Víkurfréttir - 08.04.2010, Side 14
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 14. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR14
Nanna Bryndís Hilm-arsdóttir, söngkona úr
Garðinum, og hljómsveitin
Of monsters and Men urðu
sigurvegarar Músiktilrauna
2010 á laugardagskvöld.
Samkvæmt Morgunblaðinu
fær hljómsveitin, sem er að-
eins tveggja vikna gömul,
mikið hrós ekki síst söng-
ur og lög Nönnu Bryndís-
ar. Það kemur ekki á óvart
þar sem Nanna Bryndís var
ung að árum þegar söng-
ur hennar og tónlistar-
hæfileikar vöktu athygli.
Í fréttinni kemur fram að
þau vonist til að geta nýtt
sér sigurinn til að vekja á
sér talsverða athygli og
að framundan sé að spila
meira og semja meira og að
stefnt sé að plötuútgáfu.
✝
Vilhjálmur Hálfdánarson,
Klapparstíg 1, Njarðvík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, mánudaginn 29. mars.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 9. apríl kl. 14:00.
Bára Jónsdóttir,
Arnar Vilhjálmsson,
Hjördís Elísabet Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Árni Kjartansson,
Fannar Vilhjálmsson,
Andrea Lind Vilhjálmsdóttir,
Hálfdán Þorgrímsson, Hjördís Vilhjálmsdóttir,
Jón Jóhannsson, Jóhanna Tyrfingsdóttir,
systkini og makar.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur,
Kæru aðstandendur og vinir.
Okkar innilegustu þakkir fyrir kærleik og stuðning
vegna fráfalls og útfarar elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Grétars Árnasonar,
Hafnargötu 50, Keflavík.
Þórdís Herbertsdóttir,
Sigrún Berglind Grétarsdóttir,
Linda Þóra Grétarsdóttir, Joel Kristinsson,
Anna Steinarsdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Fy rir nok k r um ár um síðan var ég að veiða í
uppáhaldsánni
minni. Fyrsta
morguninn átti
ég góða stund
við árbakkann,
veiddi vel og sá
fullt af fiski. Í
hádeginu gaf ég
mér góðan tíma til að tala við
manninn sem átti að vera á
svæðinu mínu seinni partinn
og segja honum frá því hvar
fisk var að finna svo hann
myndi nú örugglega veiða
eitthvað líka. Eftir að hafa
hlustað á mig lýsa dásemdum
svæðisins og fiskmagni dæsti
hann mæðulega og sagði
svo: Þú ert örugglega búinn
að veiða þá alla! Þessi saga
rifjaðist upp fyrir mér þegar
ég sá fyrirsögnina „Algert
svartnætti á Suðurnesjum“ í
þarsíðasta tölublaði Víkur-
frétta. Líkt og í sögunni
hér að ofan er hægt að velja
hvernig maður túlkar það
sem maður sér og heyrir.
Enginn efast um að Íslend-
ingar eru að ganga í gegnum
erfiðleikatímabil og að Suður-
nesjamenn hafa fengið sinn
skerf af því. Það er hins vegar
alger óþarfi að mála allt í svört-
um litum og gefa til dæmis
þá mynd af atvinnulausum
að þeir leiti sér almennt ekki
ráðgjafar líkt og gert er inn í
blaðinu þar sem fyrirsögninni
góðu er fylgt eftir með nán-
ari umfjöllun. Hér er verið að
alhæfa með ósanngjörnum
hætti. Undirritaður hefur til
dæmis á síðustu sex mánuðum
persónulega komið að málefn-
um um það bil 50 einstaklinga
sem misst hafa atvinnu sína í
kreppunni. Sameiginlegt með
þeim öllum er að þeir hafa ein-
sett sér að koma sér í vinnu svo
fljótt sem auðið er og vinna að
því markmiði á hverjum degi.
Allur þessi hópur er kominn
í nám, eða er að styrkja sig
með einhverjum hætti sem
gerir þau samkeppnishæfari á
vinnumarkaði.
Ég er alls ekki að gera lítið
úr því að við sem hér búum
og störfum erum að glíma við
stór verkefni og sennilega
þau erfiðustu frá tímum síð-
ari heimsstyrjaldar. Þau erum
við að leysa í sameiningu þótt
það taki tíma. Þar eru margir
að leggja hönd á plóginn. Til
dæmis er það rangt sem vitn-
að er í í umfjöllun Víkurfrétta
að sprotahugmyndir séu nær
engar og gefið í skyn að hér
sé ekkert að gerast vegna þess
að allir séu að bíða eftir því að
stór verkefni eins og virkjanir
og gagnaver komist á kopp-
inn. Máli mínu til stuðnings
vil ég leyfa mér að nefna að
í tölublaðinu með neikvæðu
fyrirsögninni er einnig sagt
frá kræklingarækt í Vogunum
sem lofar góðu, góðum afla-
brögðum í Sandgerði og hót-
elbyggingu við Leifsstöð, allt
eru þetta sprotaverkefni hvert
með sínum hætti.
Ég ætla í lokin að leyfa mér að
leggja til að við temjum okkur
að líta á kreppuna og afleið-
ingar hennar sem verkefni
sem við munum leysa, og að
við styðjum hvort annað í að
leita uppi tækifærin frekar en
að festast í því að líta neikvætt
til framtíðar. Það er nóg af fiski
eftir í ánni, við þurfum bara
að upphugsa leiðir til að landa
honum.
Gylfi Jón Gylfason,
yfirsálfræðingur á Fræðslu-
skrifstofu Reykjanesbæjar.
Þú ert örugglega búinn að veiða þá alla!
n Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræðingur á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar:Sigurvegari Músiktilrauna úr Garði
Prjónakvöld á Kaffitári
Okkar fjölmenna prjónakvöld verður næst 13. apríl frá kl. 20:00 - 22:00. Prjónakvöldin hafa fengið góðar
undirtektir og eru konur ekkert endilega að prjóna heldur
bara að hittast og njóta góðs félagsskapar og deila góðum
og skemmtilegum hugmyndum með hvor annarri og að
sjálfsögðu drekka ljúffengt kaffi og njóta veitinga á tilboði.
Ellefu konur og einn karl opna myndlist-
arsýningu í sal Listasmiðj-
unnar að Ásbrú nk. laug-
ardag, 11. apríl kl. 14:00
Sýningin er afrakstur eftir
30 tíma námskeiðs á vegum
Myndlistarfélags Reykjanes-
bæjar. Allir eru velkomnir.
Sýning
að Ásbrú