Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 08.05.2013, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 8. maí 2013 17 Elva Lísa Sveinsdóttir úr Njarð-víkurskóla vakti landsathygli þegar hún bætti Íslandsmetið í hreystigreip í riðlakeppni Skóla- hreysti fyrir skömmu. Að meðaltali eru keppendur að tolla um 2:35 mín- útur á slánni og var fyrrum Íslands- met 6:28 mínútur. Margir héldu að það met yrði seint slegið en Elva Lísa var á öðru máli. Hún gerði sér lítið fyrir og náði tímanum 11:08 mínútur og bætti því fyrra met verulega. Elva notaðist við tækni sem vakti nokkra athygli en hún lét annan handlegg síga niður öðru hverju og hékk því á annarri hendi. Það gerði hún til þess að halda blóðflæðinu gangandi. Hreystigreipin snýst um það að hanga á slá í sem lengstan tíma en þrautin tekur jafn mikið á andlega og líkamlega þáttinn. Elva æfði fim- leika um árabil og segir hún að það hafi óneitanlega hjálpað henni að hafa sveiflað sér á tvíslánni í fimleikunum. Elva sem er 15 ára getur því miður ekki keppt í Skólahreysti að ári en hún fer í framhaldsskóla í haust. Elva hefur í kjölfarið á glæsilegum árangri fengið að heyra nokkra slappa brandara frá skólafélögunum. „Það er frekar pirr- andi,“ segir hún og brosir. „Fólk talar um að það sé að hanga með mér og þannig bara“ segir Elva en hún er ekki of mikið að kippa sér upp við létt grín af þessu tagi. Til þess að ná þessum árangri þurfti Elva að sjálfsögðu að æfa vel og þar naut hún m.a. aðstoðar Sandgerð- ingsins Freyju Sigurðardóttur sem er margfaldur Íslandsmeistari í fitness. Hjá Freyju æfði hún m.a. armbeygjur en Elva nær um 50 slíkum. „Það var hrikalega gaman að æfa með Freyju. Hún kenndi mér armbeygjur og pepp- aði mig upp,“ segir Njarðvíkingurinn. Í fyrra tók Elva einnig þátt í Skóla- hreysti en þá náði hún „einungis“ að hanga í rúmar fjórar mínútur. Það er því sannarlega mikil bæting á milli ára hjá henni. Á meðan Elva hékk á slánni fyrir framan hundruði áhorfenda og sjónvarpsmyndavélarnar fór margt í gegnum huga hennar. „Ég hugsaði bara með mér að ég ætlaði að taka eina mínútu í viðbót, bara eina mínútu í viðbót. Svo hugsaði ég bara um alla áhorfendurna,“ segir Elva sem hlust- aði á tónlist á meðan hún vann þennan mikla sigur. En hvað var í ipodinum? „Ég var bara að hlusta á uppáhalds rapparann minn, Eminem,“ sagði methafinn að lokum. Einstakt met Elvu Lísu líklega seint bætt Bætti fyrraÍslandsmet um fjórar og hálfa mínútu Hollt, gott og heimilislegt ÓSKUM HOLTASKÓLA TIL HAMINGJU MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR Í SKÓLAHREYSTI LOKAHÓF YNGRI FLOKKA KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR KEFLAVÍKUR VERÐUR HALDIÐ Í TOYOTAHÖLLINNI FIMMTUDAGINN 16. MAÍ KL. 18:00. Iðkendum verða veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur og iðjusemi á leiktíðinni og pylsur verða grillaðar í mannskapinn. Iðkendur allir og foreldrar þeirra eru hvattir til að mæta. Barna- og unglingaráð KKDK Áttu málverk af Reykjanesi? Listasafn Reykjanesbæjar ætlar að setja upp sumarsýningu í byrjun júní á málverkum sem sýna Reykjanesið og náttúru þess og leitar nú til Suðurnesjamanna eftir aðstoð. Leitað er eftir verkum eftir ís- lenska málara sem íbúar væru tilbúnir að lána á sýninguna í sumar. Þeir sem eiga verk sem kæmu hugsanlega til greina eru beðnir að hafa samband við Valgerði í síma 864-9190 eða á netfangið listasafn@ reykjanesaber.is Theodór Sigur- bergsson tók dýfur og upphýfingar fyrir Holtaskóla. Ingibjörg Sól Guðmunds- dóttir og Kolbrún Júlía Newman í hreystigreip.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.