Víkurfréttir - 26.01.2012, Blaðsíða 10
10 FIMMTUdagUrInn 26. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Anna Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hamingjuhornið
Hún stóð bein í baki, virtist örugg með sig og talaði
til kvennahópsins sem hlustaði af athygli. Hún var
forstöðumaður í mikilsvirtu fjár-
málafyrirtæki og málefnið var fjöl-
skyldan og framinn. Hún sagði að
það hefði aldrei staðið henni fyrir
þrifum að vera kvenmaður – hún
hafi alla tíð vitað nákvæmlega
hvað hún vildi og væri komin mjög
nálægt því takmarki sem hún hafði
stefnt að. Ég dáðist að henni en
fann jafnframt fyrir einkennilegri
tilfinningu innanbrjósts. Ég átti
erfitt með að samsama mig þessari konu og stóð sjálfa
mig að því að fara í gegnum það í huganum hversu oft
ég hafði efast um að ég væri á réttri braut. Það hefur
ekki staðið mér fyrir þrifum að vera kona nema ef vera
skyldi þær takmarkanir sem ég hef sett sjálfri mér í
gegnum lífið og það hefur gerst oftar en einu sinni að ég
hef vanmetið sjálfa mig og óskað þess að ég þyrfti ekki
að hafa svona mikið fyrir hlutunum, gæti bara slakað á
og einhver annar sæi um mig.
Byrjum á lítilli dæmisögu úr lífi mínu:
Ég keyrði hægt inn götuna – nákvæmlega eins og ég hafði
gert svo mörgum sinnum áður. Húsin voru auðvitað ná-
kvæmlega eins og þegar ég keyrði hér síðast, á einni hæð,
með fallegum frönskum gluggum og vel snyrtum görðum
í réttri stærð. Einn daginn ætla ég mér að eignast eitt af
þessum húsum – svo mikið er víst. Hum, kannski gerist
það þegar ég eignast mann því þá verða fjárráðin betri og
ég get látið fleiri drauma mína rætast og lifað því lífi sem ég
á svo skilið eftir að hafa verið svakalega dugleg svona ein
í mörg ár...
BOng!!! hvaðan koma svona hugsanir – ég er meðvituð um
að velgengni mín í lífinu hefur ekkert að gera með það hvort
ég hitti mann eða ekki. Langi mig í svona hús er eins gott að
ég skipuleggi hvernig ég ætla að fara að því að eignast það.
Ég geri mér líka grein fyrir að það þýðir ekkert að komast hjá
þeirri streitu sem fylgir því að takast á við alla þætti lífsins
með því að telja sjálfri mér trú um að ákveðna hluti sé ekki
hægt að framkvæma nema að ég eignist maka. Ég hef sýnt
sjálfri mér að ég get vel tekist á við lífið og tilveruna þegar
ég er ein. Þegar ég ÞarF að gera hlutina sjálf og hef engan
annan en sjálfa mig til að treysta á kem ég ótrúlegustu
hlutum í verk og er ósátt að finna að ég óska þess stundum
að einhver bjargi mér frá sjálfri mér. Ég er óhrædd að setja
þetta niður á blað og opinbera sjálfa mig á þennan hátt því
eftir að hafa kennt sjálfstyrkingu í nokkur ár hef ég komist
að því að þetta á svo sannarlega ekki bara við mig.
Colette dowling setti fram áhugaverða en jafnframt um-
deilda kenningu í bók sinni Öskubuskuáráttan. Þar lýsir hún
því hvernig líf hennar breyttist þegar hún kynnist manni
eftir að hafa verið einstæð móðir í fjögur ár og barist til
metorða sem blaðamaður: Þegar við fluttum út í sveit þetta
dásamlega haust, fannst mér eins og ég hefði verið náðuð
eftir þennan tíma, sem ég hugsaði alltaf um sem „erfið-
leikatímabilið“. Ég fann til öryggis í fyrsta sinn í mörg ár, og
þá fór ég að skapa hinn rólega heimilisbrag, sem virðir vera
helsta minning manns frá barnæskunni. Ég bjó til hreiður
og einangraði það með mýksta dúninum og bómullar-
hnoðrunum sem ég fann. Síðan faldi ég mig í þessu hreiðri.
Coletta lýsir því hvernig hún smám saman týndi sjálfri sér,
metnaðurinn minnkaði og um leið þægindahringurinn og trú
hennar á sjálfa sig. nýja lífið snerist í kringum „prinsinn“
hennar og fjölskylduna, án þess að nokkur gerði um það
kröfu nema hún sjálf.
Margir hafa gagnrýnt þessa kenningu og á við þetta eins og
margt annað, einhverjir geta samsamað sig því að gleyma
hluta af sjálfum sér þegar farið er í samband, en aðrir alls
ekki. Ég trúi því að þetta geti átt við bæði kynin, þ.e. að
maður gleymi hluta af sjálfum sér í „samrunanum“.
að líta á samband kynjanna sem jafningjasamband er í
mínum huga heilbrigt og einu samböndin þar sem báðir
einstaklingar fá það sem þeir leita eftir – við getum verið
frjáls en samt saman. Í ævintýrunum um Öskubusku, Mjall-
hvíti, Þyrnirós, og Mjaðveigu kóngsdóttur, fá þær allar
prinsinn sinn í lokin og lifa hamingjusamar til æviloka, eða
hvað? Ég er nokkuð viss um að Öskubusku hefur brugðið
við þegar hún var allt einu hætt að sauma, þrífa og þræla
og hafði tækifæri til að nota orkuna í eitthvað allt annað.
Hennar beið það erfiða verkefni að finna sjálfa sig, fyrir
hvað hún stóð, hvaða gildi skiptu hana máli og hverjir voru
draumar hennar og þrár. Til að takast á við slíkt verkefni þarf
viðkomandi að búa við ákveðið frelsi sem einstaklingur og
hvort sú var raunin hjá Öskubusku fylgdi ekki sögunni. En
lærdómurinn sem við getum dregið af slíkum ævintýrum er
að muna að við berum sjálf ábyrgð á eigin hamingju og því
hvernig ævintýrinu okkar lýkur. Köttur úti í mýri, setti upp á
sig stýri, úti „bíður“ ævintýri.
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa Ólafsdóttir
FMR
FÉLAG MYNDLISTAMANNA
Í REYKJANESBÆ
KYNNIR VETRAR/VORNÁMSKEIÐ 2012
1. febrúar - 21. mars.
MÁLUN-LISTASAGA-MÓTUN
Kennari: Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
6. febrúar- 26.mars.
BLÖNDUÐ TÆKNI
Kennari: Hermann Árnason
29. mars- 3.maí.
FRJÁLS MÁLUN
Kennari: Bjarni Sigurbjörnsson
14. mars-18. apríl.
VATNSLITAMÁLUN
Kennari: Þórunn K Guðmundsdóttir
Allar nánari upplýsingar og skráningar
á námskeið eru hjá MSS í síma 421-7500
á heimasíðu MSS: mss.is og á
netfanginu mss@mss.is
Er öskubuska sofandi
í rúminu þínu?
Garðmenn fá ekki byggðakvóta
Á grundvelli upplýs-inga frá Fiskistofu er
niðurstaða Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðu-
neytisins fyrir Sveitar-
félagið Garð að ekki er
samdráttur í þeim þáttum
sem lagðir eru til grund-
vallar úthlutun byggðar-
kvóta og er það því niðurstaða ráðuneytisins að enginn byggðarkvóti
komi til Sveitarfélagsins Garðs á fiskveiðiárinu 2011/2012. Þetta kemur
fram í bréfi ráðuneytisins til bæjarstjórnar Garðs og var svar við um-
sókn um byggðakvóta fiskveiðiárið 2011/2012
Um 700 manns skemmtu sér konung-lega á stærsta þorrablóti Suðurnesja
sem haldið var í Garðinum um nýliðna
helgi. Það voru Björgunarsveitin Ægir og
Knattspyrnufélagið Víðir sem stóðu fyrir
blótinu. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar
Bragi af kátum þorrablótsgestum.
Þorrablót í Garðinum