Víkurfréttir - 04.03.2010, Blaðsíða 22
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR22
ÍÞRÓTTIR
Kjörfundur vegna
þjóðaratkvæðagreiðslu
um gildi laga nr. 1/2010
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um
gildi laga nr.1/2010 verður haldinn
laugardaginn 6. mars 2010 frá kl. 10:00 – 22:00.
Kjörstaður er Grunnskóli Grindavíkur.
Kjósendum er bent á að hafa með sér
persónuskilríki.
Hægt er að skila athugasemdum vegna
kjörskrár til bæjarstjórnar. Kjörskráin liggur
frammi á bæjarskrifstofunni,
Víkurbraut 62 Grindavík, til kjördags.
Kjörstjórn Grindavíkur
Spútniklið KR sem meðal
annars hampaði gömlum
knattspyrnukempum með
þjálfara FH í fararbroddi,
Heimi Guðjónssyni,
sigraði á minningarmóti
um Ragnar Margeirsson,
knattspyrnumann úr Keflavík.
Fjórtán lið mættu í tíu ára
gamla Reykjaneshöllina og
hlupu á grænu gerfigrasinu
sl. laugardag. Oft var höfuðið
á undan og líkaminn langt
á eftir því líkamsástand
leikmanna var misjafnt. En
hugurinn var til staðar og
menn höfðu mjög gaman af.
KR vann úrvalslið
Guðmundar Torfasonar
í úrslitaleik. Í þriðja
sæti var Keflavík 1 og
Keflavík 2 varð í 4. sæti.
Ragnar Margeirsson, heitinn
lék með þremur íslenskum
félagsliðum í efstu deild,
Keflavík, Fram og KR.
Hann var atvinnumaður í
Belgíu og í Þýskalandi og
í Reykjaneshöllinni mátti
sjá margar skemmtilegar
blaðaúrklippur og
myndskeið með Ragnari.
Ágóði af mótinu, yfir
100 þús. kr. renna til
forvarnarverkefnisins Lundar.
Margir kunnir kappar
pússuðu skóna og mættu á
mótið. Þarna mátti sjá þekkta
leikmenn úr gullaldarliði
Keflavíkur og fleiri sem léku
með Ragnari á sínum tíma.
Á Víkurfréttavefnum má
sjá fleiri myndir frá mótinu,
m.a. af öllum liðunum.
KR vann Ragnarsbikarinn
FIMM BIKARMEISTARAR Í KÖRFUBOLTA
Fimm bikarmeistaratitlar í körfu-
knattleik komu til Suðurnesja um
helgina en bikarúrslitaleikir KKÍ í
yngri flokkum fóru fram í Ljóna-
gryfjunni í Njarðvík.
Í unglingaflokki kvenna varð Grinda-
vík bikarmeistari eftir sigur í mjög
spennandi leik gegn Haukum.
Njarðvíkingar urðu bikarmeistarar
í 10. og 11. flokki karla og Keflavík
varð bikarmeistari í 9. og 10. flokki
kvenna.
10. flokkur UMFN 11. flokkur UMFN
10. flokkur Keflavíkur 9. flokkur Keflavíkur
Unglingaflokkur Grindavíkur
Keflavík 1 varð í 3. sæti. Lið KR vann mótið og loks má sjá Steinar Jóhannsson, gullaldarmarkaskorara Keflvíkur.
Tugir síðna af úrklippum af glæstum ferli Ragnars var til
sýnis. Sjáið fleiri myndir frá mótinu í ljósmyndasafni vf.is
Keflavíkurmærin Sandra Þrastardótt-
ir var valin besti maður leiksins eftir
bikarviðureign Keflavíkur og Hauka í
9. flokki stúlkna. Hún var með 20 stig
(af 56 stigum Keflavíkur), 10 fráköst,
6 fiskaðar villur, 5 stolna bolta og 2
stoðsendingar. Hér er hún á ljósmynd Páls
Orra að skora í leiknum gegn Haukum.
Sandra óstöðvandi