Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.2012, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 26.01.2012, Blaðsíða 12
12 FIMMTUdagUrInn 26. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS TIL LEIGU Ýmsar stærðir og gerðir af herbergjum, með eða án húsgagna, með sameiginlegu eldhúsi og baðherbergi eða sér eldhús og bað, með eða án húsgagna. Aðgangur að gufubaði og borðtennisborði. Internet og orka innifalin og allur sameiginlegur kostnaður. Góð staðsetning og hagstætt leiguverð. Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909. Til leigu stúdíóíbúð miðsvæðis í Keflavík, hagstæð leiga. S. 895 8230 og 860 8909. Gisting Amaró. Gisting í skemmtilegum íbúðum við göngugötuna Akureyri. Gott verð. Sjá www.gistingamaro.is S: 461 5403 Herbergi með baði til leigu í Heiðarholti, sérinngangur.Upp­ lýsingar í síma 869 5544 eftir kl 20. Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 26. jan. - 2. febr. nk. • Bingó • Gler-, keramik- og leir- námskeið • Handavinna • Leikfimi • Dansleikfimi • Jóga á boltum • Hádegismatur • Síðdegis kaffi • Tölvuklúbbur FEBS Léttur föstudagur 27. janúar kl. 14:00 dagskrá FEBS: Tónlistar- skóli RNB, kaffihús opið. Nánari upplýsingar í síma 420 3400 Kirkjur og samkomur: Hjálpræðisherinn, Flugvallarbraut 730, Ásbrú. Föstudaginn 27. jan. „Herbúðir unga fólksins“ kl. 19:30. Sunnudaginn 29. jan. Samkoma kl. 11:00. Allir eru hjartanlega velkomnir. ÓSKAST Ungt par óskar eftir íbúð til leigu í Reykjanesbæ, allt kemur til greina. Uppl. í síma 771 8211. Óska eftir geymsluhúsnæði með breiðri hurð til leigu í ca. 1 ­ 2 mánuði. Uppl. í síma 862 0322. ÝMISLEGT Búslóðaflutningar og allur al- mennur flutningur. Er með 20 rúmmetra sendibíl/kassabíl með lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi. Tek að mér allskonar viðgerð- ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað­ ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567. Kjólaleigan Celía Sól Leiga á stuttum kjólum kr. 4.000.­ Leiga á síðum kjólum, þorratilboð kr. 5.500.­ Öll mál í cm inni á síðunni. Sendi út um allt land. Frí póstsending aðra leið. Er á Facebook kjola­ leiga@gmail.com BARNAGÆSLA Amma óskast til leigu Barngóð manneskja óskast til að gæta tveggja stúlkna (6 og 1 árs) annað slagið frá eftirmiðdegi fram að kvöldverði eða eftir samkomu­ lagi. Þarf helst að vera með bílpróf og reyklaus. Áhugasamir hafi sam­ band í s. 868­9427 eða á dunna@ hss.is www.vf.IS NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM www.vf.IS TIL SÖLU Verslun til sölu Verslun okkar er til sölu. Frábært tækifæri fyrir réttan aðila. Miklir möguleikar! Skoðum skipti. uppl. í síma 771 1449. Tvær handfærarúllur og sökkur á handfæri. Uppl. í síma 849 4086. fJALLAHJÓL TIL SÖLU af gerðinni GT Aggressor, keypti það nýtt í mars 2011 og hef aðeins notað það nokkrum sinnum síðastliðið sumar. verð: kr. 50.000,- Upplýsingar í síma 868 8023 eða á netfangið steini230@gmail.com Vertu í góðu sambandi við Víkurfréttir! Auglýsingadeild í síma 421 0001 Fréttadeild í síma 421 0002 Afgreiðsla í síma 421 0000 Heimsóknavinir eru eitt af áhersluverkefnum Rauða krossins, og um land allt fær fjöldi fólks heimsóknavin frá Rauða krossinum til sín. Í Reykjanesbæ hafa heimsóknavinir verið starf- andi um langt árabil, og nú vill deildin efla verkefnið og auglýsir því eftir sjálfboðaliðum til starfa. Margir íbúar á starfssvæði deildar- innar bíða eftir að fá heimsóknavin til sín, en eflaust eru ennþá fleiri sem vilja gjarnan fá heimsóknir en hafa ekki leitað eftir því. Það væri því gaman ef hægt væri að fjölga í báðum hópum. Heimsóknavinir geta verið konur og karlar á öllum aldri, og einnig þeir gestgjafar sem fá heimsóknina. Þeir sem áhuga hafa á að fá heimsóknavin geta haft samband við deildina. Hlutverk heimsóknavina er að veita góðan félagsskap, nærveru og hlýju. Það fer svolítið eftir áhuga- málum og aðstæðum þess sem heimsóttur er, hvernig gestgjafi og heimsóknavinur verja tímanum saman. Yfirleitt eru þetta vikulegar heimsóknir, klukkustund í senn, en geta verið sjaldnar, ef það hentar betur. Heimsóknir eru yfirleitt á heimili fólks, dvalarheimili eða sambýli. Heimsóknavinur þarf að hafa gaman af því að umgangast fólk, vera traustur og áreiðanlegur og hafa vilja til að láta gott af sér leiða. Allir heimsóknavinir þurfa að sækja undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja heimsóknir. Suðurnesjadeild Rauða krossins mun á næstunni halda námskeið fyrir heimsóknavini. Námskeiðið verður haldið í húsnæði deildar- innar, að Smiðjuvöllum 8 í Reykja- nesbæ miðvikudaginn 1. febrúar og hefst kl. 20:00. Nánari upp- lýsingar og skráning er í síma 420 4700 eða á heimasíðu Rauða kross- ins www.raudikrossinn.is Heim- sóknavinum bjóðast síðan ýmiss gagnleg námskeið t.d. í skyndihjálp og sálrænum stuðningi. RKÍ Suðurnesjadeild Sími 420-4700, 896-0433 sudredcross@sudredcross.is ›› GARÐUR ‹‹ ›› VF.IS ‹‹ Garður skrifar undir þjónustu- samning Bæjarstjórar Sveitarfélagsins Garðs og Reykjanesbæjar hafa endurnýjað þjónustu- samning Garðs við Reykjanesbæ. Undanfarin ár hefur Garður keypt af Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar ráðgjöf sem felur í sér rekstrarráðgjöf til skóla og sérfræðiþjónustu fyrir leik- og grunnskóla. Nýi samningurinn nær einnig til þátttöku í verkefni um fram- tíðarsýn í skólamálum. Verkefninu er ætlað að bæta námsárangur á Suðurnesjum. Framtíðarsýnin felur meðal annars í sér aukna samvinnu leikskóla, grunnskóla og foreldra. Þjónustusamningur þessi er tímabundinn til fimm ára og tekur gildi 1. janúar 2012. Ferðamanna- vegur frá Ósabotnum að Garðskaga Minnisblað vegna „Ferða-mannavegar á Reykjanesi“ var lagt fyrir bæjarráð Sveitar- félagsins Garðs á dögunum. Ásmundur Friðriksson, bæjar- stjóri, kynnti verkefnið og fór yfir þær hugmyndir sem unnið er eftir. Ferðamannavegurinn verður í fyrsta áfanga frá Ósabotnum að Garðskaga og verður upplifun fyrir ferðamenn og gesti svæðisins að ferðast um vel merkta og skemmtilega ferðamannaleið. Handbært fé til tölvukaupa Bæjarráð Garðs hefur samþykkt að veita 450 þúsund krónum til tölvukaupa í Gerðaskóla. Tillagan var samþykkt samhljóða en upp- hæðin fyrir tölvunum verður tekin af liðnum handbært fé. Skipuð í stjórn menningarseturs Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri Garðs hefur verið skipaður fulltrúi Garðs í stjórn Menningarseturs að Útskálum ásamt bæjarfulltrú- anum Davíð Ásgeirssyni. Varamaður þeirra í stjórninni er Kolfinna S. Magnúsdóttir. Vilji til sam- starfs en engar fjárveitingar Beiðni Ara Trausta Guðmunds-sonar f.h. Lífsmyndar ehf. um stuðning við gerð sjónvarps- þáttaraðarinnar „Land verður til“ var tekin fyrir í bæjarráði Sand- gerðis á dögunum. Þáttaröðin er heimildamynd fyrir sjónvarp um náttúru og sögu Reykjanessskaga. Í erindi til Sandgerðisbæjar er farið fram á stuðning með samvinnu og fjárframlögum sveitarfélaga á Suðurnesjum. Sveitarfélögunum verður frjálst að nýta efni þáttanna til kennslu, gjafa og á hvern þann hátt sem getur orðið þeim til hags- muna. Bæjarráð Sandgerðis fagnar frumkvæði Lífsmyndar og lýsir yfir vilja til samstarfs vegna verk- efnisins. Um beinar fjárveitingar vegna verkefnisins verður þó ekki að ræða. Bæjarráð skipar Reyni Sveinsson sem tengilið bæjarfélagsins við verkefnið. Viðræður við HSS varðandi þjónustu í Sandgerði Minnisblað viðræðuhóps Sandgerðisbæjar við full- trúa Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja var lagt fyrir fund bæjarráðs Sandgerðis á dögunum. Bæjarráð fagnar því góða samstarfi sem hefur verið við HSS síðustu miss- eri á tímum þar sem stjórnendur Heilbrigðisstofnunarinnar þurfa að vinna undir ströngum sparn- aðarkröfum. Bæjarráðið lýsir þó yfir áhyggjum af fyrirséðum læknaskorti á Suður- nesjum sem hefur áhrif til hins verra í heilbrigðismálum á svæðinu. Þá lýsir bæjarráð Sandgerðis yfir vilja til samstarfs við stjórnendur HSS til að tryggja reglubundna við- veru læknis í Sandgerði einkum í ljósi þess að ekki hefur verið haldið úti lögbundinni heilsugæsluþjón- ustu í sveitarfélaginu frá árinu 2008. Vilt þú verða heimsókna- vinur Rauða krossins? Hönnun og prewTökum að okkur allt Upplýsingar í síma 421 0000 prentverk og hönnun! vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.