Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.04.2009, Síða 8

Víkurfréttir - 22.04.2009, Síða 8
8 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Fólk bundið við hjólastóla kemst ekki inn á allar kosn- ingaskrifstofur stjórnmála- flokkanna í Reykjanesbæ. MND félagið á Íslandi kann- aði aðgengi hjólastóla sl. föstudag og var það niður- staða könnunarinnar að full- nægjandi aðgengi var aðeins hjá Frjálslynda flokknum og hjá Samfylkingunni. Það var þó ekki fullkomið þar sem að- staða á salerni var ekki fyrir fatlaða en þeir komust þó inn á salernin í hjólastólunum. Meðfylgjandi er samantekt úr ferðalaginu um Reykjanesbæ. Farið var að kosningaskrif- stofum Frjálslynda flokksins, Vinstri grænna, Framsóknar- flokksins, Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Skrif- stofa Framsóknarflokksins var læst og mannlaus þegar komið Fólk í hjólastólum kemst ekki á allar kosningaskrifstofur var að henni á opnunartíma verslana sl. föstudag. Aðrar voru opnar. Hjá Frjálslyndum Kristinn Guðmundsson, sem á sæti í stjórn MND félagsins á Íslandi, komst auðveldlega inn um dyrnar hjá Frjálslynda flokknum á skrifstofu þeirra við Hafnargötuna í Keflavík. Þeir hafa skrifstofu sína í ný- lega endurbyggðu verslunar- húsnæði. Hjólastóllinn komst alla leið inn á salerni þar sem Krist inn gat athafnað sig. Boðið var upp á veitingar og starfsmaður flokksins var með- vitaður um samþykktir Sam- einuðu þjóðanna um jafnan rétt allra. Hjá Vinstri grænum Útsendari MND fé lags ins komst ekki inn á kosninga- skrifstofu Vinstri grænna sem er í gömlu verslunarhúsnæði við Hafnargötuna. Þar er hár þröskuldur þar sem rafdrifnir hjólastólar fara ekki yfir. Hjá VG buðust menn til að kippa hjólastólum inn fyrir. Kristinn sagði það ekki í boði, enda stóll og maður yfir 200 kg. Þar sem stóllinn komst ekki inn þótti ekki ástæða til að kanna aðgengi að salerni. Útsendari MND félagsins gat fengið veit- ingar í hjólastólinn út á stétt og starfsmaður VG var með- vitaður um samþykktir Sam- einuðu þjóðanna um jafnan rétt allra. Hjá Vinstri grænum var lofað að vinna bót á málum varð- andi aðgengi hjólastóla að kosningaskrifstofu þeirra við Hafnargötu. Hjá Sjálfstæðisflokknum Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins á Íslandi og Kristinn Guðmundsson, stjórn- armaður, komust auðveldlega inn á kosningaskrifstofu Sjálf- stæðisflokksins við Hólagötu í Njarðvík. Hún er rekin í hús- næði sem á sínum tíma var inn- réttað sem veitingahús. Hins vegar er ekkert aðgengi fyrir hjólastóla á salerni. Veitingar voru í boði og starfsmenn flokksins voru meðvitaðir um samþykktir Sameinuðu þjóð- anna um jafnan rétt allra. Hjá Samfylkingunni Samfylkingin rekur kosninga- skrifstofu sína í Reykjanesbæ í húsnæði fyrrum bílasölu við Bolafót í Njarðvík. Þar eiga hjólastólar auðvelt með að komast inn um stórar inn- keyrsludyr, þar sem væri þess vegna hægt að koma inn sér- útbúnum lyftubíl fyrir hjóla- stóla. Hjólastóll kemst inn á salerni en þar vantar þó betri aðstöðu fyrir hjólastólafólk. Samþykktir Sameinuðu þjóð- anna voru á hreinu og allir sammála um þær. Veitingar voru í boði. Hjá Framsóknar- flokknum Kosningaskrifstofa Framsókn- arflokksins í Reykjanesbæ var lokuð og læst þegar útsendarar MND félagsins voru þar á ferð sl. föstudag um kl. 17:45. Þar eru engir þröskuldar til að fara yfir en ekki vitað um annan að- búnað fyrir hjólastóla.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.