Víkurfréttir - 15.09.2011, Blaðsíða 11
11VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 15. sepTeMber 2011
HEIMILISTÆKI • FLÍSAR •PARKET • LJÓS •
VERKFÆRI • FATNAÐUR • BLÓM • GJAFAVARA
• BÚSÁHÖLD •MÁLNING • BLÖNDUNARTÆKI OG
MARGT FLEIRA!
ÚTSALA
ÁRSINS!
HEFST FIMMTUDAGINN
15. SEPTEMBER
ALLTAF NÓG AÐ GERA Í KAFFINU OG NÚ VANTAR OKKUR LIÐSMENN
ATVINNA
AÐ BRENNA KAFFI ER LIST
LAUS ERU STÖRF AÐSTOÐARBRENNSLUMEISTARA KAFFITÁRS
LAGER OG ÚTKEYRSLA
Upplýsingar veitir Björn Kjartansson í síma 696 0737 eða á björn@katar.is
Umsóknarfrestur er til 26. september 2011
Katár Stapabraut 7, 260 Reykjanesbær, sími 4202700
Upplýsingar veitir framleiðslustjóri Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir í síma 664-8851 eða á
kristbjörg@katar.is
ATVINNA
Íslandsbleikja Grindavík
Íslandsbleikja Grindavík óskar eftir starfsfólki.
Um er að ræða framtíðarstörf.
Upplýsingar gefur
Bergþóra í síma 696-8781
Ágóði af aukasýningu Með blik í auga, sem haldin var í
Andrews-leikhúsinu á Ásbrú sl.
föstudagskvöld, verður afhent-
ur við guðsþjónustu í Keflavík-
urkirkju nk. sunnudag kl. 11:00.
Mun ágóðinn renna í Velferð-
arsjóð Suðurnesja.
Sungin verða lög úr sýningunni við
athöfnina. Dagurinn er helgaður
kærleiksþjónustu við kirkjur lands-
ins. Messuþjónar lesa texta og sjálf-
boðaliðar bera fram súpu að messu
lokinni gegn vægu gjaldi, en ágóð-
inn rennur í barnastarf kirkjunnar.
Afhenda ágóða af hátíðar
tónleikum í Velferðarsjóð
Mikill og almennur áhugi virðist vera á fuglaskoðun. Reykjanes er eitt vinsælasta svæðið á landinu fyrir fuglaáhugafólk. Þess
vegna hefur verið ákveðið að stofna Félag fuglaskoðara á Suður-
nesjum. Ætlunin er að halda reglulega fundi að vetrarlagi og fá
sérfræðinga til að segja frá fuglum og ýmsu tengdu þeim. Náttúru-
fræðistofnun Íslands hefur fallist á að senda reglulega til félagsins
sérfræðinga sína til skrafs og ráðagerðar. Þá er í bígerð að koma
upp fuglaskoðunarhúsum á „heitum“ stöðum fyrir fuglalíf, heyra af
ljósmyndun fugla, taka þátt í árlegum fuglatalningardegi. Þá verða
skipulagðar fuglaskoðunarferðir um svæðið þannig að almenningur
geti lært að þekkja fugla á þeim fjölmörgu stöðum á Suðurnesjum
þar sem sjá má fjölbreytt fuglalíf.
Stofnfundur félagsins verður í húsakynnum Keilis á Ásbrú fimmtudag-
inn 15. september nk. kl. 20. Áhugafólk um fugla er hvatt til að mæta.
Gestur fundarins verður dr. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúru-
fræðistofnunar Íslands. Upplýsingar og ábendingar má senda á hjalm-
ar@keilir.net
Félag um fuglaskoðun á Suðurnesjum
Nýtt starfsár Karlakórs Keflavíkur hefst með æfingu mánudaginn 19. sept.n.k. Þannig hef-
ur það verið síðustu næstum 60 árin og segir sína
sögu um þennan félagskap sem stöðugt gengur í
endurnýjun lífdaga.
Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson og er
þetta 7unda starfsár hans.
Í vetur verður ráðist í ýmis verkefni, en eitt það fyrsta
verður undirbúningur aðventutónleika í desember
og svo meginverkefnið sem eru æfingar fyrir vor-
tónleika.
Fjölmörg önnur verkefni eru á dagskrá kórsins á
hverjum vetri og líkur vetrarstarfinu yfirleitt með
vorferð þar sem kórfélagar fara ásamt mökum sín-
um í helgarferð út á land og þá er blandað saman
tónleikahaldi og annarri skemmtun.
Sú hefð hefur skapast síðustu árin að bjóða nýliða
velkomna í kórinn með því að bjóða þeim til veislu
þar sem boðið er upp á mat og drykk, ómældan söng
og aðra skemmtun.
Þeir sem mætt hafa í þetta hóf hafa mar gir hverjir
orðið innmúraðir kórfélagar í kjölfarið. Nú er verið
að undirbúa hófið.
Sért þú sem ert að lesa karlkyns, hafir gaman af að
syngja og hafir áhuga á að starfa í skemmtilegum
félagsskap, þá átt þú heima hjá okkur.
Vertu ófeiminn að hafa samband við Guðjón í síma
6903079 eða Pál í síma 6996869.
Vetrarstarf Karlakórsins að hefjast
›› Söngur og gleði: