Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.09.2011, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 15.09.2011, Blaðsíða 8
8 FIMMTudagurInn 15. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR Gistiheimilið 1x6 með sál Þetta ár lítur vel út og þá sér-staklega sumarið,“ segir Daníel Hjörtur Sigmundsson eigandi gistiheimilisins 1x6 við Vesturgötu í Keflavík. Gistiheim- ilið hefur hlotið mikla athygli víða fyrir frumlegar og fallegar innréttingar og skúlptúra. „Við ætlum svo að reyna að setja saman einhvern pakka fyrir veturinn og trekkja Íslendingana að því það eru útlendingar sem heimsækja okkur í nánast 100% tilvika,“ bætir Daníel við. Daníel Sigmundsson er heilinn á bak við Gistihúsið 1x6 við Vesturgötu í Keflavík þar sem húsgögn og jafnvel loft- ljós eru skorin út úr við sem að mestu leyti er endurnýttur eins og annað sem notast er við á gistiheimilinu, s.s viður úr gömlum rafmagnskeflum, brotnum flísum og málningu sem var að einhverju leyti gölluð. Linda Mjöll Stefánsdóttir unnusta Daníels stóð í herlegheitunum með honum og saman hafa þau skapað sannkallaðan ævintýraheim með ímyndunaraflið og handlagni að vopni. Samgöngur mættu vera öflugri á svæðinu Daníel var atvinnulaus þegar hann hófst handa við að breyta húsi sínu í gistiheimili. „Í kjölfarið á hruninu sat ég uppi með húsið sem ég hafði hugsað mér að selja svo eitthvað varð að gera. Þetta er gott dæmi um það hvað er hægt að gera þrátt fyrir neikvæða stöðu, að maður geti tekið aðstæður og snúið þeim sér í hag. Mér finnst að yfirvöld mættu gera betur og styðja við einstaklingsframtak þrátt fyrir að mikið hafi verið gert í þeim málum. Hér er ég t.d. að skapa eitt starf sem kostar nánast ekki neitt en svo kostar eitt starf í álveri kannski einhverja tugi milljóna, það finnst mér ekkert rosalega spennandi,“ segir Daníel. Með því að gera eitthvað einstakt þá hefur maður upp á eitt- hvað öðruvísi að bjóða. Það hafa komið hingað gestir sem ætluðu alls ekkert að gista í Keflavík, en þau rákust á okkur á netinu og ákváðu að gista hérna eina nótt bara til þess eins að gista hér. Það er töluvert yfirvald að trekkja fólk hingað niður til Kefla- víkur frá flugvellinum. Það þyrfti ekki mikið meira en kannski skilti við þjóðveginn sem á stæði „Visit Keflavík“ eða einfaldlega myndir frá því sem Reykjanesbær hefur upp á að bjóða. Það tel ég að myndi án efa hafa mikil áhrif. Svo er líka pínlegt fyrir mig að segja við ferðamennina að það fari bara þrjár rútur á dag í Bláa lónið í þrjá mánuði á ári. Samgöngur mættu vera öflugri hérna. Yfir sumartím- ann eru þrjár rútur frá flugvellinum hingað niður til Keflavíkur en bara fyrir hádegi þess utan er ekkert í boði. Það getur því verið dýrara fyrir ferðamennina að fara til Keflavíkur en til Reykja- víkur. Það er dýrara að taka leigubíl hingað niðureftir en að taka rútuna til Reykjavíkur. Mér finnst það skrýtið að rútan skuli ekki geta haft eitt stopp hérna í Reykjanesbæ. Ferðamenn segja Reykjanesbæ karakterlausan Hvernig finnst þér ferðamenn upplifa Reykjanesbæ? „Þeir hafa alveg látið hafa eftir sér að þetta sé karakterlaus bær, ekki það að ég sé sammála því en það virðist vanta eitthvað sem trekkir fólk að. Það litla sem við höfum ættum við líka að hafa opið, Skessuhellir lokar t.d. klukkan 5 og það er Securitas sem lokar þessu en þeir geta alveg eins lokað þessu klukkan 10. Það ætti ekki að skipta þá máli. Orkuverið Jörð

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.