Víkurfréttir - 25.08.2011, Qupperneq 11
11VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 25. ÁgÚST 2011
30%
afsláttur
af öllum
vörum
LJÓSANÓTT
Fríar sjónmælingar
Opið:
1. september frá kl. 09 til 18
2. september frá kl. 09 til 18
3. september frá kl. 11 til 18
1. TiL 3. SepTember
SÍMI 421 3811 –
Guðbjörg Eyjólfsdóttir formaður
umhverfisnefndar tilkynnti verð-
launin og Róbert Ragnarsson bæj-
arstjóri sá um að afhenda þau. Í
kynningu sinni fór Guðbjörg yfir
stofnun Skógræktarfélags Grinda-
víkur í tilefni þess að nú er ár skóga.
Fyrsta plantan í Selskógi var gróð-
ursett 29. maí 1957 og var það 37
sm há birkiplanta en alls voru eitt
þúsund plöntur gróðursettar þenn-
an merka dag í Selskógi. Í nóvem-
ber sama ár var Skógræktarfélag
Grindavíkur formlega stofnað að
tilstuðlan Ingibjargar Jónsdóttur
formanns Kvenfélags Grindavíkur.
Síðan þá hefur vaxið myndarlegur
skógur.
Jóhannes Vilbergsson, núver-
andi formaður Skógræktarfélags
Grindavíkur, hélt erindi við afhend-
inguna en félagið var endurstofnað
2006 eftir að hafa legið í dvala um
all nokkurt skeið. Meðlimir félags-
ins í dag eru um 40. Jóhannes fór
yfir verkefni félagsins síðustu árin
en búið er að planta rúmlega 20
þúsund plöntum síðustu fimm
árin, aðallega í norður- og suður-
hlíð Þorbjarnar. Þar má nefna
tegundir eins og sitkagreni, aspir,
reynitré, öl, birki, runna og ým-
islegt fleira. Nánar verður sagt frá
þessu erindi í Járngerði, fréttabréfi
Grindavíkurbæjar, sem kemur út í
næsta mánuði.
Dagný Hrönn Pétursdóttir fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins, flutti
erindi um umhverfisstefnu Bláa
lónsins sem hefur að leiðarljósi að
vera í fararbroddi á því sviði.
Umhverfisverðlaun Grindavík-
urbæjar 2011 komu í hlut:
Verðlaun fyrir fallegan og gró-
inn garð: Staðarhraun 29. - Ásrún
Helga Kristinsdóttir og Reynir
Ólafur Þráinsson.
Verðlaun fyrir fallegan og gró-
inn garð: Suðurvör 3. - Guðfinna
Bogadóttir.
Verðlaun fyrir vel heppnað við-
hald á gömlu húsi: Ásabraut 1, Ás-
byrgi. - Guðmundur Sverrir Ólafs-
son og Guðmunda Jónsdóttir
Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyr-
irtækið: Bláa lónið.
Þá flutti Óskar Vignisson nokkur
lög við athöfnina við góðar undir-
tektir.
Umhverfisverðlaun Grinda-víkurbæjar voru afhent
síðdegis á þriðjudag í Kvikunni,
menningar- og auðlindahúsi. Fern
verðlaun voru afhent en Stað-
arhraun 29 og Suðurvör 3 fengu
verðlaun fyrir fallegustu garðana,
Ásabraut 1 fyrir vel heppnað við-
hald á gömlu húsi og Bláa lónið
fékk verðlaun sem snyrtilegasta
fyrirtækið. Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Suðurvör 3. - Guðfinna Bogadóttir.
Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Staðarhraun 29. - Ásrún Helga
Kristinsdóttir og Reynir Ólafur Þráinsson.
Verðlaun fyrir vel heppnað viðhald á gömlu húsi: Ásabraut 1, Ásbyrgi. -
Guðmundur Sverrir Ólafsson og Guðmunda Jónsdóttir
Verðlauna snyrtimennsku
í Grindavíkurbæ
STAPAFELLNÝT
T Í
Hágæða hunda- og kattafóður
Tilboðið gildir til loka september
Kynningartilboð 15 kg. fóðurpoki 6
.950 kr.
Hágæða hráefni - Ljúffengt bragð -
Fallegur feldur - Betri heilsa
STAPAFELL Hafnargötu 50, Keflavík, sími 421-2300