Víkurfréttir - 01.07.2010, Side 7
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 7VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 1. JÚLÍ 2010
Við trúum því að það sé sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum að stuðla að
hamingju og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína, hafi
sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast.
LISTASKÓLINN
Seinna námskeið sumarsins
verður 5. – 23. júlí.
Skráning í fullum gangi í síma
898 1202 og í Svarta pakkhúsinu.
Sjá nánar á reykjanesbaer.is og í sumarblaði.
Menningarsvið
SUMARNÁMSKEIÐ FYRIR 7-13 ÁRA
SÝNIR HANS KLAUFA
LEIKHÓPURINN LOTTA
Fimmtudaginn 1. júlí sýnir Leikhópurinn Lotta nýjasta verk
sitt, Hans klaufa, í Skrúðgarðinum við Ytri - Njarðvíkurkirkju.
Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk
Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr
ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og
froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og
aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu
ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt
með felldu. Norn hefur komið þangað í fjarveru þeirra, lagt álög
á kóngsríkið og svæft alla þegna þess og til að bæta gráu ofan
á svart breytir hún Aroni prins í frosk. Nú eru góð ráð dýr og er
það undir Hans klafua komið að aflétta álögunum og bjarga
kóngsríkinu. Verst bara hvað hann er mikill klaufi.
Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka teppi til
að sitja á og myndavél en börnin fá að hitta persónur úr
sýningunni og þá er gaman að festa það á filmu.
Miðaverð er 1.500 kr. og hefst sýningin klukkan 18:00.
Menningarsvið
Í INNRI NJARÐVÍK
Upplifið stemningu liðins tíma í Stekkjarkoti á Njarðvíkurfitjum
og á heimili Jórunnar Jónsdóttur og Helga Ásbjörnssonar í Innri
Njarðvík.
Opið á báðum stöðum í sumar frá miðvikudegi til sunnudags frá
kl. 13:00 til 17:00. Ókeypis aðgangur.
Menningarsvið
Sumarlesturinn í fullum gangi, bókaormurinn lengist og lengist.
Minnum á sumarsýningar leikskólabarna í allt sumar.
Opið virka daga frá kl. 10:00 - 19:00.
Lestur er lífsstíll.
Menningarsvið
BÓKASAFN
REYKJANESBÆJAR
NJARÐVÍK OG
STEKKJARKOT