Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 10
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR10
„Langaði bara að prófa“
Sigurvegari í Instagram leik Víkurfrétta að þessu sinni er Erla
Bergmann en hún er 13 stúlka í Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Hér
er hún í vettvangsferð í skólanum þar sem heimsótt var fisk-
vinnsla í Sandgerði. „Mig langaði bara að prófa,“ sagði Erla sem
bæði kyssti og sleikti fiskinn. Fyrir uppátækið hlýtur hún að
launum miða fyrir fjóra í Bláa lónið, út að borða fyrir fjóra á Olsen
Olsen og bíómiða fyrir fjóra í Sambíóin Keflavík.
Í öðru sæti var þessi mynd frá Adam Sigurðssyni sem faðmar
hér Víkingasverðið í Innri Njarðvík. Valþór Pétursson á svo
myndina sem er í þriðja sæti en þar er hann líka svona fallega
málaður. Hvert tilefnið er vitum við ekki en engu að síður er hann
ansi laglegur.
Á næstunni munum við bæta við ýmsum nýjungum í Instagram
leik okkar og því er um að gera að fylgjast vel með. #vikurfrettir.
Instagram
VF
1.
grindavík
nemendur á fyrsta ári í Fisk-tækniskóla Íslands (FTÍ),
sem starfræktur er í Grindavík,
eru á leið til Danmerkur á tveggja
vikna námskeið. Að sögn Ólafs
Jóns Arnbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra FTÍ, þá er ferðin
liður í námi nemenda. Byrjað
verður á námskeiði um meðferð
og viðhald fiskvinnsluvéla hjá
Marel í Álaborg. Að því loknu
verður farið til Árósa og tekið
námskeið í suðu og fínsmíði
í rústfríu efni í verknámsskóla.
Ferðinni lýkur hjá samstarfsskóla
FTÍ – Fiskeriskolen í Thyborön en
þar verður boðið upp á nokkur
stutt námskeið, m.a. í nútíma
fjarskiptum og öryggismálum um
borð í fiskiskipum.
„Fáir átta sig á því að Danir eru
ekki bara mjög stórir þegar kemur
að vinnslu og sölu sjávarafurða og
þjónustu heldur gera þeir einnig
menntun á þessu sviði alveg sér-
staklega hátt undir höfði,“ segir
Ólafur Jón. „Þeir hafa byggt upp
fyrirmyndar aðstöðu með öllum
búnaði. Þá eru þeir með sitt eigið
skólaskip sem okkar nemendur
koma til með að njóta góðs af í
ferðinni.“
Áformað er að nemendur frá
Thyborön komi síðan til Íslands
á næsta ári, en þeir hafa fyrst og
fremst sóst eftir fræðslu á þeim
sviðum þar sem Íslendingar eru sér-
staklega sterkir, svo sem meðferð
á afla og vinnslu auk veiðitækni.
Ferð nemenda í FTÍ er kostuð af
Leonardó menntaáætluninni, en
Íslendingar hafa verið aðilar að því
samstarfi frá árinu 1996.
Ólafur telur að betur mætti búa að
menntun í sjávarútvegi fyrir Íslend-
inga. Hann bendir á að nágrannar
okkar á Norðurlöndum hlúi mun
betur að menntun í þessari grein
en Íslendingar sem þó eru taldir
meðal færustu sjávarútvegsþjóða
í heimi. Ólafur bendir á að Danir
reki fullkomið skóla- og kennslu-
skip fyrir sína nemendur og ný-
verið tóku Færeyingar í notkun nýtt
húsnæði undir kennslu í þessari
grein að verðmæti 800 millj. króna.
Fistækniskóli Íslands í Grindavík
er í leighúsnæði sem kostað er af
heimamönnum í Grindavík.
Nítján nemendur stunda nú nám
í FTÍ. 12 nemendur fara á aðra
önn í haust og á sama tíma hefur
nýr hópur 12 nemenda nám við
skólann. Í vor verða í fyrsta sinn
útskrifaðir nemendur frá skól-
anum sem lokið hafa tveggja ára
námi. Nám í fisktækni var þróað
í Grindavík í samstarfi við helstu
hagsmunaaðila í greininni. Námið
er kostað af heimamönnum og sjáf-
saflafé og að því loknu lagt í hendur
ríkisvaldsins eins og hvert annað
framhaldsnám.
„Það hefur verið þyngra en tárum
tekur að fá yfirvöld til að koma að
þessu með nauðsynlegt fjármagn
og tryggja skólanum verðuga fram-
tíð,“ segir Ólafur Jón. „Það verður
að teljast kaldhæðni örlaganna að
það skuli reynast auðveldara að
sækja fé erlendis til menntunar í
grunnatvinnuvegi þjóðarinnar.“
n Fisktækniskóli Íslands í Grindavík útskrifar nemendur
í fyrsta sinn í vor. Fara í námsferð til Danmerkur:
Auðveldara að sækja fé
erlendis en til ríkisvaldsins
- segir Ólafur Jón Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri FTÍ
Nemendur við Fisktækniskóla Íslands.
Nemendur við Fisktækniskóla Íslands í vinnustaðaheimsókn.