Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 7
EFNISYFIRLIT
8. TBL. 3. ÁRG. DESEMBER 1987
9 INNLENT
•Sigrún Stefánsdóttir sjónvarpsfréttamaöur í forsíöuviötali. • Yu Chong Hua blakþjálfari í Neskaup-
stað. • Tryggvi Emilsson rithöfundur 85 ára.
23 ERLENT
•Stjórnmálin í Finnlandi. • Barnabarsmíöar í Svíþjóö. • Dagur í lífi Derricks; ÞJÓÐLÍF fylgist með
upptökum.
33 LISTIR
•Uppfærsla Þjóöleikhússins á „Vesalingunum" og Leikfélags Reykjavíkur á „Síldinni". • Lúkar eftir
Guðmund Steinsson í Belgíu. • Sögur eftir unga listakonu.
Frá ritstjóm
ÞVÍ ER STUNDUM haldið fram að fjölmiðl-
arnir endurspegli ástand þjóðlífsins í land-
inu. Taumlítið kaupæði og verslunarhyggja
birtist okkur á margslunginn hátt í innihaldi
miðlanna og allri framsetningu. Stéttamis-
rétti og kynjamismunun verður að viðtekinni
venju í látlausu flæði afþreyingar, skemmti-
efnis og snöggsoðinna upplýsinga - þetta
kallast að þjóna fólkinu, bera því þann boð-
skap sem það sjálft vill fá.
Því má þó ekki gleyma að sjálft þjóðlífið
dunar á allan máta eftir forskrift fjölmiðl-
anna. Fáar valdastofnanir eru áhrifaríkari og
það er ekki á valdi neinna annarra en fjöl-
miðlamanna sjálfra að stjórna efni sinna
miðla, brjótast inn á nýjar og málefnalegri
brautir og benda hvarvetna á það sem miður
fer.
Með mikilli ánægju birtir ÞJÓÐLÍF nú
forsíðuviðtal við einhvem reyndasta sjón-
varpsmann landsins, Sigrúnu Stefánsdóttur
fyrrverandi fréttamann. Sigrún er nýbakað-
ur doktor í fjölmiðlafræði frá bandarískum
háskóla og það er eftirtektarverð sú gagnrýni
sem Sigrún beinir að þróun íslensku fjöl-
miðlanna og þeirri vaxandi sölumennsku
sem einkennir hana. Sigrún birtir okkur líka
glænýjar niðurstöður rannsóknar sem hún
hefur gert á stöðu kvenna í íslenskum sjón-
varpsfréttum frá upphafi. Þar kemur glöggt
fram hve misrétti kynjanna endurspeglast
berlega í fréttaviðtölum sjónvarpsins. Sigrún
ræðir þessi mál á einlægan og málefnalegan
máta.
ÞJÓÐLÍF er blað í hröðum vexti og okkur
er það líka ánægjuefni að greina frá nýjum
starfsmanni á ritstjóm blaðsins. Um þessar
mundir er Óskar Guðmundsson, blaða-
maður, að hefja störf sem ritstjóri
ÞJÓÐLÍFS. Óskar er gamalreyndur í faginu
og hefur m.a. verið þingfréttaritari Þjóðvilj-
ans og unnið á Flelgarpóstinum. Við bjóðum
Óskar velkominn til starfa og væntum góðs
af honum í framtíðinni.
43BÖRN
•Bergþóra Gísladóttir fræðslustjóri skrifar um uppeldi á íslandi.
44 ATVINNULÍF
•Fátt er svo með öllu illt... Kreppan og Bretar.
47 ÍÞRÓTTIR
•Rætt við Ingibjörgu Amardóttur, 15 ára sunddrottningu.
50 VÍSINDI
•Líftæknin og möguleikar hennar í læknavísindum. Lyfið tPA og blóðtappi.
55 FERÐALÖG
•ÞJÓÐLÍF bregður sér til verslunarborgarinnar Glasgow.
58 FÓLK
•Sagt frá nýstárlegu kúluhúsi nýreistu á ísafirði. • Á skíðum í Saharaeyðimörkinni.
60 BÍLAR
•Ásgeir Sigurgestsson reynsluekur Opel Omega.
62 KROSSGÁTAN
BÓKAKYNNING
•Síðari hluti veglegrar bókakynningar ÞJÓÐLÍFS.
Útgefandi: Félagsútgáfan h.f. Vesturgötu 10, box 1752, 121 Reykjavík, sími 621880. Stjórn Félagsút-
gáfunnar: Svanur Kristjánsson (formaður), Bjöm Jónasson (varaformaður), Ásgeir Sigurgestsson, Jóhann
Antonsson, Pétur Reimarsson. Varamenn: Ámi Sigurjónsson, Brynjar Guðmundsson. Framkvæmda-
Stjóri: Snorri Styrkársson. Ritstjórar Þjóðlífs: Auður Styrkársdóttir, Óskar Guðmundsson. Ritstjórnar-
fulltrúi: Ómar Friðriksson. Erlendir fréttaritarar: Arthúr Björgvin Bollason(Múnchen)Ásgeir Friðgeirs-
son (London), Einar Karl Haraldsson (Stokkhólmi), Guðrún Helga Sigurðardóttir (Finnland), Ingólfur V.
Gíslason (Lundi), Jón Ásgeir Sigurðsson (New Haven), Kristófer Már Kristinsson (Brússell), Ragnar
Baldursson (Tokyo). Innlendir fréttaritarar: Jóhannes Siguijónsson (Húsavík), Páll Ásgeirsson (ísafjörð-
ur), Smári Geirsson (Neskaupstaður), Sveinn Helgason (Selfoss). Útbreiðsiu- og auglýsingastjóri:
Guðlaug B. Guðjónsdóttir. Starfsmenn auglýsingadeildar: Bergþóra Ámadóttir, Freyr Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: Birgitta Jónsdóttir. Skeyting: Prentlist. Prentun og bókband: Fijáls fjölmiðlun.
Áskriftarsími: 91-621880. Auglýsingasímar: 26450 og 28149.
7