Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 08.05.2013, Blaðsíða 4
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR4 Mæðradagsganga Göngum saman PÁLL KETILSSONvf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: afgreiðsla og ritstjórn: ritstjóri og ábm.: fréttastjóri: blaðamenn: auglýsingadeild: umbrot og hönnun: auglýsingagerð: afgreiðsla: Prentvinnsla: uPPlag: dreifing: dagleg stafræn Útgáfa: RITSTJÓRNARBRÉF Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Sigursælir Suðurnesjamenn Það er ekki hægt að sleppa því tækifæri að óska Keflvíkingum til hamingju með klára og hrausta skólakrakka og ekki síður góðar körfuboltastelpur. Það var sérlega ánægjulegt að sjá Skólahreysti- krakka Holtaskóla sigra þriðja árið í röð í Skólahreysti og Myllubakkaskóla í 5. sæti. Tveimur dögum áður tryggði meistaraflokkur kvenna hjá Keflavík sér fimmtánda Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Keflavík er sigursælasta körfuboltalið landsins með flesta unna titla í körfuboltasögunni hér á landi. Sannarlega frábært hjá keflvísku körfuboltafólki. Árangur hjá Keflvíkingum í þessum greinum er góð hvatning fyrir unga fólkið okkar. Til við- bótar berast mjög góðar fréttir úr hefðbundnu skólastarfi í Reykja- nesbæ en samkvæmt viðhorfs- könnunum verja foreldrar í bæjar- félaginu meiri tíma með börnum sínum í aðstoð við heimanám en gerist annars staðar á landinu. Niðurstöður úr sömu viðhorfs- könnunum sýna einnig að foreldrar í Reykjanesbæ eru ánægðir með námið og stjórnun skólanna. Þá hefur náðst miklu betri árangur á undanförnum árum í samræmdum prófum þar sem einn skólinn var efstur í stærðfræði í vetur. Vert er einnig í þessu sambandi að minnast á grein í Víkurf- réttum í síðustu viku þar sem einn kennari sem var starfs- maður á sameiginlegri árshátíð efstu bekkinga allra skóla á Suðurnesjum segir frá því hvað krakkarnir hegðuðu sér vel og voru til mikillar fyrirmyndar. Sem sagt; unga fólkið til fyrirmyndar. Víkurfréttir hafa undanfarin tvö ár í samvinnu við Mennta- málaráðuneytið og Þekkingar- setur Suðurnesja, birt greinar undir nafninu „Menntavagninn“. Þar hefur verið greint frá jákvæðu og góðu starfi á sviði menntunar og fræðslu á Suðurnesjum. Síðasti pistillinn í bili er í blaðinu í dag og fjallar um ýmislegt sem er í gangi í Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Þar ber auðvitað hæst spjaldtölvuinn- leiðing í unglingabekkjum. Þar er metnaðarfullt og framsækið verk- efni að hefjast sem á vonandi eftir að takast vel og skila okkur enn betri námsárangri. Spjaldtölvur og samfélagsleg ábyrgð ATVINNA Helstu verkefni: • Alhliða lagnavinna • Uppsetning og forritun helstu öryggiskerfa s.s. innbrota-, bruna-, aðgangsstýri- og mynda- vélakerfa ásamt viðgerðum. • Viðhald og öðrum tilfallandi verkefnum. Menntunar og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi t.d. sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun. • Sérstök áhersla er lögð á ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. • Góð íslensku- og enskukunnátta. • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á Navision er kostur. Securitas Reykjanesi Hafnargötu 60, 230 Reykjanesbæ, s. 580 7000 TÆKNIMAÐUR Sækja skal um störf á www.securitas.is til 20. maí 2013 nk. Allir umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði, prófskírteinum og gildu ökuskírteini í umsóknarferlinu, verði þess óskað. Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt og skipulega og vera tilbúnir til þess að læra nýja og spennandi hluti. Nánari upplýsingar veitir þjónustustjóri tæknideildar; Gústav J. Daníelsson, netfang gustav@securitas.is Á meðan við bíðum þess að hlýir vor vindar strjúki vanga landsmanna getum við í Heiðarskóla glaðst yfir því að ferskir vindar blása í skóla- starfi okkar. Innleiðing nýrrar aðalnámskrár er þegar hafin og verður næstu misserum varið í það að aðlaga skólastarf okkar að breyttum áherslum. Í um- ræðunni um aukið læsi í víðum skilningi er rétt að benda á að í aðalnámskránni er kveðið á um að ekki geti orðið virkt lýðræði án læsis á tákn- og samskiptakerfi samfélagsins. Tölvu- og snjall- tæknin er orðin allsráðandi þáttur í okkar daglega lífi. Mögu- leikarnir sem hún býður upp á eru miklir og geta nýst afar vel í skólastarfi. Í Heiðarskóla er hafið þróunarverkefni sem felst í I-pad notkun kennara á unglingastigi og nemenda í 8. bekk. Notkun þeirra kallar að sjálfsögðu á aukið læsi nemenda á slík tæki og þá tæknimöguleika sem þau bjóða uppá, sem ætti að skila sér í skyn- samlegri notkun almennt. Hópur nemenda á unglingastigi hefur á vormánuðum einnig minnt okkur á mikilvægi þess að nemendur láti sig samfélagsleg málefni varða og er því ekki úr vegi að minnast á þann þátt nýrrar aðalnámskrár sem snýr að getu nemenda og vilja til þess að hafa áhrif og taka virkan þátt í samfélagi sínu. Spjaldtölvur í skólastarfi okkar Notkun spjaldtölva mun breyta skólastarfi töluvert. Með þeim geta nemendur auðveldlega aflað sér upplýsinga og unnið með náms- efnið á áhugaverðan og fjölbreyttan hátt. Möguleikar í framsetningu verkefna þeirra eru margir og gagnvirkni verkfærisins veitir nemendum endurgjöf á frammi- stöðu sína jafnóðum. Við viljum að nemendur okkar öðlist færni í að afla sér upplýsinga, meta þær, gagnrýna og vinna úr þeim svo að nám og sköpun eigi sér stað. Þetta á einnig við um notkunarmöguleika kennara en auk þeirra geta spjald- tölvur auðveldað þeim vinnu við einstaklingsmiðað nám. Þeir geta aðlagað framsetningu námsefnis t.d. með því að stækka letur, breyta því og eiga við bakgrunn námsefnis en slíkt getur haft góð áhrif á nem- endur. Hægt er að gera alla fram- setningu námsefnis skemmtilegri og fjölbreyttari sem skilar sér von- andi í áhugasamari og ánægðari nemendum. Nemendur láta gott af sér leiða Nú á vormánuðum sýndi hópur nemenda okkar á unglingastigi í verki mikilvægi þess að hafa sam- kennd, sýna dugnað, hafa áhrif og láta gott af sér leiða. Fyrr á þessu skólaári settu nemendur úr 8.-10. bekk á svið leikritið Í sambandi. Þessi kraftmikli hópur lagði til að sýnd yrði aukasýning til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, m.a. vegna þess að tveir kennarar skólans hafa háð hetjulega baráttu við krabbamein á skólaárinu. Á sýningunni söfnuðust 100.000 krónur og máttu krakkarnir vera virkilega stoltir af þessu framtaki. Í síðustu viku gátum við svo glaðst með þremur nemendum okkar í 10. bekk þegar þær létu draum sinn um að halda styrktartónleika rætast. Þær Azra Crnaz, Guðbjörg Ósk Ellertsdóttir og Thelma Rún Matthíasdóttir hafa unnið það þrekvirki að skipuleggja og halda tónleika til styrktar BUGL. Þeir voru haldnir í Stapanum og fóru afar vel fram. Þær hafa nú safnað rúmum 600.000 krónum! Þessi verkefni eru til marks um þann kraft sem býr í ungu fólki og ber okkur skylda til að rækta hann í samstarfi við foreldra og samfé- lagið allt. Haraldur Axel Einarsson að- stoðarskólastjóri og Bryndís Jóna Magnúsdóttir umsjónarkennari. S tyrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæ ðr adag inn, sunnudaginn 12. maí kl. 11. Í Reykjanesbæ verður gengið frá Íþróttaakademíunni og verða tvær vegalengdir í boði, rúmir 2 km og rúmir 5 km. Þetta er í annað skipti sem þessi ganga fer fram í Reykjanesbæ og hvetjum við ALLA til að mæta. Þátttaka í fyrra fór fram úr björtustu vonum þegar um 300 manns tóku þátt í göngunni. Vonumst við til að sjá enn fleiri í þetta skiptið. Kaffi og brjóstabollur verða til sölu að göngu lokinni. Gangan er gjaldfrjáls en göngu- fólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini, með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á vörum sem hafa verið hannaðar fyrir Göngum saman. Fyrir hönd Göngum saman í Reykjanesbæ, Anna Lóa Ólafsdóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Vilbergsdóttir, Bryndís Guð- mundsdóttir og Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir. - sunnudaginn 12. maí kl. 11.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.