Víkurfréttir - 08.04.2010, Síða 13
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 13VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 8. APRÍL 2010
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
Fjármálafræðsla fyrir þig
í Hafnarfirði
Fjármál heimilanna
Í flóknu og breytilegu umhverfi er mikilvægt
fyrir alla sem koma að rekstri heimilisins, að hafa
haldgóða þekkingu á fjármálum þess. Þá eru allir
betur í stakk búnir til að taka fjárhagslegar
ákvarðanir fyrir sig og fjölskyldur sínar.
Á fræðslufundinum í Hafnarfirði verður fjallað á
aðgengilegan hátt um flesta þætti sem snúa að
fjármálum heimilisins.
Hafnarfjörður - 14. apríl kl. 20 í Hafnarborg
Fyrirlesari er Breki Karlsson, forstöðumaður
Stofnunar um fjármálalæsi. Fundurinn stendur
yfir í 90 mínútur.
Skráðu þig á arionbanki.is
Allir velkomnir - ókeypis aðgangur.
Komdu og njóttu góðra veitinga í
bland við fróðleik sem kemur sér vel.
Nánari upplýsingar fást hjá þjónusturáðgjöfum
í útibúum Arion banka eða í síma 444 7000.
Ég þoli illa sykur, ég fann það vel um páskana þegar ég borðaði meira sætt
en venjulega. Ég sem á frekar auðvelt með
að vera jákvæð, átti erfiðara með það þeg-
ar sykurstuðullinn í blóðinu var hærri en
vanalega um hátíðarnar. Ég verð svartsýn
(já lygilegt en satt), orkulaus og jafnvel
döpur eftir að ég er búin borða sætindi.
Þannig vil ég ekki vera. Það er staðreynd
hjá mér að sætindi skapa með mér vanlíð-
an. Kannski er það svo hjá fleirum? Hefur
þú hugleitt hvort sykurneysla hafi áhrif á
þig andlega?
Fyrir okkur sem viljum vera sólskinsmegin
í tilverunni og líða vel andlega, þá verðum
við að skoða hvað við borðum. Það er stað-
reynd að grænmeti hjálpar okkur að líða
betur, vera jákvæðari og orkumeiri. En mat-
aræði hefur einnig áhrif á hugsanir okkar og
andlega vellíðan. Til að auka vellíðan í huga
og líkama, þá þurfum við að taka mataræðið
okkar í gegn. Ef þig langar til þess að hreinsa
út sykurfíkn þá er t.d. gott að drekka soðið
vatn með kreistu af hálfri lime (græn sítróna)
tvisvar á dag. Auktu einnig hráa grænmet-
isskammtinn þinn með mat og farðu daglega
út að ganga, þannig færðu meira súrefni en
það styrkir heilbrigðar frumur líkamans og
þú hressist.
Börn, jafnt og fullorðnir, verða háð sykri og
þeim nægir ekki að fá nammi bara á laug-
ardögum, heldur vilja þau borða sætt fleiri
daga vikunnar þegar sykurfíkn tekur völd-
in. Hvernig væri að afnema nammidaga á
laugardögum og hafa í staðinn græna laug-
ardaga, kenna börnum okkar að borða meira
grænmeti og fleiri ávexti, frekar en fylla þau
af sælgæti á hverjum laugardegi? Fyrst erum
við ekkert voða spennt fyrir þessu hollustu-
fæði en það kemur þegar við finnum góðu
áhrifin.
Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar sem
sýna tengsl þunglyndis við lélegt mataræði.
Mikil sykurneysla hefur þarna áhrif, einnig
áfengi og önnur vímuefni. Það er léttara
að vera jákvæður þegar við borðum meira
grænt. Góð næringarrík fæða hjálpar okkur
að vera jákvæð í hugsun.Grænmeti inni-
heldur kraft sólarinnar. Það er auðveldara að
hafa stjórn á hugsunum sínum þegar sólin
skín innra með manni. Allt er vænt sem vel
er grænt.
Flóamarkaður
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Föstudaginn 9. apríl nk. verður
haldinn flóamarkaður að
Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ,
frá kl. 13:00 - 16:30
Fólk fyllir innkaupapoka af fatnaði og
hann kostar kr. 1.000.-
Leikfélag Keflavíkur tekur upp sýningar á barnaleikritinu Mér er alveg sama þó
einhver sé að hlæja að mér eftir Guðrúnu
Ásmundsdóttur.
Leikritið um tröllastelpuna Lónu sem getin var
í Bláa lóninu, byrjaði í skóla í Reykjanesbæ, á
foreldra sem eru tröll og lendir í ýmsum ævin-
týrum ásamt Fidda feitabollu og fleiri fígúr-
um,verður sýnt í Frumleikhúsinu á laugardag
og sunnudag kl. 14.00. Sýningin er ætluð yngstu
kynslóðinni eða börnum frá 2 ára aldri og full-
orðnum þar sem verkið þykir lúmskt fyndið
fyrir eldri kynslóðina. Miðapantanir eru í síma
421 2540.
MENNING OG MANNLÍF
Skemmtileg sýning
fyrir yngsta fólkið
Þú þarft að auglýsa! Síminn er 421 0001
Tekur þú að þér viðhald fasteigna?
Þá þarftu að auglýsa!
Síminn er 421 0001
Aukakrónur?