Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Page 12

Víkurfréttir - 08.05.2013, Page 12
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR12 Reykjanestá Sandvík Djúpivogur Hvalsnes Keflavíkurflugvöllur Sandfellshæð Stapafell Þórðarfell Arnarseturshraun Sólbrekkur GRINDAVÍK Bláa lóniðBridge between continents Seltjörn Þorbjarnarfell HAFNIR SANDGERÐI REYKJANESBÆR GARÐUR VOGAR JARÐVANGSVIKA Á REYKJANESI Reykjanes jarðvangur stendur fyrir sinni fyrstu jarðvangsviku 10-20 maí. Sambærilegar jarðvangsvikur eru haldnar í öllum jarðvöngum Evrópu í maí og júní ár hvert. FÖS. TIL SUN. 10–12. MAÍ Formleg opnun tjaldsvæða Tjaldsvæðin í Grindavík, Vogum, Garði og Sandgerði opna form- lega. Suðurnes bjóða uppá góða aðstöðu fyrir tjaldbúa og fólk á húsbílum. Barnahátíð í Reykjanesbæ Dagana 8–12 maí fer fram Barnahátíð í Reykjanesbæ í 8. sinn. Dagskrá er að finna á barnahatid.is. Vörur úr Reykjanes jarðvangi Vörur framleiddar í Reykjanes jarðvangi verða merktar sérstak- lega í Nettó Reykjanesbæ og Grindavík. LAUGARDAGUR 11. MAÍ Skógfellsstígur skokkaður Skógfellsstígur er gömul þjóðleið milli Voga og Grindavíkur. Hlaupið verður frá bílastæðunum við aflegg jarann við Voga kl. 10:00, yfir hraun og fjallendi þar sem spor forfeðranna eru meitluð í klappir. Tekið verður á móti skokkurum við sundlaugina í Grindavík. Skráning í hlaupið er á netfangið thorsteinng@grindavik.is. Ókeypis aðgangur að söfnum og sýningum á Reykjanesi Frír aðgangur er inn á eftirfarandi söfn og sýningar: Byggðasafnið á Garðskaga, Garði. Duus hús, Reykjanesbæ. Kvikan, Grindavík. Orkuverið jörð, Reykjanesvirkjun. Skessan í hellinum Reykjanesbæ. Víkingaheimar, Reykjanesbæ. Þekkingarsetur Suðurnesja, Sandgerði. SUNNUDAGUR 12. MAÍ Fjölskyldustund við Prestsvörðu Keflavíkurkirkja stendur fyrir gönguferð fyrir fjölskylduna kl. 11:00. Gengið verður frá bílastæðum við golfvöllinn í Leirunni. MÁNUDAGUR 13. MAÍ Fræðsluganga á Garðskaga Létt ganga um nágrenni Garðskagavita með starfs- mönnum Þekkingarseturs Suðurnesja. Gangan hefst við Garðskagavita kl. 20:00. ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ Hádegisfundur um almannavarnir og flugöryggi Flugakademía Keilis stendur fyrir hádegisfundi um almannavarnir og flugöryggi í húsnæði Keilis. Fundurinn hefst kl. 12:00. ÚRVALS HRÁEFNI ÚR REYKJANES JARÐVANGI Á VEITINGASTÖÐUM Eftirtaldir veitingastaðir bjóða alla daga uppá rétti úr fyrsta flokks hráefni úr Reykjanes jarðvangi: Bláa Lónið, Grindavík • Kaffi Duus, Reykjanesbæ • Norhern Ligth Inn, Grindavík • Salthúsið, Grindavík Sjómannastofan Vör, Grindavík • Tveir vitar, Garði • Vitinn, Sandgerði • Vocal, Reykjanesbæ Dagskrá vikunnar ásamt nánari upplýsingum er að finna á reykjanes.is MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ Göngustígur milli Grindavíkur og Bláa Lónsins opnaður Nýr göngustígur milli Grindavíkur og Bláa Lónsins formlega opnað- ur. Kynnt verður niðurstaða úr nafnasamkeppni og afsláttur í Bláa Lónið fyrir göngufólk. Nánari upplýsingar á grindavik.is Morgunverðarfundur Ferðamálasamtaka Suðurnesja Ferðamálasamtök Suðurnesja standa fyrir morgunverðarfundi um stöðu og framtíðarhorfur ferðaþjónustunnar á svæðinu. Fundurinn hefst kl. 8:30 og fer fram í Eldey, þróunarsetri. FIMMTUDAGUR 16. MAÍ Heklugos 2013 Hönnuðir og frumkvöðlar á Suðurnesjum kynna starfsemi sína í Eldey þróunarsetri kl. 20:00. Sett verður upp glæsi- leg tískusýning í Atlantic Studios. FÖS. TIL MÁN. 17–20. MAÍ Hreinsunarátak á Suðurnesjum Íbúar eru hvattir til að taka hönd- um saman um að gera fallegan landshlutann snyrtilegan fyrir sumarið. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum sveitar- félaganna. M 74 . S tu dio – 2 01 3 Uppboð á óskilamunum í vörslum lögreglunnar Uppboð á óskilamunum í vörslum lögreglunnar verður haldið föstudaginn 31. maí 2013 kl. 15.00 við lögreglustöðina í Keavík, Hringbraut 130. Aðallega er um að ræða reiðhjól. Hér með er skorað á þá sem hafa glatað reiðhjólum og öðrum munum að athuga hjá lögreglunni hvort þar sé hlutina að nna, ella mega þeir búast við því að uppboð fari fram. Keavík, 6. maí 2013, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Sýslumaðurinn í Keavík. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - s. 420-1700 og 420-1891 Sex styrkir voru veittir úr nýjum umhverfissjóði Fríhafnarinnar við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í síðustu viku. Umhverfissjóður Fríhafnarinnar var stofnaður í maí árið 2012 með það að markmiði að styrkja verkefni á sviði umhverfisverndar, með áherslu á nærsvæði starfsstöðva Fríhafnarinnar. Samþykkt var að 5 krónur af hverjum seldum plast- poka skyldu renna í sjóðinn. Alls nema þeir styrkir sem veittir voru nú rétt rúmri einni og hálfri milljón króna. Fjölmargir sóttu um í sjóðinn, en ákveðið var að veita sex aðilum styrk í fjölbreytt uppbyggingar- og hreinsunarverkefni á mismunandi sviðum. Áhugahópurinn Heiðafélagið hlaut styrk til gróður- setningar á um 1000 furum í mólendi á Miðnesheið- inni í nágrenni flugstöðvarinnar. Heiðafélagið leggur til mótframlag sem felst í gróðursetningu á trjánum. Ungmennafélag Njarðvíkur (UMFN) fékk styrk til gróðursetningu trjáa við keppnis- og æfingasvæði deildarinnar í Njarðvík. Það getur orðið ansi vinda- samt á svæðinu og því er hugmyndin að mynda skjól fyrir keppnisvelli svo börn og unglingar eigi auðveldara með æfingaiðkun, sem og að bæta og fegra aðstöðuna alla. UMFN leggur til mótframlag sem felst í vinnu við gróðursetningu, sem og að útvega það sem til þarf til verksins. Golfklúbbur Suðurnesja mun vinna að uppgræðslu á svæðum í kringum Hólmsvöll í Leiru og hlaut til þess styrk. Markmið golfklúbbsins er að hreinsa strand- lengjuna meðfram golfvellinum í Leirunni, skipta um jarðveg og gróðursetja tré vestan megin við golf- völlinn. Framlag golfklúbbsins er sjálfboðavinna við uppgræðsluna. Fyrir rúmum 20 árum gróðursetti Lionsklúbbur Njarð- víkur plöntur í svokallaða Paradís í Ytri Njarðvík. 2012 fékk Lionsklúbburinn þennan reit til umsjónar með það að markmiði að byggja svæðið enn frekar upp, til almenningsnota og yndisauka. Lionsklúbburinn fær styrk til þess að fjölga plöntum á svæðinu, sem og að koma upp bekkjum og borðum svo nýting svæðis- ins geti orðið betri og fjölbreyttari. Lionsklúbburinn mun vinna að þessu verki í sjálfboðavinnu, auk þess mun garðyrkjustjóri Reykjanesbæjar og Skógræktar- félag Suðurnesja koma að verkefninu með ráðgjöf. Þá stendur til að nemendur í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri muni koma að verkinu í gegnum loka- verkefni við umhverfisskipulag, skógfræði og land- græðslu. Sannkölluð paradís fyrir háskólanemendur. Skógræktar- og landgræðslufélagið Skógfell hyggst koma upp aðstöðu til þess að taka á móti leik- og grunnskólabörnum úr Vogum sem koma til gróður- setningar á svæði Háabjalla og hlaut styrk til verk- efnisins. Bjallinn er misgengi sem er austast af fimm mis- gengjum sem ganga út úr Vogastapa til suðvesturs. Skógrækt hófst við Háabjalla árið 1949 og er þar nú gróðursæll skógarreitur. Blái herinn eru félagasamtök sem stofnuð voru árið 1998. Meðlimir bláa hersins vinna að ýmsum sam- félagsverkefnum, s.s. hreinsunarverkefnum í nátt- úrunni, umhverfisfræðslu í leikskólum og svo mætti lengi telja. Frá upphafi hefur Blái herinn unnið hátt í 50.000 klukkustundir í sjálfboðavinnu í yfir 100 verkefnum á landsvísu. Forráðamenn þessara aðila tóku á móti styrkjunum í flugstöðinni en Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri og Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Isavia afhentu þá. Umtalsverð aukning varð á umsvifum Isavia á síðastliðnu ári. Tekjur félagsins jukust um 11,4% og voru 18,4 milljarðar kr. og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 3,8 milljarðar króna eða um 20% af tekjum. Hagnaður eftir skatta var um 738 milljónir króna. Isavia annast rekstur Keflavíkurflugvallar auk allra annarra flugvalla á landinu, ásamt flugleiðsöguþjón- ustu í landinu og er leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu. Félagið hélt aðalfund í síðustu viku. Mikil aukning hefur orðið á fjölda farþega um Kefla- víkurflugvöll en aukningin sem orðið hefur frá botnári efnahagskreppunnar hér á landi, 2009 nemur samtals um 44%. Framkvæmdir eru hafnar á Keflavíkurflug- velli til þess að takast á við þessa miklu farþegaaukn- ingu. Gott rekstrarútlit Áætlað er að samanlögð velta Isavia samstæðunnar verði um 20 milljarðar á árinu 2013, og er um 30% í erlendri mynt. Gert er ráð fyrir sambærilegri afkomu á árinu 2013 og var árið 2012. Ekki er gert ráð fyrir við- bótarlántökum á árinu þrátt fyrir miklar fjárfestingar. Forstjóri Isavia er Björn Óli Hauksson. Leiðandi í ferðaþjónustu Isavia er leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu og aðili að Markaðsátakinu Inspired by Iceland, Iceland Naturally og flugklasanum Air66N á Norðurlandi. Í ársbyrjun 2012 var tekið upp hvatakerfi fyrir Keflavíkurflugvöll sem miðar að því að styðja við flug utan háanna- tíma. Hvatakerfið hefur sannað gildi sitt og verið mikill styrkur í viðleitni félagsins til þess að fjölga farþegum og áfangastöðum. Alls héldu sex félög uppi áætlunar- flugi á Keflavíkurflugvelli í vetur og farþegaaukning jókst um hátt í fjórðung. Félagið undirbýr aukin umsvif á Keflavíkurflugvelli vegna far- þegaaukningar svo tryggja megi góða þjónustu. Gert er ráð fyrir a.m.k. 4-5 milljarða fjárfestingu næstu tvö ár í uppbyggingu á flugvöllum, flugstöðvum og ekki síst endurnýjun á tæknibúnaði flugleiðsöguþjónustu. Félagið annast rekstur innanlandsflugvallakerfisins samkvæmt þjónustusamningi við innanríkisráðu- neytið en fjárveiting til þess hefur farið minnkandi á undanförnum árum. Dótturfélög Isavia eru Fríhöfnin og hugbúnaðarfyrir- tækið Tern Systems. Miklar breytingar og umbætur standa yfir hjá Fríhöfninni um þessar mundir og mun fyrirtækið ásamt verslunum fá nýja ásýnd í sumar. Þar starfa vel á annað hundrað manns. (Sjá aðra frétt í blaðinu). Tern Systems hefur í yfir 25 ár hannað og framleitt hugbúnað til flugumferðarstjórnar og þjálf- unar flugumferðarstjóra og er með kerfi uppsett og í notkun hér á landi og víða í Evrópu, Asíu og Afríku. Hjá fyrirtækinu starfa 40 manns auk þess sem mikið af þekkingu og reynslu er sótt til móðurfélagsins eftir þörfum og verkefnum. Á dögunum undirrituðu Rakel Sölvadóttir fram- kvæmdastjóri Skema og Guð- jónína Sæmundsdóttir for- stöðumaður Miðstöðvar sí- menntunar á Suðurnesjum samning um samstarf um nám- skeiðahald í tölvuleikjaforritun fyrir börn á aldrinum 7-16 ára í Reykjanesbæ í sumar. Á námskeiðunum fá krakkarnir kennslu og innsýn í möguleika tækninnar á skemmtilegan og áhugaverðan máta. Kennslan byggir á leikjaforritun auk þess sem fléttað er inn í kennsluna hugarkortum og flæðiritum við hönnun leikjanna. Að sögn Rakelar sérhæfir Skema sig í rannsóknum og kennslu í forritun á öllum skólastigum. Fyrirtækið hefur þróað nám- skeiðaröð og aðferðafræði í for- ritunarkennslu sem byggir á því að með ómeðvituðum lærdóm í gegnum leik sjái nemendur að forritun sé bæði áhugavert og skemmtilegt fag. Notast er við þrívíð forritunarumhverfi og er jafningjakennsla (e. peer-teach- ing) hluti aðferðafræðinnar, en hún veitir kennara stuðning, gefur nemendum tækifæri til að fá nálgun jafningja og eykur færni og áhuga jafningjakenn- ara. Gaman er að segja frá því að Skema vinnur nú að útflutningi á aðferðafræði og námskeiðum sínum og stefnir að því að opna skrifstofu í Bandaríkjunum næst- komandi haust. Þetta er fyrsta skrefið í samstarfi þessara tveggja fyrirtækja og má búast við fleirum áhugaverðum námskeiðum með haustinu bæði fyrir almenning og kennara að sögn Guðjónínu. -starfsmannafjöldi verður 650-700 manns í sumar Hagnaður af rekstri isavia 740 millj. kr. Sex aðilar á Suðurnesjum fengu umhverfisstyrki Fríhafnarinnar tölvuleikjaforritun fyrir 7-16 ára hjá mss Rakel Sölvadóttir framkvæmdastjóri Skema og Guðjónína Sæmunds- dóttir forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum hand- sala samning um samstarf um námskeiðahald í tölvuleikjaforritun fyrir börn á aldrinum 7-16 ára í Reykjanesbæ í sumar. FRÉTTIR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.