Víkurfréttir - 08.04.2010, Page 8
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 14. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR8
Óskum eftir að ráða matreiðslumann eða
manneskju vana störfum í stóreldhúsum.
Á sama stað óskum við eftir að ráða þjóna eða
manneskjur vana framreiðslu.
Starfstímabil er frá 1. júní - 15. september.
Leitað er að metnaðarfullum og samvisku-
sömum einstaklingum með frumkvæði.
Aldurstakmark 20 ár.
Umsóknir sendist á netfangið
info@hotelblafell.is fyrir 15. apríl nk.
Hótel Bláfell er vinalegt 25 herbergja hótel á Breiðdalsvík.
Hótelið starfrækir veitingahús með 130 sætum sem
framreiðir meðal annars íslenskan heimilismat. Hótelið er
vinsæll áfangastaður fyrir hópa í hádeginu yfir sumartímann.
ATVINNA - ATVINNA
YOGA-HÚSIÐ
Holtsgötu 6, Njarðvík sími 823 8337
VORNÁMSKEIÐ eru að hefjast eftir helgi.
Byrjum endurnærð eftir páskafrí.
Veljum vellíðan og jákvæðni í sumar.
Innritun er í síma 823 8337
Útgáfufyrirtækið Geimsteinn stendur fyrir tónleikum í Hljómahöllinni þriðju-
daginn 13. apríl nk. Júlíus Guðmundsson,
framkvæmdastjóri útgáfunnar, skipulegg-
ur þessa uppákomu ásamt bróður sínum
Baldri.
„Þetta útgáfuár verður eitt það stærsta hjá
Geimsteini frá upphafi en fyrirhugað er að gefa
út fyrir sumarið diska með Bjartmari Guð-
laugssyni og Bergrisunum, Erpi Eyvindarsyni,
Deep Jimi and the Zep Creams, Klassart, Lifun,
Valdimar og Breiðbandinu. Af þessum hljóm-
sveitum eru fimm héðan úr Reykjanesbæ þann-
ig að ljóst er að mikil gróska er í tónlistarlífinu
hér eins og reyndar alltaf,“ segir Júlíus í samtali
við Víkurfréttir.
Fyrsti diskurinn sem kemur út verður „Better
when we‘re dead“ með Deep Jimi and the Zep
Creams og hann kemur einmitt út þann 13.
apríl, sama dag og útgáfutónleikarnir fara fram.
Síðan koma diskarnir út hver á eftir öðrum
og eru að sögn Júlíusar hvert meistaraverkið á
fætur öðru.
Ástæða þessarar dagsetningar kemur til vegna
þess að þetta er afmælisdagur Rúnars Júlíusson-
ar heitins en hann hefði orðið 65 ára þennan
dag hefði hann lifað.
„Pabbi átti stóran þátt í uppbyggingu Hljóma-
hallarinnar og því þótti okkur við hæfi að halda
tónleikana þar. Þarna munu koma fram þær
hljómsveitir sem útgáfan mun gefa út og von-
andi koma sem flestir en aðgangur er ókeypis í
tilefni dagsins og hefjast tónleikarnir kl. 20:00“.
Karl Hermannsson lauk störfum hjá Lögregl-unni á Suðurnesjum eftir 34 ára starf síðasta
dag marsmánaðar. Fékk Karl viðeigandi kveðju
hjá félögum sínum í lögreglunni eins og sjá má á
myndum okkar frá athöfninni.
Karl hóf störf hjá lögreglunni 1. febrúar 1976 sem
almennur lögreglumaður. Frá árinu 1986 hefur Karl
starfað sem yfirmaður, fyrst sem aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í 16 ár og síðustu átta árin sem yfirlög-
regluþjónn.
Karl var í gullaldarliði Keflavíkur í knattspyrnu sem
varð Íslandsmeistari fjórum sinnum á árunum 1964
til 1975 og einu sinni bikarmeistari. Hann hefur sinnt
hestamennsku í frístundum undanfarin ár og ætti að
geta haft meiri tíma til þess núna þegar hann er búinn
að skila lögguhúfunni.
Fleiri skemmtilegar myndir frá kveðjuathöfninni eru
í myndasafni Víkurfrétta á vf.is eftir Sölva Logason.
Útgáfutónleikar Geimsteins
í Hljómahöllinni á þriðjudaginn
Suðurnesjamönnum boðið á tónleika á 65. afmælisdegi Rúnars Júl.
Karl Hermannsson yfirlögregluþjónn lætur af störfum eftir 34 ár hjá Keflavíkurlögreglunni
Úr lögreglubÚningnum í hestagallann
AUGLÝSINGASÍMI
VÍKURFRÉTTA
ER 421 0001