Víkurfréttir - 25.08.2011, Page 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 25. ÁgÚST 2011
Nánar á husa.is
Allar upplýsingar birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana
Nú býður Húsasmiðjan upp á Kauplán; vaxtalausa
greiðsludreifingu sem gildir fyrir allar vörur í Húsasmiðjunni.
Vaxtalaus greiðsludreifing í allt að 12 mánuði
Engir vextir
Aðeins 3% lántökugjald og 325 kr. greiðslugjald af hverri borgun
Nánari upplýsingar um Kauplán á www.husa.is
www.husa.is
Þvottavél
EWF106410W
1000 snúninga
85x60x60 cm,
6 kg.
1805650
5 ára ábyrgð
LÆGSTALÁGA VERÐ HÚSASMIÐJUNNAR
69.900
Þurrkari
EDE77550W
Með barka og
rakaskynjara.
1805423
82.295
5 ára ábyrgð
Plastparket KAINDL
8mm, 3ja stafa eik.
147053
Höggborvél Skil 6280
550W, 13 mm
flýtipatróna.
5158850
9.995
110 fylgihlutir
Nýtt!
2.629kr/m2
Hærra slitþo
l
Vegg-/gólflísar
hvítar, mattar.
9.7x29.5 cm.
8600665
2.999kr/m2
Viðarvörn Gori 44+
5 ltr.
7042527
6.995
Frábært verð
Ákvörðunin um að velja á milli fótbolta og körfubolta hefur
nagað Andra í nokkurn tíma en
flestallir hafi ráðlagt honum að
velja fótboltann þar eru mun meiri
möguleikar á að ná langt. „Mér
finnst samt alveg jafn skemmtilegt
í báðum íþróttunum ennþá, en ef
maður ætlar sér að ná lengra verður
maður að einbeita sér að einni
íþrótt.“ Hann segist hvergi bang-
inn við að fara til Bandaríkjanna
svo ungur að árum og segir að þar
muni sennilega bíða hans ævintýri
og dýrmæt reynsla enda þurfi hann
algerlega að standa á eigin fótum.
Andri er sonur Freys Sverrissonar
sem átti farsælan knattspyrnuferil og
hann er þá einnig frændi Sverris Þórs
Sverrissonar sem allan sinn feril var í
eldlínunni bæði í körfubolta og fót-
bolta. „Sverrir ráðlagði mér að velja
annað hvort, hann sér eftir því að
hafa ekki gert það fyrr sjálfur.“ Andri
segir enga pressu hafa verið frá pabba
sínum að velja fótboltann en hann
styðji hann sama hvað hann tekur sér
fyrir hendur.
Andri segir sumarið hjá Njarðvík-
ingum hafa verið frábært. „Hér er
klassa hópur og stemningin er góð
í liðinu og ég er nokkuð sáttur með
okkar frammistöðu, þrátt fyrir að hún
hefði mátt vera betri. Við höfum ekki
enn unnið tvo leiki í röð og það er
pressa á okkur að vinna næsta leik,“
segir Andri en 2. deildin hefur verið
óvenju jöfn þetta sumarið. „Maður
hefur varla séð annað eins, eða heyrt
af svona jafnri deildarkeppni.“ Andri
segist ekki vera eiginlegur framherji
heldur spili hann í nánast öllum stöð-
unum í sóknarleiknum þar sem hans
krafta er óskað, þó líki honum best að
vera framarlega á miðjunni þar sem
hann fái að hlaupa í fríu svæðin og
skapa færi fyrir liðsfélagana.
Bara plús að skora
Í sumar hefur Andri sem verður 19
ára síðar í ágúst skorað 14 mörk í 18
leikjum og er næstmarkahæstur í
deildinni en hann hafði ekki komið
mikið við sögu hjá meistaraflokki
fyrir þetta tímabil. Hann var tekinn
inn í meistaraflokk á miðju tímabili
í fyrra og fékk nokkur tækifæri það
sumarið. Hann hefur aldrei tekið þátt
í heilu undirbúningstímabili með
fótboltanum því körfuboltinn hefur
enn verið í gangi. Andri fer ekkert í
felur með það að hann hefur háleit
markmið og hann hefur sett stefnuna
á að komast í 21 árs landsliðið. „Það er
mitt fyrsta markmið í fótboltanum,“
segir Andri sem þó hefur leikið með
yngri landsliðum Íslands en hann á að
baki 10 leiki með undir 17 ára lands-
liðinu.
„Á mínum yngri árum skoraði ég
yfirleitt mikið en ég hugsa ekki mikið
út í þetta, það skiptir mestu máli að
við vinnum leiki, bara plús að skora,“
segir Andri og hlær þegar blaðamaður
segir að þetta verði framherjar að
segja þó svo að þeir vilji alltaf skora.
Eins og áður kom fram er Freyr
Sverrisson faðir Andra en Freyr hefur
getið sér gott orð sem þjálfari og þá
sérstaklega í yngri flokkum þar sem
hann hefur náð frábærum árangri.
„Hann mætir á flesta leiki hjá mér og
ég tala við hann eftir leiki og reyni að
fá ráð hjá honum. Hann hefur hjálpað
mér mikið og það er gott að hafa ein-
hvern eins og hann til að tala við.
Andri var einmitt hluti af fyrsta liði
Njarðvíkinga sem vann Shellmótið
fræga í Vestmannaeyjum þegar faðir
hans stýrði liðinu til sigurs. „Það er
hugsanlega eftirminnilegasta mót
sem ég hef spilað á. Í úrslitaleiknum
sem við unnum 3-1 gegn FH skoraði
ég tvö mörk og pabbi skipti mér útaf
og ég gleymi því aldrei þegar ég hljóp
af velli og faðmaði hann.“ Njarðvík-
ingar sigruðu svo mótið aftur að ári
en sá árangur er einstakur miðað við
stærð bæjarins.
Njarðvíkingar eiga góða möguleika á
því að tryggja sér sæti í 1. deild að ári
og Andri segist ekki hafa trú á öðru en
að það takist og að liðið vinni hrein-
lega alla þá leiki sem framundan eru.
Hættur í körfunni og raðar inn mörkunum
„Ég valdi núna fyrir sumarið og hætti í körfunni eftir að hafa unnið bæði bikarkeppnina og Íslandsmeistaratitilinn með
körfunni og ætla bara að einbeita mér að fótboltanum framvegis,“ segir Andri Fannar Freysson sem hefur blómstrað með
Njarðvíkingum í 2. deildinni í sumar. Hann segir stefnuna svo setta á það að komast í efstu deild háskólafótboltans í Banda-
ríkjunum en hann er byrjaður að þreifa fyrir sér í þeim efnum. Andri segir það vissulega kitla að vera hérna heima en hann
hafi alltaf stefnt á það að komast til Bandaríkjanna og ætlað sér að fá menntun samhliða knattspyrnunni.
vf.is
›› Andri Fannar Freysson í sportspjalli Víkurfrétta: