Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.2012, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 26.01.2012, Blaðsíða 6
6 FIMMTUdagUrInn 26. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa: Leiðari Víkurfrétta PÁLL KETILSSON, RITSTJÓRI Nú í byrjun febrúar mun fyrsta fyrirtækið úr „óvissuatvinnu- tækifæra“-pakkanum form- lega hefja rekstur þegar Verne Global gagnaverið á Ásbrú verður gangsett. Undirbúningur þess hefur staðið yfir í nokkur ár og hafa for- ráðamenn þess þurft að stíga yfir nokkra þröskulda á leiðinni. Fleiri fyrirtæki eru í lokaundirbúningi fyrir formlega opnun, m.a. fiskeldi á Reykjanesi, kísilver og síðustu fréttir af samningaviðræðum Norðuráls og HS-Orku lofa góðu fyrir álverið í Helguvík. Framkvæmdir við eins og hálfs milljarðs hjúkrunarheimili við Nesvelli í Reykjanesbæ fara í gang með vorinu auk fleiri verkefna. Þetta mun allt skapa ný störf auk þess sem átak í vinnu- miðlun fyrir atvinnulausa í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og verkalýðsfélaga er einnig að fara í gang. Þá eru ótalin aukn- ing í ferðaþjónustu og störfum tengdum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Öll þessi atriði munu skapa mörg störf og mun vonandi ýta okkur upp úr hjólförunum. Enda ekki vanþörf á þegar 1500 manns eru atvinnulausir á Suðurnesjum, þar af eru rúmlega þúsund búsettir í Reykjanesbæ, samkvæmt tölum Vinnumálstofnunar frá því í nóvember síðastliðnum. Við ættum því að geta horft með örlítilli bjartsýni til framtíðar og bætt smá brosi við í gegnum tárin. Þetta er að koma. Í þessu sambandi er vert að rifja aðeins upp í fáum orðum þau risastóru áföll sem hafa dunið yfir svæðið á undanförnum örfáum árum. Þar er hægt að nefna „fernuna“ sem var undirstaða atvinnulífs með tilheyrandi áhrifum sem hún hafði með styrkjum til íþróttalífs og menningar á svæðinu. Þessi ferna er farin en hana skipuðu fjórir risastórir aðilar sem við þekkjum öll eða réttara sagt þekktum: Varnarliðið í herstöðinni á Keflavíkur- flugvelli sem skapaði yfir þúsund störf í hálfa öld, Íslenskir aðalverktakar og Keflavíkurverktakar sem höfðu einnig mikinn fjölda starfsmanna í vinnu auk þess sem allir þessir þrír aðilar skiptu við mörg fyrirtæki á Suðurnesjum og sköpuðu þannig óbeint mörg störf. Fjórði aðilinn í fernunni er svo auðvitað Spari- sjóðurinn í Keflavík, hornsteinn í héraði, sem lifði í rétt rúma öld og hafði gríðar- lega mikil áhrif á uppbyggingu samfélags- ins á Suðurnesjum. Var lengst af með yfir 50% markaðshlutdeild á Suðurnesjum og lét gott af sér leiða með því að styrkja betur en nokkur annar aðili menningu og íþróttalíf á svæðinu. Þessi ferna hefur horfið af spilaborði okkar Suðurnesja- manna á síðustu fimm til sex árum. Ótrú- legt nokk en þessir aðilar náðu allir háum aldri en sá síðasti, Keflavíkurverktakar, sem hétu síðast Atafl, urðu gjaldþrota nýlega. Það skal því engan undra þó það hrikti í stoðum samfélagsins hér á Suður- nesjum með tilheyrandi erfiðleikum í atvinnulífi og samfélagi. Þessir fjórir að- ilar voru vissulega hornsteinn alls hér. Við sjáum það nú þegar þeir eru horfnir. Blessuð sé minning fernunnar. Hennar er sárt saknað. Það er oft sagt að í áföllum felist tækifæri. Þegar einn gluggi lokist opnist annar. Við vf.is Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 2. febrúar 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Fernan sem fór Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum ›› FRÉTTIR ‹‹ Miðstö ð símenntunar á Suðurnesjum er sjálfs- eignastofnun sem hefur sem markmið að efla sí- og endur- menntun Suðurnesjamanna. Starfsemi MSS er margþætt en rauði þráðurinn er að hjálpa ein- staklingum að bæta við sig þekk- ingu og hjálpa þeim fyrstu skrefin í átt að meiri menntun. Starfsfólk MSS kappkostar að veita ráðgjöf og persónulega þjónustu til íbúa svæðisins og skapa umhverfi til náms þar sem einstaklingum líður vel. Starfsemi MSS er hægt að skipta í nokkra þætti: Námskeiðahald MSS heldur fjöldann allan af nám- skeiðum á hverju ári. Fjölbreytt úrval tómstundanámskeiða eru í boði og eru námskeið í boði í öllum sveitarfélögunum á Suður- nesjum. Lengri námsleiðir skipa mjög stóran sess í starfsemi MSS og margar námsleiðir hafa sannað til- gang sinn og eru í boði á hverri önn. Má þar m.a. nefna Menntastoðir sem er undirbúningsnám fyrir þá sem vilja fara í Háskólabrú Keilis eða frumgreinadeildir háskólanna. Grunnmenntaskólinn hentar vel fyrir þá sem vilja efla sig áður en þeir fara í framhaldsnám og Aftur í nám sem er nám fyrir lesblinda sem vilja styrkja sig. Fjölbreytt úrval er einnig af starfstengdu námi s.s. fyrir skrifstofufólk, ferðaþjónustu, starfsfólk á leikskólum, umönnun, Svæðisbundið leiðsögunám, tölvu- nám o.s.frv. MSS hefur á undanförnum árum komið reglulega með nýtt náms- tilboð og það nýjasta eru svo kall- aðar smiðjur. Smiðjurnar eru allar 120 kest. að lengd en innihaldið er misjafnt. Þær smiðjur sem eru í boði núna eru Grafísk hönnun, Hljóðsmiðja sem unnin er í sam- starfi við Geimstein, Kvikmynda- smiðja unnin í samstarfi við Studio List og Umhverfissmiðja í sam- starfi við Landbúnaðarháskóla Ís- lands. Smiðjurnar eru verklegar og henta því vel þeim sem vilja síður fara í bóklegt nám. Einnig eru fleiri smiðjur í boði í samstarfi við Vinnumálastofnun s.s. Textíl- smiðja, Matarsmiðja, Gólfefn- asmiðja, Járn- og trésmiðja og Kaffi og barþjónanámskeið. Náms- og starfsráðgjöf MSS býður upp á náms- og starfs- ráðgjöf fyrir einstaklinga. Þessi þjónusta stendur öllum opin og án kostnaðar. Þeir sem eru að velta fyrir sér hvert þeir eigi að stefna eru sérstaklega hvattir til að panta sér tíma. Náms- og starfsráðgjafi getur veitt: - upplýsingar um nám og störf - aðstoð við að kanna áhugasvið og hæfni (áhugasviðsgreining) - upplýsingar um mögulegar námsleiðir og styrki - aðstoð við að setja mark- mið og útbúa námsáætlun - tækifæri til að setjast niður með hlutlausum aðila og skoða stöðu sína almennt Þjónusta við fyrirtæki MSS býður fyrirtækjum og stofn- unum upp á þjónustu í málefnum sem tengjast starfsþróun starfs- manna þeirra. Haft er að leiðarljósi að sníða þjónustuna að þörfum hvers og eins. Sem dæmi um þjón- ustu má nefna: - Skipulagning á styttri og lengri námskeiðum fyrir stofnanir og fyrirtæki. - Þarfagreining meðal starfs- manna fyrirtækis/stofnunar. Þjónusta við útlendinga MSS býður upp á íslenskunám- skeið I-V fyrir útlendinga. Einnig er boðið upp á Landnemaskóla þar sem kennd er íslenska, tölvu- og upplýsingatækni og samfélags- fræðsla. Einnig er öflug ráðgjöf fyrir Pólverja og í boði nokkur námskeið á pólsku. Fjarnám á háskólastigi Fjarnám er vinsæll kostur þegar einstaklingar ákveða að fara í nám. Hægt er að stunda fjarnám við ýmsa háskóla og framhaldsskóla. MSS býður fjarnámsnemendum upp á góða aðstöðu til náms. Fjölmargir fjarnemar útskrifast á hverju ári frá Háskólanum á Akureyri í hjúkr- unarfræði, viðskiptafræði, leik- og grunnskólafræði o.s.frv. Fríir fyrirlestrar og allir velkomnir MSS býður reglulega upp á fría fyrir- lestra og sem dæmi er fyrirhugað námskeið í markmiðasetningu í Reykjanesbæ og fyrirlestur með Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur í Grindavík. Starfsfólk hvetur alla til að kíkja við hjá MSS í Krossmóa eða á Víkurbrautinni í Grindavík og kynna sér starfsemina. Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er sjálfseignastofnun sem hefur sem markmið að efla sí- og endurmenntun Suðurnesjamanna. Tilboðsvika á Hertex poka- markaði að Hafnargötu 50 Dagana 23. - 27. jan. er hægt að fylla plastpoka með not- uðum fatnað fyrir aðeins 500 krónur. Einnig er tekið á móti vel með förnum fatnaði í búðinni. Kaffi og ókeypis súpa í boði Velferðarsjóðs Suðurnesja. Allir velkomnir. Dæmi um námsleiðir: Svæðisbundið leiðsögunám Kvikmyndasmiðja Grafísk hönnun Hljóðsmiðja Skrifstofuskólinn Tölvunám Fjölmennt á fundi um skólamál Margir Suðurnesjamenn mættu á fund um skóla- mál sem haldinn var í Fjölbrauta- s k ó l a S u ð u r - nesja þriðjudag- inn 17.janúar. Fundurinn var á vegum Suður- nesjavaktarinnar, Fræðsluskrif- stofu og FFGÍR. Fundurinn snerist um nýja reglu- gerð menntamálaráðuneytisins „Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunn- skólum.“ 2011/1040. En þar kennir ýmissa grasa og má segja að reglu- gerðin fjalli um allt „vesenið“ sem getur gerst í skólanum. Kynning á reglugerðinni var í höndum Guðna Olgeirssonar, sér- fræðings í menntamálaráðuneyt- inu. Hann fór yfir helstu atriði í reglugerðinni og sýndi fundar- gestum í leiðinni fallegar myndir úr náttúru Íslands. Guðni og Védís Grönvold, sérfræð- ingur í ráðuneytinu sátu síðan fyrir svörum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.