Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.03.2010, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 04.03.2010, Blaðsíða 23
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM 23VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 Keflavíkurstúlkur áttu slakan leik og misstu af 2. sæti deildarinnar þegar þær töpuðu fyrir Hamri. Hveragerðisliðið endaði í 2. sæti og Keflavík og Grindavík leika umspilsleiki um sæti í úrslitum Iceland Express deild kvenna í körfubolta. „Þegar við spilum svona lélega vörn þá töpum við,“ sagði Svava Stefánsdóttir, ein lykilkvenna Keflavíkurliðsins en lokatölur urðu 85-101. Grindavík tapaði fyrir KR á útivelli 81-64 og eru með 24 stig eins og Keflavík en enduðu í 4. sæti. Njarðvíkurstúlkur töpuðu líka sínum leik gegn Haukum 61- 94. Þær enduðu í næst neðsta sæti deildarinnar með 12 stig. Keflavík endaði í 3. sæti með jafn mörg stig og Hamar en þurftu sigur í fyrrakvöld til að losna við umspil um tvö sæti en Keflavík leikur gegn Snæfelli um það í tveimur viðureignum. Grindavík í 4. sæti leikur umspilsleiki við Hauka. Fyrri leikirnir verða á morgun. Metþátttaka á Nettómóti í körfu Metþátttaka er á Nettómótinu í körfubolta sem verður í Reykjanesbæ um helgina en þetta er tuttugu ára afmælismót. Alls hafa 148 lið skráð sig til leiks frá 22 félögum og munu krakkarnir keppa í öllum íþróttahúsum Reykjanesbæjar. Þessir þúsund krakkar munu ásamt eitthvað af foreldrum gista í skólum og víðar í bæjarfélaginu þannig að búast má við að um tvö til þrjú þúsund manns verði á svæðinu í tengslum við mótið. Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir er fimmti stigahæsti leikmaður kvennakörfunnar í vetur með 340 stig og í 6. sæti yfir fjölda stiga að meðaltali í leik eða 15,35 stig. Hún er efst allra íslenskra leikmanna í deildinni og hefur leikið 20 leiki. Á hæla hennar kemur Bryndís Guðmundsdóttir, liðsfélagi hennar úr Keflavík með 247 stig í 3 færri leikjum en Birna og 14,53 stig að meðaltali í leik. Njarðvíkurmærin Ólöf Helga Pálsdóttir er með tólfta besta meðal stigaskorið eða 12,95 stig og Petrúnella Skúladóttir úr Grindavík er næst á eftir henni með 12,40 stig að meðaltali. Tvíburasysturnar Helga og Harpa Hallgrímsdætur eru í 14. og 15. sæti. Helga sem leikur með UMFG er með 13 stig en Harpa systir hennar sem leikur með Njarðvík (mynd) er með 12,55 stig. Litlu munar á þeim systrum sem hafa skorað 260 og 251 stig í 20 leikjum. Shantrell Moss sem lék aðeins 13 leiki fyrir Njarðvík var með 29,77 stig í leik að meðatali en á toppnum trónir Haukadaman Heather Ezell með 29,85 stig að meðaltali. Keflavík og Grindavík í umspili um sæti í úrslitakeppninni Birna best en tvíburarnir skora jafn mikið Birna Valgarðsdóttir skorar gegn Hamri í fyrrakvöld. Hún er með besta árangur íslenku leikmannanna í deildinni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.