm, dótt-
u r f y r i r t æ k i s
Stolt Nielsen
samsteypunnar, um nýtingu af-
falls frá Reykjanesvirkjun til fisk-
eldis.
Stolt Seafarm hyggst ala sólkola
til útflutnings, en til eldisins þarf
volgt vatn, sem fæst frá virkjuninni.
Samningurinn, sem undirritaður
var á mánudag, þýðir að tugir nýrra
starfa skapast á Suðurnesjum, fyrst
við framkvæmdir og uppbyggingu
en síðar við rekstur eldisins.
Albert Albertsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri HS Orku, segir við
Morgunblaðið
að framkvæmdir
hefjist hið fyrsta.
„Um leið og öll
t i lski l in leyf i
eru komin þá
byrja þeir fram-
kvæmdir. Þetta
verður byggt upp í áföngum og árið
2017 verður þetta komið í fullan
rekstur ef allt gengur upp.“
Framan af er áætlað að framleiðsl-
an verði um 500 tonn á ári en verði
orðin 2.000 tonn árlega frá og með
2017.
Aðspurður hve mörg störf fiskeld-
ið muni skapa segist Albert ekki
hafa það á takteinum en þau muni
hlaupa á tugum. „Þannig að þetta
er tvímælalaust jákvætt fyrir svæð-
ið hér.“
Ný fiskeldisverksmiðja
mun rísa á Suðurnesjum
Elegans Hársnyrtistofan á Nesvöllum -
Reykjanesbæ - S. 421 4848
Ljósanætur-
tiLboð
Þú kaupir Masterpiece
hárspray & Queen
For A Day blásturs
efni og færð frítt
með Manipulator
mótunarefni.
HÁTÍÐARTÓNLEIKAR
Á LJÓSANÓT T er aðalstyrktaraðili tónleikanna
G
ra
fís
k
hö
nn
un
@
Br
ag
i E
In
ar
ss
on
2
01
1
Valdimar
Guðmundsson
Jana María
Guðmundsdóttir
Bríet Sunna
Valdimarsdóttir
Fríða Dís
Guðmundsdóttir
Guðmundur
Hermannsson
Birna
Rúnarsdóttir
Sveinn
Sveinsson
Elmar Þór
Hauksson
Arnar Dór
Hannesson
Guðmundur
Sigurðsson
Miðasala á midi.is
Miðaverð kr. 2.500
Tónlistarstjórn:
Arnór B. Vilbergsson
Handrit og framkvæmdastjórn:
Kristján Jóhannsson
augl_vf_14x20.pdf 1 23.8.2011 16:58Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Sand-
gerði lögðu fyrir síðasta fund
bæjarráðs að atvinnu- og hafn-
arráði verði skipt upp í tvö ráð. Í
bókun Guðmundar Skúlasonar,
fulltrúa B-lista, segir:
„Bæjarfulltrúar B- og D-lista eru
ekki sammála þeirri ákvörðun
meirihluta bæjarstjórnar að at-
vinnu- og hafnarráð sé ein nefnd.
Rúmt ár er síðan ráðin voru
sameinuð og hafa fundargerðir
nánast eingöngu fjallað um hafn-
armál, enda málefni hafnarinnar
mjög viðamikil og eðlilegt að sá
málaflokkur sé undir nefnd.
Atvinnuástand í Sandgerði er
grafalvarlegt. Atvinnuleysi er
komið yfir 15% og slæmar horfur
í atvinnumálum. Í ljósi þessarar
stöðu teljum við bæjarfulltrúar
B- og D-lista nauðsynlegt að sett
verði á laggirnar atvinnuráð sem
mótar atvinnustefnu fyrir bæj-
arfélagið. Leita þarf allra leiða til
að fjölga atvinnutækifærum og
nýta sem best það sem fyrir er.
Hólmfríður Skarphéðinsdótt-
ir, sign. Guðmundur Skúlason,
sign.“
Ólafur Þór Ólafsson fulltrúi S-
lista, sem fer með meirihlutann í
Sandgerði, lagði fram eftirfarandi
bókun:
„S-listinn tekur undir áhyggjur
B- og D-lista af stöðu atvinnu-
mála í Sandgerðisbæ og þá skoð-
un að þar sé verk að vinna. Meðal
þess sem þarf að gera er að móta
atvinnustefnu fyrir bæjarfélagið
þar sem m.a. þarf að taka tillit til
aukins samstarfs sveitarfélaga á
Suðurnesjum í atvinnumálum.
Leiðin að auknum krafti í avinnu-
málum felst hins vegar ekki í því
að skipta upp atvinnu- og hafn-
arráði og auka þar með kostnað
við stjórnsýslu Sandgerðisbæjar
og því greiða fulltrúar S-listans
atkvæði gegn tillögunni.
Ólafur Þór Ólafsson, sign.
Sigursveinn B. Jónsson, sign.“
Tillaga B- og D-lista var felld með
tveimur atkvæðum S-lista gegn
einu atkvæði B-lista.
Segja atvinnuástand í
Sandgerði grafalvarlegt