Víkurfréttir - 22.01.2009, Qupperneq 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 22. JANÚAR 2009 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Mik ið um dýrð ir í 50 ára af mæli
Stang veiði fé lags Kefla vík ur
Nýr erlendur leikmaður körfuknattleiksliðs Njarðvíkur, Kevin
Jolley, sem kom til landsins sl. laugardag er farinn aftur til
Portúgals, en þar lék hann síðast. Ekki fékkst leikheimild fyrir
kraftframherjann sem átti að styrkja lið UMFN.
Sigurður H. Ólafsson, formaður Körfuknattleiksdeildar UMFN
segir í viðtali við karfan.is að þolinmæði þeirra væri á þrotum
og væri leikmaðurinn á heimleið. Hann hefði ekki fengið sig
lausan frá liði sínu í Portúgal þar sem hann þurfti að kaupa upp
samninginn sem hann var með við liðið. Sigurður sagði að það
hefði verið tekin áhætta í þessum málum, að keyra þetta í gegn
með hraði en það hefði síðan ekki gengið. Njarðvík myndi þó ekki
bera neinn kostnað af þessu brölti.
Sigurður sagði óvíst hvort reynt yrði að fá annan leikmann en liðið
væri mannfátt og því væri aldrei að vita hvað gerðist, ef eitthvað
dytti inn á borðið á góðum kjörum.
Keflavík ætlar ekki að fá Kana
Vf.is greindi frá áhuga Keflvíkinga
á að styrkja lið sitt með tilvitnun
í v iðta l v ið stjórnarmann í
körfu knattleiksdeildinni. Það
vakti nokkra athygli en þar
sagði hann að það væri þeirra
mat að ekki væri nóg að bæta
við tveimur leikmönnum til
að eiga raunhæfa möguleika
á Íslandsmeistaratitlinum og
vonast væri til að stúlkurnar
myndu standa sig í titilvörninni.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
karlaliðsins segir í viðtali við
karfan.is að þeir væru ánægðir
með hópinn sem þeir hefðu og
það væri ekki áhugi á að bæta við
leikmanni.
Þeir sem sáu Keflvíkinga tapa fyrir KR í Keflavík sl. föstudag telja
að ekki þurfi að fá nema einn sterkan leikmann til liðsins til að eiga
góða möguleika á titilvörn. En samkvæmt ummælum Sigurðar er
ljóst að málið virðist komið á ís þó svo margir áhangendur liðsins
myndu vilja sjá styrkingu þar sem bekkurinn hjá liðinu er ekki
að skila miklu um þessar mundir. Það sást best í síðustu tveimur
leikjum, síðast á móti ÍR en þar skoruðu bekkjarbræður ekkert stig.
Keflvíkingar unnu góðan sigur á
ÍR í Seljaskóla sl. sunnudag 81-96.
Þröstur Jóhannsson og Hörður
Axel Vilhjálmsson skoruðu 21
stig hvor, Jón Norðdal var með
20 stig og 12 fráköst. Sigurður
Þorsteinsson var með 19 stig og
17 fráköst og Gunnar Einarsson
15 stig. Sem sagt, fimm leikmenn
með öll stig Keflavíkur. Bekkurinn
með núll stig.
Njarðvík og Grindavík unnu
Njarðvíkingar unnu Stjörnumenn Teits Örlygssonar í Njarðvík
sl. sunnudagskvöld nokkuð örugglega 90-76 í Iceland Express
deildinni í körfubolta.
Logi Gunnarsson skoraði 23 stig fyrir heimamenn. Magnús
Gunnarsson skoraði mikilvægar körfur í leiknum, alls 18 stig
og Friðrik Stefánsson (17 stig), sá þriðji í aðal tríói UMFN,
voru að venju burðarásar liðsins. Þrátt fyrir kraftmikla byrjun
Stjörnumanna dugði það skammt gegn heimamönnum.
Grindvíkingar unnu sannfærandi sigur á heimamönnum á
Sauðárkróki 68-94 og lék Nick Bradford sinn fyrsta leik með
UMFG. Hann hóf leikinn fyrir þá gulklæddu og skilaði góðu
framlagi í leiknum og 13 stigum. Páll Axel Vilbergsson skoraði
mest hjá UMFG eða 19 stig.
Veitingarekstur í
golfskála Golfklúbbs
Suðurnesja er til leigu.
Áhugasamir sendi inn nafn
og nauðsynlegar upplýsingar
á netfangið gs@gs.is
Veitingarekstur í golfskálanum í Leiru
Njarðvíkurstúlkur í 1. deild
Íslandsmótsins í körfubolta
hafa farið á kostum í deildinni
í vetur og sigruðu sl. laugardag
lið Þórs frá Akureyri með
100 stigum gegn 71. Þetta
er félagsmet hjá UMFN í
kvennaflokki. Aldrei áður hefur
kvennalið í meistaraflokki
skorað 100 stig í leik.
Njarðvíkurstúlkur fóru
hamförum í upphafi leiks með
þristasýningu og góðum leik
og leiddu 30-12 eftir fyrsta
leikhluta. Munurinn jókst áfram
og staðan í hálfleik var 64-36.
Í þriðja leikhluta var Dagmar
Traustadóttir í miklu stuði og
skoraði 14 stig og stal mörgum
boltum og breyttist staðan í 90-
50. Norðanstúlkur náðu að laga
stöðuna örlítið í lokaumferðinni
en lokatölur urðu 100-71.
Dagmar skoraði mest 21,
Heiða B. Valdimarsdóttir 18,
Jóhanna Áslaugsdóttir 12,
Sigrún B.Valdimarsdóttir 11
og Ína María Einarsdóttir 9.
Njarðvík er í 3. sæti í 1.
deildinni með 24 stig. Snæfell
er efst með 32 stig og Haukar
B eru í 2. sæti með 28 stig.
Þessi þrjú lið eru í sérflokki.
Njarðvíkurkani kom
og fór – hvað gera
Keflvíkingar?
„Við unnum þær síðast
með einhverjum fjörutíu
stigum og vorum smá stund
að komast í gang. Þrátt
fyrir það var þetta mjög
sannfærandi sigur hjá okkur,“
sagði Birna Valgarðsdóttir
eftir enn einn stórleikinn
í öruggum Keflavíkursigri
á Hamri í Iceland Express
deild kvenna í körfubolta í
Toyota-höllinni í Keflavík á
miðvikudagskvöld í sl. viku.
Lokatölur urðu 95-79.
Birna skoraði 31 stig og Pálína
Gunnlaugsdóttir stóð henni
ekki langt að baki og skoraði
27 stig. Keflavíkurliðið hefur
verið mjög sannfærandi í
undanförnum leikjum og
firnasterkt. Fáir veikleikar en í
síðustu tveimur leikjum hefur
Svava Ósk Stefánsdóttir ekki
leikið sökum meiðsla. Bryndís
Guðmundsdóttir hefur komið
sterk inn eftir hlé og hún
skoraði 15 stig, Ingibjörg
fyrirliði Vilbergsdóttir var
með tíu stig. Birna var í
skýjunum með sigurinn
og frammistöðu liðsins.
- Þú hlýtur að vera sátt þó
svo þið hafið verið lengi í
gang, ef svo má segja?
„Já, það kom okkur líka
aðeins á óvart að Julia
(Demirer) var með Hamri
aftur og það var ljóst að þær
ætluðu ekki að láta okkur
rúlla yfir sig aftur. En þegar
við höfðum aðeins náð áttum,
áttu þær ekki möguleika. Við
erum í stuði og höfum verið
að leika vel í undanförnum
leikjum. Við erum með
mjög sterkt byrjunarlið og
líka góðan bekk. Það getur
hver sem er komið inn á.“
- Ertu sátt við að hafa fengið
Val í Subway-bikarnum?
„Já, það er bara fínt. Við
stefnum á sigur í þeirri
keppni eins og öðrum“.
Grindavíkurstúlkur
töpuðu á útivelli fyrir
Haukastúlkum 83-68.
Þrír leikir voru í deildinni
í gærkvöldi. Grindavík
fékk Snæfell í heimsókn
og Keflavík lék gegn
Valsstúlkum. Sjá nánar á vf.is.
Njarðvíkurstúlkur skoruðu 100 stig
Keflavíkurstúlkur í stuði
Nick Bradford lék síðast
hér á landi með Keflavík
en er nú með UMFG.
Sigurður Þorsteinsson lék
vel gegn KR.
Birna hefur leikið
frábærlega með
Keflavík í vetur.