Fagnaðarboði - 01.01.1958, Blaðsíða 2
2
FAGNAÐARBOÐI
með mörgu móti fyrir munn syámannanna, hefir Hann
í lok þessara daga til vor talað fyrir Soninn, sem Hann
setti erfingja allra hluta ...
Þetta er hin sanna gleði og fögnuður, að Guð, hefir
til okkar talað fyrir Soninn, svo við lifðum ráðum Son-
arins og veittum viðtöku sonarréttindunum í eilífu lífi
og dýrð með Honum, og allar þrengingar, neyð og
skelfingar mættu að engu gerðar.
Tími er kominn fyrir unga fólkið og alla, að vakna
og vita, að ekkert stoðar í þessari veröld nema Jesú
Krists elska og dýrð.
Því hve mikið, sem við mennirnir kunnum að hafa
af speki veraldarinnar þá færir hún okkur ekkert á
þrengingastundunum, þvi speki veraldar er grímu-
klædd og verður það ávallt. En líf Frelsarans er aldrei
grímuklætt, heldur okkur opinberað í fullkominni elsku
og náð.
En svo lengi, sem hver og einn stendur í gegn því,
að gefa Drottni hjarta sitt, hrópar hann Krist á kross-
inn. Og þetta var einmitt það ,sem Satan vildi fá mann-
kynið til þess að gera, að hrjá og hrekja Frelsarann
og hrópa Hann síðan á krossinn.
En Faðirinn sá um allt sínum elskaða Syni til handa,
og sér um allt þér til handa, ef þú aðeins trúir Honum
og treystir. En meðan við stöndum gegn elsku Hans
og dýrð, þá falla óskir okkar saman við óskir hinna,
sem segja: Þú ættir að vera krossfestur, Kristur. —
Þú ættir ekki að fá að ganga um laus. — Þú ættir ekki
að fá að óróa sífellt hjarta mitt og lesa það, sem leynist
þar. — Ég vil að raustin þín í hjarta mínu þagni. Er
þessu svona varið með okkur mennina? Gerum við
þetta í raun og veru. 1 stað þess að hrópa: Ekki á kross-
inn, heldur í mitt hjarta. — Ekki að hrjá Hann. Ekki
hrekja Hann. Ekki að smána Hann og ekki að fyrirlíta
Hann.
Þú ert við áraskiptin. Skiptu um hjarta, það er: Bið
Guð að gefa þér hreint hjarta. Það er Honum þóknan-
iegt.
Við mennirnir segjum, að árið sé liðið og komi aldrei
aftur. En við mætum því aftur, því þegar Jesús Kristur
kemur aftur sést hvernig árið okkar var, og þá sést
hvernig hjartað okkar var. Margar bækur koma út
meðal þjóðanna. Þær eru skýrar og greinilegar til lest-
urs. En hve miklu skýrari verða ekki bækurnar okkar,
þegar Konungur Lífsins, dómari jarðarinnar, kemur
aftur, og allra bækur verða lesnar.
Menn eru að fagna hinu ókomna, nýja árinu, sem
þeir vita ekki, hvað ber í skauti sér. En Guðs börn
gleðjast og fagna hinu ókomna, því þau vita, hvað
framundan er, það að Jesús Kristur kemur aftur, til
þess að lesa bók hvers og eins, lesa allra ár, allra dag
og allra nótt. Til ávaxtar les Hann sína kvöl í hjörtum
barna sinna. Og til dóms les Hann sína kvöl í hjörtum
óvina sinna, sem sífellt krossfestu Hann og smánuðu,
af því að þeir lifðu Honum ekki.
Hver lagði Israelsmönnum það í brjóst, að smána
Krist? Hver lagði þeim í brjóst, að hrópa Hann í burtu?
Var það Almáttugur Guð eða Satan?
Og hver leggur það í brjóst mönnunum nú, að við-
hafa hið sama? Hver hefir kennt þeim að hata Hann og
smána? Og hver kennir þeim að elska Hann og þjóna
Honum?
Faðirinn hefir talað til okkar fyrir Soninn. Hann hef-
ir búið okkur, kennt okkur og boðið okkur að lifa Syn-
inum, svo enginn maður hefir nokkuð sér til afsökunar.
Því hrópið þið þá í dag: „Burt með Hann?“ I stað
þess að hrópa Hann inn í hjörtu ykkar?
Gleðilegt nýtt ár, segja mennirnir, með allt sitt
gamla í hjarta sínu, öll vopn útrétt, til þess að hylja
sig fyrir Guði sínum, — blys og vopn afsakanna og van-
trúar. Gleðilegt nýtt ár er aðeins í Jesú Kristi. Svo ef
þú vilt lífið, þá er það Jesús. En ef þú vilt ekki lífið,
þá kýst þú vopn heimsins. Og þegar við kveðjum gamla
árið, eins og mennirnir orða það, þá kveðjum við það,
annað hvort með vopnum á móti Kristi eða vopnaðir
fyrir Krist í réttlæti Hans.
Guð hefir i lok þessara daga til vor talað fyrir Son-
inn ...
Vottar Krists voru og eru vopnaðir fyrir Hann, þess
vegna hefir Fagnaðarerindið borizt út'um heiminn eins
vítt og orðið er. En vottar óvinarins hafa einnig verið
vopnaðir fyrir sinn herra. Þess vegna hefir vantrúin
ríkt svo mjög og bæði haft og hefir svo mikil ítök með-
al þjóðanna í dag. Þjóðirnar vilja jafnvel tigna og heiðra
Soninn með þakkargjörðarorðum, en vilja á engan hátt
lifa Honum. Það er ekki nóg, að hafa Nafnið Hans
aðeins á vörunum. Því að lofa Drottinn, er að hafa
fundið Hann og lifa Honum.
Lofið Drottin állar þjóðir, vegsamið Hann allir
lýðir, þvi miskunn Hans er voldug yfir oss, og trú-
festi Hans varir að eilífu.
Þessa dýrð sendi Guð okkur með sínum elskaða Syni,
Drottni Jesú Kristi.
Og Hann hefir líka gert heimana fyrir Hann.
Himnarnir, sem farast og himnarnir, sem varðveitast,
allt er gert fyrir Soninn. Hann, sem er Ijómi dýrðar
Hans og imynd veru Hans. Hann er með sínum börn-
um, til þess að klæða þau í ljóma sinn og ímynd sinnar
veru, svo Faðirinn geti alltaf kannast við þau sem sín
börn og fagnandi veitt þeim áheyrn og dýrð.
Hann settist, er Hann hafði hreinsun gjört syndanna,
til hægri handar Hátigninni á hæðum ...
Guðs Sonurinn situr Guði til hægri handar, til þess
að veita sínum lýð dýrð, ljóma og arf með sér. Þennan
Guð eigum við til þess að lofa í dag og Honum við hönd