Víkurfréttir - 15.09.2011, Qupperneq 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 15. sepTeMber 2011
Grindvíkingar tóku á móti Stjörnunni
í Pe p s i - d e i l d k a r l a
í k n a t t s p y r n u á
heimavelli sínum
o g n á ð u í s t i g
þ e g a r M a g n ú s
B j ö r g v i n s s o n
j a f n a ð i m e t i n
í b l á l o k i n e n
lokatölur urðu
2-2.
Jóhann L axda l
skoraði á 6. mínútu
og kom gestunum
y f i r e n S c o t t
R am s ay j a f n a ð i
m e ð g l æ s i l e g u
marki strax á 13.
mínútu eftir góðan
u n d i r b ú n i n g Ó l a
Baldurs Bjarnasonar.
Rétt fyrir hálfleik var svo
dæmt víti á Grindvíkinga þegar
boltinn virtist fara í hendina á
Scott Ramsay en Halldór Orri
Björnsson skoraði af öryggi úr
spyrnunni. Rétt fyrir leikslok
jafnaði svo Magnús Björgvinsson
þegar hann laumaði boltanum
framhjá Ingvari Jónssyni í marki
Stjörnunnar eftir að hafa fengið
góða stungusendingu úr vörn
Grindvíkinga. Grindvíkingar voru
svekktir í leikslok enda léku þeir
afar vel í leiknum.
„Mér fannst við vera mun betri í
fyrri hálfleik og í raun var þetta
einn af betri leikjum okkar í sumar.
Við lögðum upp með að taka öll
stigin úr þessum leik. Þegar við
náðum að jafna var það viss léttir
en við vorum óánægðir að fá ekki
meira út úr þessum leik því við
lékum það vel,“ sagði Óli Baldur
eftir leikinn. Grind-víkingar eiga
e r f i ð a l e i k i
f ramundan
þar sem þeir
leika gegn
þ r e m u r
efstu liðum
dei ldar innar
og gegn Frömurum sem eru að
berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
„Mér líst vel á þetta, við höfum
ekki tapað í 6 leikjum í röð, þó
svo að sigrarnir hafi örlítið staðið
á sér og jafnteflin orðin mörg.
Við munum leggja allt í sölurnar
í næstu leikjum og klára mótið
með sæmd. Það væri svo óskandi
að við færum taplausir í gegnum
seinni hluta mótsins,“ segir Óli
léttur í bragði.
Þegar Óli er spurður um hans
persónulega gengi í sumar þá er
hann nokkuð sáttur við seinni
hluta móts því hann lék ekki mikið
framan af sumri. „Ég kem í raun
inn í þetta á fullu eftir hálfnað mót
og var ekki búinn að vera að fá þau
tækifæri sem mér fannst ég eiga
skilið.“ Í síðasta félagsskiptaglugga
hugsaði Óli Baldur sér til hreyfings
ef ekki yrði breyting á. „Ég ræddi
við stjórnina og tjáði þeim það að
ég væri á þeim aldri að ég þyrfti
að fá að spila og ég er í hörku
formi. Stjórnin studdi mig og ég
fékk loks að byrja inná og ákvað
að leggja mig allan fram, eftir það
hef ég verið í liðinu og nú mega
mörkin bara fara að detta hjá mér.
Ég þarf að vera aðeins yfirvegaðri í
kringum mark andstæðinganna,“
sagði Óli Baldur Bjarnason
kantmaður Grindvíkinga.
Keflavík vann mikilvægan ú t i s i g u r á Va l , 1 : 0 , á
Valsvel l inum í Pepsi-dei ld
karla í knattspyrnu, en sigurinn
lyftir Keflavík aðeins upp úr
botnbaráttunni en þeir sitja nú
í 7. sæti og eiga leik til góða í
þokkabót.
Það var Ísak Örn Þórðarson
sem skoraði eina mark leiksins
á 11. mínútu en Keflvíkingar
áttu reyndar möguleika á því að
komast tveimur mörkum yfir á 20.
mínútu en Haraldur Björnsson
varði þá fremur slaka vítaspyrnu
Guðmundar Steinarssonar.
„Það er frábært að spila sinn fyrsta
leik í úrvalsdeild og skora,“ segir
Ísak Örn Þórðarson sem var að
leika sinn fyrsta leik í efstu deild.
„Ég bjóst nú aldrei við því að vera í
byrjunarliðinu í mínum fyrsta leik
í Pepsi-deildinni en mér gekk afar
vel í æfingarleik gegn Stjörnunni í
landsleikjahléinu og það er kannski
ástæðan fyrir því að ég fékk tækifæri
gegn Val,“ en Ísak skoraði 4 mörk í
umræddum leik sem endaði 7-5
fyrir Keflavíkingum.
Ísak segir samkeppnina vera mikla
í liðinu og að þetta sé stór og góður
hópur af leikmönnum. Ísak hefur
verið að jafna sig af meiðslum
undanfarið en áður hafði hann
verið í láni hjá 1. deildarliði Hauka.
„Ég skaddaði liðbönd í ökkla og
liðþófa með Haukum og var frá
keppni í u.þ.b. mánuð. Það kom
mér því töluvert á óvart að fá
sénsinn gegn Valsmönnum en ég
er allur að koma til eftir meiðslin.
Ég vonast svo að sjálfsögðu til þess
að vera áfram í liðinu í næsta leik,“
segir Ísak að lokum en Keflvíkingar
eiga leik gegn Íslandsmeisturum
Breiðabliks í kvöld.
vf.is
Tekst Njarðvík
að komast
upp um deild?
Íslandsmótið 2. deild,
síðasti leikur sumarsins
Njarðtaksvöllurinn,
laugardaginn
17. sept. kl. 14:00
Allir á völlinn!
„Frábært að
skora í fyrsta leik“