Fagnaðarboði - 01.04.1970, Side 6

Fagnaðarboði - 01.04.1970, Side 6
6 FAGNAÐARBOÐI Jesaja spámaður lirópar: Því að bam er oss jcett, Son- ur er oss gefinn; á Hans herðum slcal höfðingjadómur- i.nn hvíla; Nafn Hans slcal kallað: Undraráðgjafi, Guð- hetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi. (Jes. 9,6.) Og Davíð segir í 45. sálmi 3. versi: Fegurri ert þú en mannanna böm, yndisleik er úthellt yfir varir Jnnar, fyrir því hefvr Guð blessað þig að eilífu. f Hebreabréfinu 1. kap. 3. versi segir: Hann, sem er Ijómi dýrðar Hans og ímynd veru Hans, og ber allt með Orði máttar síns; Hann settist, er Hann liafði hreinsun gjört syndanna, til hægri handar hátigninni á hæðum. r**/ /w /%/ Við sjáum í vöggu nýfædd börn. Margir eiga ásamt foreldrunum, óskir þeim til handa. En enginn veit, hvað þetta barnið eða hitt á fyrir höndum. í óvissunni er allt sársaukakennt, gieðin jafnt sem annað. En það, sem um Hann var talað, barnið í jötunni, var og verður allt. í fullkomnum og eilífum fögnuði, hugfestum það, hvar, sem um Hann verður talað á komandi tíma, og dveljum við þann brunn blessunarinnar, sem Guð, í kærleika sínum, hefur í Honum fyrir okkur lagt. Hálfvelgjan og áhugaleysið víki frá okkur, fávísum mönnum, svo við blessuð fyrir Hann, megum erfa bless- unina og bera ávöxt friðarins, þess friðar, er Guð hefir okkur ákveðið í dýrð síns elskaða Sonar, Jesú Krists. Oft hefir Guð fært fram umkvartanir vegna okkar mannanna barna, og Hann sent mönnum villu, af því þeir veittu ekki viðtöku kærleikanum til sannleikans, að þeir mættu hólpnir verða. Nýtt ár rennur upp með öllu því leynda, sem það felur í skauti sér. En allt, sem þeim er fyrirbúið, er Guð elska, stendur skrifað, öllum Ijóst og opið, í bók Sannleikans. Þar stendur skrifað, hvað við munum uppskera og hver arfur okkar mun verða. Mætti Jesús Kristur veita okkur af sinni óforgengi- legu náð. Mætti Hann upplýsa okkur, svo við öðlumst þekkinguna á kærleika Guðs ,og líf Frelsarans, fái borið ávöxt með okkur, á sama hátt og vitnisburður þeirra fvrstu, er Fagnaðarerindið fluttu. Friður og náð Guðs margfaldist öllum þeim til handa, sem Drottni hlýða. Þá verður verk hvers eir.r Guði til dýrðar, þá er Kristur lcemur til að dæma heimsbyggðina. Því að föðurland vort er á himni, og frá himni vænt- um vér Frelsara, Drottins Jesú Krists .... (Filip.br. 3,20.) Búum okkur undir komu Hans, svo við erfum dýrð fyrir Hann. Guðrún Jónsdóttir. Höfrungsmerkið Englandi, og ég er þess fullviss, að Hann heyrði þá bæn okkar. — Öruggur treysti ég Honum og horfi á Hann máttugan okkur til hjálpar. Sannarlega mun Hann leiða okkur farsællega í höfn. — Eg trúi á Hann og treysti Honum. Þessi orð skipstjórans, sögð í einlægu trúar- trausti, urðu oklcur hughi-eysting og aflgjafi, og við sner- um aftur til starfa við dælumar. En nú bregður svo við, að innan stundar förum við að sjá, að sjórinn, sem kom- inn var í skipið, er greinilega farinn að minnka. Við að sjá þetta jókst okkur þróttur, og sleitulaust héldum við áfram við dælurnar, þar til við sáum, að hættan var liðin hjá. En hvað hafði hér gerzt? Enginn olckar gat gefið svar við því. En upp frá brjósti eins og sérhvers okkar, stigu heit og einlæg þakkarorð til Drottins. Þegar við vorum komnir í lygnan sjó, var strax höfð sameiginleg lofgerðar- og þakkarstund. Einum huga þökkuðum við Drottni fyrir hina undursamlegu björgun. Þegar við náðum landi, var skipið dregið upp í þurr- lcví. En hvað heldur þú, að þá hafi komið í ljós, sagði gamli maðurinn brosandi. Upp í stórt gat, sem rifnað hafði á skipið fyllti stærðar höfrungur og það svo kyrfi- lega, að nær enginn sjór rann þar inn um. Þótt ótrúlegt kunni að virðast, þá var það þetta sem gerzt hafði og orð- ið okkur til björgunar. Já, sannarlega var hér hönd Drott- ins að verki. Hér bauð Drottinn höfrungnum að gera sitt verk, — synda inn í gatið, sem komið hafði á skipið, á sama liátt og Hann bauð stórfiskinum að svelgja Jónas spámann. Og má ekki með sanni segja, að stundum hlýða mállausu dýrin betur raustu Drottins, heldur en menn- irnir, heimskir í vantrú sinni. En hvernig fellur svo nælan þín eða merkið inn í frá- sögnina, spurði ég. Jú, það skal ég segja þér. Við skipverjarnir komum okkur saman um að láta gera okkur eitthvert merki með höfrungsmynd, sem við gætum ávallt borið, og væri til þess að minna okkur á kærleika Drottins. Ég ber þetta merki hérna í jakkanum mínum. Á hverjum morgni geng ég niður til strandarinnar, sit hér á ein- hverjum bekknum um stund, ef vera kynni að einhver huggunarþurfi eða í nauðum staddur ætti hér leið um. Gæfist mér þá ef til vill tækifæri til þess að segja hon- um þessa sögu mína, og þá jafnframt vitna fyrir honum um náð og kærleika Drottins. Því hjá Honum einum er hjálpina að fá í hvers konar neyð og vanda. Á þennan hátt leitast ég við að fara að dæmi skip- stjóra míns, þess manns, sem leiddi mig inn á veg trú- arinnar, þegar ég sem ungur og óreyndur piltur var að leggja út í siglingar um heimsins höf. (Þýtt úr vikublaðinu ,,Live“)

x

Fagnaðarboði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.