Víkurfréttir - 08.04.2010, Page 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 14. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR6
VOGAAKADEMÍAN
Marargötu 1, Vogum
Fyrir byrjendur og lengra komna
Kennt verður á mánudags- og miðvikudagskvöldum
kl. 18:00–20:15 og 20:15–22:30
Upplýsingar í símum 553 1481 og 849 6214
Sláðu til – þú átt það skilið!
hefjast mánudaginn 12. apríl nk.
NÆSTU VORNÁMSKEIÐ
Listdansskóli Reykjanesbæjar
BRYN Ballett Akademían
www.bryn.isGSM: 772 1702 netfang: bryn@bryn.is
KYNNIR SALSA NÁMSKEIÐ
FYRIR EINSTAKLINGA OG PÖR!
Með hinum frábæra Grétar Berg SALSA kennara
6. vikna námskeið hefst 12. apríl - 19. maí
2 x í viku á mánud. kl. 20:00-21:00 og
miðvikud. kl. 18:00-19:00
Verð 14.900
Skráning er han!
Flugvallarbraut 733, Ásbrú
Allir velkomnir að læra Cuban Style SALSA!
Vornámskeið hjá Eygló
byrja mánudaginn 12. apríl nk.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 864 1124.
JÓGA JÓGA JÓGA JÓGA
Eygló Alexandersdóttir,
Jóga- og Fit-pilates kennari,
Iðavöllum 9, sími 864 1124.
Fit-Pilates – Fit-Pilates
Nú er tími ferminga að ganga í garð. Sum-ir eiga erfitt með að velja gjöf fyrir ferm-
ingarbarnið og vilja helst gefa því peninga
sem munu ávaxtast og nýtast í framtíðinni.
Það eru margir möguleikar í boði fyrir þá
sem vilja ávaxta fjármuni til lengri tíma og
því eðlilegt að fólk vilji skoða slíka möguleika
vel og leita ráða hjá sínum banka.
Við hjá Íslandsbanka höfum ávallt bent við-
skiptavinum okkar á kosti Framtíðarreiknings
Íslandsbanka fyrir fermingarbörn. Reikning-
urinn ber hæstu vexti verðtryggðra innláns-
reikninga bankans hverju sinni og er því frábær
valkostur fyrir langtímasparnað. Reikning-
urinn er lokaður fyrir úttektum til 18 ára ald-
urs og einungis reikningseigandi getur tekið
upphæðina út eftir að hann nær þeim aldri.
Óhreyfð innistæða heldur þar að auki óbreytt-
um kjörum eftir 18 ára aldur.
Öllum börnum er hollt að læra mikilvægi þess
að spara og setja sér markmið fyrir framtíð-
ina. Jafnvel lágar upphæðir sem lagðar eru inn
á Framtíðarreikning geta orðið að töluverðu
veganesti út í lífið seinna meir. Í mörgum til-
vikum getur eign á Framtíðarreikningi verið
góður grunnur fyrir fyrstu stóru útborgunina,
til dæmis vegna náms erlendis eða fyrsta hús-
næðisins. Framtíðarreikningurinn er því góð
gjöf frá ömmum, öfum, frænkum, frændum og
systkinum fyrir fermingarbarnið
Íslandsbanki býður einnig viðskiptavinum
sínum upp á að kaupa Gjafakortið, en það er
þægileg lausn fyrir þá sem vilja gefa ferming-
arbarninu peninga sem það getur ráðstafað að
vild. Hægt er að leggja allt að 100.000 kr. inná
Gjafakort Íslandsbanka, en kortið er hægt að
nota í verslunum um allan heim og líka á net-
inu. Gjafakortið hefur tveggja ára gildistíma og
kemur í fallegum gjafaumbúðum.
Við hjá Íslandsbanka bjóðum Suðurnesjamenn
velkomna í útibúið okkar við Hafnargötu til
að fræðast betur um Framtíðarreikninginn og
Gjafakortið, eða aðra þá þjónustu sem við höf-
um upp á að bjóða. Við tökum vel á móti þér!
Peningamál - Fermingarbörnin
Stóru-Vogaskóli
Framtíðarreikningurinn – fermingargjöf sem vex
Jóna Friðriksdóttir, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka í Reykjanesbæ skrifar:
Eins og allir vita þurfa gamlir hlutir ekk-ert endilega að vera ónýtir. Oft er hægt
að nýta þá betur og í öðrum tilgangi en þeir
voru upphaflega framleiddir til. Nemendur í
Stóru-Vogaskóla hafa í vetur verið að vinna
með hugmyndir í þessu veru.
Eitt enduvinnsluverkefnið gengur út á að búa
til stóran púða í tómstundarými nemenda. Við
gerð púðans eru nýttir fataafgangar og önn-
ur tauefni sem nemendur 7. bekkjar týndu úr
fataskápum og skúmaskotum heima hjá sér.
Í fjórða bekk var svo unnið með jólatrésafganga.
Jólatréð á sal skólans fékk því nýtt hlutverk eftir
jólin. Úr því smíðuðu krakkarnir margs konar
skemmtilegar skrautfígúrur og fleira.
Víkurfréttamyndir: Ellert Grétarsson
Tölvutengd smásjá var tekin í notkun í Stóru-Vogaskóla ekki alls fyrir löngu og
hefur hún greinilega orðið til þess að auka
vísindaáhuga nemenda. Ekki bar á öðru þegar
VF leit við í kennslustund hjá 6. bekk á dög-
unum en þar voru nemendur önnum kafnir
við að skoða frumur úr sér sjálfum sem þeir
tóku með tannstöngli innan af kinninni.
Smásjáin er tengd við tölvubúnað sem varpar
á skjá því sem auga smásjárinnar greinir. Með
búnaðinum er einnig hægt að taka ljósmyndir
og myndskeið af sýnunum.
Nemendurnir lituðu frumurnar með bláum lit
(BTB), útbjuggu smásjársýni, skoðuðu í smásjá
og svo var tekin mynd af nokkrum vel heppn-
uðum sýnum handa blaðamanni VF.
Vísindin iðkuð í Vogum
Náttúrulegt listaverk. Á þessari mynd
úr smásjánni sjáum við hvernig yfirborð
venjulegs lauks lítur út í nærmynd.
Það er greinilega
gaman að skoða
sýnin í smásjánni.
VFmynd/elg
Jólatré og gamlir fataleppar fá nýtt hlutverk
Þetta þarf að auglýsa! Síminn er 421 0001
Einkaþjálfun og hamborgaratilboð?