Víkurfréttir - 26.01.2012, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 26. janúar 2012
Holtsgata 56, Reykjanesbæ, sími 421 2000.
Atvinna
Starfskraftur óskast til
ræstistarfa á leikskóla
Vinnutími frá kl. 13:00 til 17:00
Starfskröfur:
Einhver reynsla af vinnu við ræstingar
Aldur: 25 ára eða eldri
Tungumál: Íslenska
Umsóknum skal skilað á heimasíðu allthreint.is
undir liðnum störf í boði fyrir 1. febrúar nk.
„Ég útskrifaðist úr lyfjafræðinni árið 1988 með
Masterspróf og hef verið að vinna í apótekum
hér og þar síðan,“ segir Sigríður hress í bragði
er blaðamaður hitti hana á kaffistofu Lyfju í
Krossmóa í Reykjanesbæ. Eftir útskrift fluttist
hún vestur á Ísafjörð þar sem hún starfaði í
apóteki en þaðan eru foreldrar hennar ætt-
aðir. Sigríður, eða Sigga Palla eins og hún er
jafnan kölluð er engu að síður uppalin á Holts-
götunni í Njarðvík og
gekk í Njarðvíkurskóla
alla sína skólagöngu.
Hún hóf að reka sitt
eigið apótek á Hellu
og Hvolsvelli eftir stutt
stopp fyrir vestan.
Hún kunni vel við sig
á Suðurlandi og líkaði
vel við sveitina.
Um þetta leyti fóru apótekakeðjurnar að
myndast og keyptu upp einkareknu apótekin
og þá fór hún að vinna sem lyfsali hjá keðj-
unum. Hún var um tíma formaður lyfjafræð-
ingafélagsins og ferðaðist töluvert vegna starfa
sinna þar og þá aðallega um Norðurlöndin. Þá
fannst henni ekki nógu gaman að geta ekki tjáð
sig og rifist á einhverju norrænu tungumáli
þannig að næst á dagskrá var að ráða sig til
starfa í Noregi. Það var árið 2004 og hefur Sig-
ríður síðan verið meira og minna með annan
fótinn þar ytra.
Þar kynntist hún nýjum stefnum og straumum.
„Norðmennirnir eru framarlega í endur-
menntun og lyfjafræðilegri ráðgjöf, þar eru
lyfjafræðingarnir frammi með viðskiptavin-
inum „direkt reseptur“ en ekki baka til eins og
algengast er hér. Við Íslendingar erum þó mjög
framarlega á merinni og ég hef tekið eftir því að
Lyfja er mikill frumkvöðull í samanburði við
mörg Evrópulönd, þá aðallega í sambandi við
hjúkrunarþjónustu og samvinnu heilbrigðis-
stétta,“ en Sigríður var ávallt stolt af þeim ár-
angri Íslendinga þegar
hún bjó í Noregi. „Við
erum svo flott hérna á
Íslandi. Tölvukerfið og
allt sem því tengist er
til fyrirmyndar hérna
á meðan Norðmenn
eru varla búnir að gera
þetta rafrænt ennþá.“
Sigríður segist vera
alveg í skýjunum með það að vera komin á
heimaslóðir en hún hefur starfað hjá Lyfju í
Reykjanesbæ síðan í haust eins og áður segir.
„Ég elska það að vera komin heim eftir um
30 ára fjarveru. Þegar maður fer að eldast þá
kitlar að snúa aftur í heimahagana þar sem
fjölskyldan og vinirnir eru,“ segir Sigríður sem
flutti til Njarðvíkur ásamt tveimur börnum
sínum, en það var fyrir algera tilviljun að Sig-
ríði bauðst starf hérna.
Mikið hefur breyst síðan Sigríður bjó hér fyrir
30 árum en hún segist kunna afar vel við sig í
Krossmóanum þar sem Lyfja er til húsa. Hana
langar til að breyta og bæta ýmislegt og hefur
margar hugmyndir. Hún vill bæta samstarf við
heimahjúkrun og lækna af öllum toga. Hana
langar m.a. að bjóða upp á aukna lyfjafræðilega
ráðgjöf, en hún felst í því að fólk geti leitað til
apótekanna varðandi lyfin sem það er að taka.
„Á þessum tímum tel ég mikilvægt að við
séum hluti af aðgengilegri heilbrigðisþjónustu
og um leið að spara peninga með því að bjóða
upp á betri þjónustu frá apótekunum.“
Sigríður segir mikilvægt að fólk taki lyfin sín
með réttum hætti. Þau bjargi jú mannslífum og
hjálpi fólki mikið. „Það er ekki eðlilegt að vera
með verki en auðvitað er best að lifa heilbrigðu
lífi og ef að hjá því er komist að taka lyf þá er
það hið besta mál.“
Sigríður hefur verið að hjálpa fólki að hætta að
reykja í fjölda ára en það hefur hún gert með
námskeiðum sem hafa hópeflið að leiðarljósi.
Hún segist opin fyrir því að halda slík nám-
skeið hérna á Suðurnesjum enda sé henni þetta
afar hugfangið.
Hún starfaði einnig í stjórn sykursýkissamtak-
anna í Noregi og þar fræddist hún mikið um
þann sjúkdóm. Hún segist gjarnan vilja hjálpa
fólki sem glímir við sykursýki en hægt er að lifa
góðu lífi með sjúkdómnum ef vel er hugsað um
heilsuna. Hægt er að heimsækja Sigríði í Lyfju
og fá ráðgjöf um sykursýki sé þess óskað.
Sigríður segir það skemmtilegasta við það að
vinna í apótekum sé að taka þátt í heilbrigðis-
geiranum og nú sé verið að leggja enn meiri
áherslu á þetta en áður með því að bjóða upp á
aukna þjónustu frá apótekunum.
- Loks komin í heimahagana
›› VOGAR ‹‹
Stefnumótun um
Græna hagkerfið
í Vogum
Greinargerð um Græna hagkerfið var lögð fyrir
bæjarráð Sveitarfélagsins
Voga á dögunum. Bæjarráð
leggur til að greinargerðin
verði lögð til grundvallar
umsókn Sveitarfélagsins Voga
um að verða tilraunasveitar-
félag í Græna hagkerfinu.
Vogamenn skoða
siðareglur kjör-
inna fulltrúa
Gerð siðareglna kjörinna fulltrúa hjá Sveitarfélaginu
Vogum voru til umræðu á
síðasta fundi bæjarráðs Voga.
Lagðar voru fram siðareglur
kjörinna fulltrúa í nokkrum
nágrannasveitarfélögum.
Umræða fór fram um siða-
reglur, gerð þeirra og gildissvið.
Jafnframt var fjallað um hvort
setja skuli samskiptareglur kjör-
inna fulltrúa og starfsmanna.
Bæjarráð samþykkir að unnið
skuli að gerð samskiptareglna
kjörinna fulltrúa og starfs-
manna sveitarfélagsins. Bæjar-
stjóra var falið að vinna tillögur
að samskipta- og siðareglum.
Vilja umsögn
vegna ræktunar-
leyfis í Stakksfirði
Matvælastofnun hefur lagt fram beiðni um umsögn
vegna ræktunarleyfis í Stakks-
firði til Sveitarfélagsins Voga.
Bæjarráð sveitarfélagsins leggur
áherslu á að fjarlægðarmörk séu
virt og að tryggt sé að fyrirhuguð
ræktunarstaðsetning trufli ekki
siglingarleið úr og í Vogahöfn.
Jafnframt bendir bæjarráð á
mikilvægi þess að ræktunar-
svæðið fari ekki inn á skilgreint
akkerissvæði í Stakksfirði.
›› VF.IS ‹‹
Sigríður Pálína Arnardóttir
lyfjafræðingur tók við stöðu
lyfsöluleyfishafa í Lyfju Kefla-
vík þann 1. október síðast-
liðinn. Sigríður er uppalin í
Njarðvík og hefur kappkostað
við að veita íbúum á Suður-
nesjunum sem besta þjónustu
síðan hún kom til starfa.
Sigríður yfirgaf Njarðvík
í kringum tvítugt en hún
er alsæl með það að vera
komin aftur heim.
Lífsglaði lyfsalinn
& atvinnulíf
Umsjón: Eyþór Sæmundsson / eythor@vf.is
„Ég hef tekið eftir því að
Lyfja er mikill frumkvöðull í
samanburði við mörg Evrópu-
lönd. Þá aðallega í sambandi
við hjúkrununarþjónustu og
samvinnu heilbrigðisstétta.“
Ungmennahreyfing
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Starfsemin er hafin aftur eftir jólafrí.
Erum núna á fimmtudögum.
Börn á aldrinum 10-16 ára og er skipt í tvo
hópa.
5. - 7. bekkur (1999-2001) kl. 16:30 – 18:30
8. - 10. bekkur (1996-1998) kl. 19:00 – 21:00
Hlökkum til að sjá ykkur
URKÍ-S
Smiðjuvellir 8
230 Keflavík
Sími:420-4706, 661-4775 (Gugga)
Öll framtíðar-
störf auglýst hjá
Reykjanesbæ
Hjá Reykjanesbæ eru öll framtíðarstörf auglýst.
Ekki er auglýst í tímabundnar
stöður og/eða afleysingar nema
í undantekningartilfellum,
segir í svari frá bæjarfélaginu
við fyrirspurn bæjarfulltrúa
Samfylkingarinnar 29. des. sl.
Spurt var hversu margir hafi
verið ráðnir hjá Reykjanesbæ
og undirstofnunum utan við
afleysingar árin 2009-2011 án
auglýsingar og hversu margir
þeirra væru enn við störf.