Fagnaðarboði - 01.01.1958, Blaðsíða 1

Fagnaðarboði - 01.01.1958, Blaðsíða 1
g bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllum hlutum! öldungurinn til hins élskaða Gajusar, sem eg elska í sannleika. Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllum hlutum og að þú sért heill heilsu, eins og sálu þinni vegnar vel. Því að ég varð mjög glaður, þegar bræður komu og báru vitni um trygð þína við sannleikann, hversu þú framgengur í sannjeika. Ég hefi enga meiri gleði en þá, að heyra að börnin mín framgangi í sann'leikanum. Þú breytir sem trúaður maður, minn elskaði, með því sem þú vinnur fyrir bræðurna, og það ókunna menn; þeir hafa vitnað um kærleika þinn fyrir söfnuðinum, og þú gjörir vel, er þú greiðir för þeirra eins og sam- boðið er Guði; því að fyrir sakir Nafnsins leggja þeir af stað, og þiggja ekki neitt af heiðnum mönnum. Þess vegna ber oss að taka þvílika menn að oss, til þess að vér verðum samverkamenn sannleikans. (III br. Jóh. 1—8.) Aramóiarœða (sem Guðrún Jónsdóttir flutti síðastliðið gamlárskvöld, að Austurgötu 6, Hafnarfirði). Hebr. 1. Nú halda Islendingar hátíð. Fyrir fáeinum dögum héldu þeir aðra hátíð — fæðingarhátíð Frelsarans. Nú halda margir þeirra hátíðina með brennum og brenni- víni. Þeir hinir sömu gleyma hvar þeir standa. Ef þeir litu í kringum sig, litu hraunin og hugsuðu um þær ógnir og skelfingar, sem gengið hafa yfir landið okkar vegna hamfara elds og brennisteins, þá mundu þeir ekki leika sér að eldinum og kveikja brennur að heið- ingja sið. Og þó þeir tækju aðeins iítinn hraunstein, virtu hann fyrir sér og hugsuðu: „Hvað hefir komið fyrir þessa litlu steinvölu? Hvað hefur eldurinn, sem eyddi henni, eytt mörgum forfeðrum okkar?“ Ef þess- ir menn aðeins vildu leiða hugann að þessu, þá mundu þeir ekki kveikja eld, til þess aðeins að skemmta sér við hann. En nú kemur til okkar. Hvernig höldum við hátíð- ina? Er hugur okkar heill við að færa Guði þakkar- gjörð að fórn, af því að við eigum í sannleika Jesúm Krist sem okkar Frelsara? Hann, sem er okkur lífið og verður okkur lífið svo lengi, sem við viljum hlýða Orði Hans. Og færum við Guði lofgjörð fyrir það, að Drottinn Jesús hefir verið okkur Immanúel og lýsandi ljós á hinu liðna ári, svo við höfum ekki þurft að ganga í myrkrinu, heldur mátt ganga við Ijós Hans. Þökk sé Guði. Eftir að Guð hafði oftsinnis talað til feðranna og

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.