Víkurfréttir - 08.04.2010, Qupperneq 2
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 14. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR2
m
ar
kh
on
nu
n.
is
Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is!
Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbæ
Tilboðin gilda 8. - 11. apríl eða meðan birgðir endast
Birt með fyrirvara um prentvillur
1.399 kr/kg
áður 1.998 kr/kg
30%
afsláttur
Nóa BaNaNaspreNgjuís
Nóa pippís &
Nóa trompís
0,5 ltr.
HuNaNgsmelóNa
Velkomin í Nettó
46%
afsláttur
uNgNautaHakk lamBalærissNeiðar BBQ,
lamBalærissNeiðar &
lamBakótilettur
grill
899 kr/kg
áður 1.249 kr/kg
1.989 kr/kg
áður 2.842 kr/kg
28%
afsláttur
grísakótilettur
HuNaNgslegNar og
léttreyktar 30%
afsláttur
1.469 kr/kg
áður 2.098 kr/kg
kjúkliNgur
Heill
499 kr/kg
áður 768 kr/kg
35%
afsláttur
296 kr/pk
áður 549 kr/pk
149 kr/kg
áður 298 kr/kg
grillBorgarar
áN Brauða
4 stk. 30%
afsláttur
349 kr/kg
áður 498 kr/kg
lamBalærissNeiðar,
lamBasNitsel &
lamBakótilettur
í raspi, ferskt
50%
afsláttur
30%
afsláttur
Á fundi stjórnar HS Orku í síðustu viku var samþykkt
að auka hlutafé félagsins um
844.551.548 milljónir króna að
nafnverði.
Tveir stærstu hluthafarnir,
Geysir Green Energy og Magma
Energy Sweden AB keyptu alla
aukninguna á genginu 3 eða fyr-
ir rúmlega 2,5 milljarða króna
að því er fram kemur á heima-
síðu HS Orku.
Þar segir jafnframt að nýtt hlutafé
verði nýtt til framkvæmda vegna
virkjanastarfsemi á Reykjanesi.
Eftir hlutafjáraukninguna er
Geysir Green Energy sem fyrr
stærsti hluthafinn í HS Orku
með 55,34% hlut og Magma
Energy á 43,19%. Sveitarfélögin
Reykjanesbær, Grindavíkurbær,
Garður og Vogar eiga 1,47%
hlutafjárins.
FRÉTTIR
FERÐAÞJÓNUSTA
Fors varsmenn Ung-mennafélagsins Þróttar
í Vogum hafa ákveðið að
sækja ekki um mótshaldið
vegna unglingalandsmóts
UMFÍ 2012. Undirbúning-
ur vegna umsóknarinnar
hafði staðið yfir um nokk-
urt skeið en Þróttur hugð-
ist halda mótið á 80 ára
afmæli félagsins.
„Hugmynd sú varð að engu
er formaður UMFÍ tilkynnti
Þrótti eftir fund með fjár-
laganefnd ríkisins að ríkið
komi ekki til með að styrkja
sveitarfélög til framkvæmda
við uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja á þessu ári.
Ákvörðun stjórnar Þróttar
er því sú að draga umsókn
um mótshald til baka og
gera ekki kröfu á sveitar-
félagið um að auka fjár-
magn til framkvæmda við
íþróttasvæði umfram það
sem nú þegar hefur verið
ákveðið,“ segir í tilkynningu
frá félaginu sem birt er á
heimasíðu bæjarfélagsins.
Þróttur hættir
við unglinga-
landsmótið 2012
GGE og Magma keyptu alla
hlutafjáraukningu HS Orku
Minnti á gamla tíma
Þessi myndarlega biðröð í gamla Grænáshliðinu, sem nú kallast
bronshlið Keflavíkurflugvallar, minnti á gamla tíma þegar varn-
arliðið leitaði í hverjum bíl. Glöggir lesendur sjá hins vegar mjög
marga lögreglubíla í þessari röð. Ekki fékkst önnur skýring á
ferðum þeirra en sú en að þeir voru að fara í æfingaaðstöðu rík-
islögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli. VF-mynd: Hilmar Bragi
Gunnuhver opnaður
fyrir sumarið
Víkingaskipið Íslendingur verður leiksvið í nýju leikhúsi sem hefur
starfsemi í Reykjanesbæ í vor í samstarfi
við Víkingaheima. Fyrsta sýningin verður
hinn rómaði einleikur Ferðir Guðríðar
eftir Brynju Benediktsdóttur, í nýrri upp-
færslu Maríu Ellingsen.
Þórunn Clausen leikur Guðríði, Snorri
Freyr Hilmarsson hannar leikmynd, Björn
Bergsteinn Guðmundsson lýsir og Filippía
Elíasdóttir hannar búninga. Frumsýning
verður 9. maí og er miðasala hafin.
„Það er gaman að byrja með sögu víkinga-
konu og landkönnuðar og þetta einfalda
snilldarverk Brynju, Ferðir Guðríðar ligg-
ur beint við. Það er líka góð tilfinning að
minnast Brynju á þennan hátt. Hún var
ávallt að ryðja brautina og ég er viss um
að ef hennar nyti við væri hún mætt hér til
að opna nýtt leikhús,“ segir María Elling-
sen. „Sýningin fór upphaflega í sigurför um
Bandaríkin og Kanada í tilefni árþúsunda-
mótanna og það sýndi sig að þessi leikræna
túlkun var til þess fallin að vekja áhuga á
þessum merkilega þætti Íslendingasagn-
anna sem tengir okkur og Vesturheim.
Ekki er hægt að finna betri stað til að fá að
upplifa söguna um Guðríði en um borð í
Íslendingi en áhorfendur munu ganga um
borð og fara í þetta ferðalag með Guðríði
sem gengur um skipið og segir sögu sína
sem hefst á ferðalagi frá Íslandi vestur um
haf og endum á suðurgöngu Guðríðar, þar
sem hún hittir páfann í Róm. Að leikhús-
inu standa feðgarnir Einar Benediktsson
og Pétur Einarsson og fleiri sem sáu fyrir
sér að um borð í víkingaskipinu Íslendingi
sem Víkingaheimar eru byggðir í kringum
væri upplagt að leika sögur víkinganna og
efla þannig menningatengda ferðamennsku
á staðnum.
Frumsýningin verður 9. maí og munu sýn-
ingar standa í sumar og sýnt bæði á íslensku
og ensku enda mikill áhugi verið á því hjá
erlendum ferðamönnum að sjá Íslending.
Það þarf að auglýsa!
Síminn er 421 0001
Bílasprautun
eða varahlutir?
Framkvæmdir eru hafnar við Gunnuhver til að bæta að-
gengi ferðafólks að hverasvæð-
inu á ný. Almannavarnir lok-
uðu svæðinu af öryggisástæð-
um fyrir tveimum árum eftir
að aukin virkni hljóp í hverinn
með þeim afleiðingum að hann
breiddi úr sér, eyðilagði útsýn-
ispall og tók í sundur veginn.
Fe rð amá l as amtök Su ð u r-
nesja hafa lagt þunga áherslu á
að svæðið yrði opnað að nýju
enda dregur Gunnuhver að sér
fjölda ferðamanna. HS Orka,
Grindavík, Reykjanesbær og
Ferðamálastofa koma að endur-
bótunum ásamt Ferðamálasam-
tökum Suðurnesja.
Búið er að leggja göngustíga að
svæðinu og lagfæra bílastæði. Á
næstunni verður hafist handa við
að reisa nýjan útsýnispall. Krist-
ján Pálsson, formaður Ferða-
málasamtaka Suðurnesja, segir
stefnt að því að opna Gunnuhver
aftur formlega í maí.
Að sögn Kristjáns yrði Gunnu-
hver helsta djásnið í jarðminja-
garði sem áhugi er fyrir að
stofna yst á Reykjanesi og yrði
hluti af neti viðurkenndra jarð-
minjagarða í Evrópu undir heit-
inu European Geoparks. Slíkir
garðar hafa mikið aðdráttarafl
á ferðamenn en jarðfræðitengd
ferðaþjónusta (Geotourism)
ryður sér mjög til rúms.
„Þetta þarf að undirbúa vel. Fyrst
þarf að fá samþykki hagsmuna-
aðila eins og t.d. sveitarfélag-
anna og landeigenda. Rætt hef-
ur verið við þessa aðila og allir
tekið vel í þessar hugmyndir. En
það þarf að útfæra þetta betur
með samþykktum og viljayfir-
lýsingum, tryggja fjármagn og
almennan rekstrargrundvöll
til framtíðar þannig að menn
hrista þetta ekki fram úr erm-
inni,“ segir Kristján aðspurður
um hvort umsóknarferlið sé haf-
ið. Hann segir þó stefnt að því að
sækja um sem allra fyrst.
Íslendingur leiksvið í nýju leikhúsi í Reykjanesbæ