Víkurfréttir - 08.05.2013, Page 20
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR20
Það er fátt sem gleður okkar litlu
hjörtu meira en þegar börnin okkar
standa s ig vel .
Undanfarið höfum
við í Reykjanesbæ
fengið mörg tæki-
færi til að gleðjast
yfir góðum árangri
barnanna okkar
innan skólans sem
utan. Skemmst
er að minnast
stórkostlegs árangurs Holtaskóla sem
vann Skólahreysti þriðja árið í röð.
Myllubakkaskóli stóð sig einnig mjög
vel og endaði í 5. sæti. Fleiri skólar
úr Reykjanesbæ áttu fullt erindi í úr-
slitaþáttinn miðað við árangurinn í
undanriðlum.
En hraustum líkömum fylgja einnig
hraustar sálir og hafa krakkarnir
okkar verið að bæta sig á samræmdu
prófunum og árangurinn hefur
sjaldan verið betri en í ár. Af sjö
prófum þá náðist árangur yfir með-
tali í fjórum prófum og einn skólinn
var efstur í stærðfræði á landsvísu.
Markvisst hefur verið unnið að því
að efla læsi nemenda í sem víðustum
skilningi á öllum skólastigum og með
skimunarprófum og góðri eftirfylgni
getum við náð enn betri árangri.
Stuðningur foreldra er mikilvæg
forsenda fyrir öflugu skólastarfi og
er foreldrastarf í skólum Reykjanes-
bæjar til mikillar fyrirmyndar þannig
að eftir er tekið langt út fyrir nesið
okkar. FFGÍR hefur í gegnum tíðina
unnið mikið frumkvöðlastarf sem
hefur skilað sér í mjög jákvæðu við-
horfi foreldra eins og glöggt má sjá í
nýrri könnun sem var unnin á vegum
Skólavogarinnar.
Skólavogin sér um framkvæmd, fyrir-
lögn og úrvinnslu á viðhorfakönnun
til nemenda, foreldra og starfsmanna
skólanna. Margt áhugavert má lesa úr
þeirri könnun og var stuðningur for-
eldra og viðhorf þeirra til skólastarfs-
ins eftirtektarvert. Hvergi á landinu
verja foreldrar meiri tíma í aðstoð
við heimanám en í Reykjanesbæ og
helst það í hendur við trú þeirra á
að geta veitt aðstoðina og vilja nem-
enda til að leita eftir henni. Foreldrar
eru einnig ánægðir með námið og
stjórnun skólanna.
Allir skólarnir starfa eftir ákveðnum
reglum sem ýta undir jákvæða
hegðun og hefur orðið mikil breyting
til batnaðar í agamálum ef marka má
viðhorf foreldra til aga sem fram kom
í Skólavoginni. Viðhorf nemenda til
aga vakti þó sérstaka athygli þar sem
fram kom að þeir vilja enn meiri aga
í skólanum og var það sá þáttur sem
þeir helst vildu laga.
Einelti hefur verið mikið í um-
ræðunni og er það okkur ánægjuefni
að skólarnir vinna hörðum höndum
að því að uppræta einelti og þegar
það kemur upp er brugðist hratt og
vel við að mati foreldra.
Nú hafa skólarnir allir nýlokið við að
halda árshátíðir og hafa verið settar
á svið stórkostlegar skemmtanir sem
skapa ánægjulegan skólabrag. Allar
hátíðirnar bera þess merki að mikill
metnaður og vinna var lögð í þær og
geta allir sem lögðu hönd á plóg verið
stoltir af útkomunni.
Það er ekki sjálfgefið að skólastarf sé
með þeim blóma sem ég er hér að lýsa
en þetta væri ekki mögulegt nema
fyrir það hve skólarnir í Reykjanesbæ
eru vel mannaðir. Stjórnendur, kenn-
arar og starfsfólk eru að leggja á sig
mikla vinnu til að ná því besta úr
börnunum okkar og gera það með
mikilli prýði.
Eftir veturinn getum við því farið glöð
og ánægð inn í sumarið ef ekki prúð
og frjálsleg í fasi því skólarnir eru að
gera góða hluti og krakkarnir okkar
munu skila okkur bjartari framtíð.
Áfram Reykjanesbær!
Baldur Þ. Guðmundsson
formaður Fræðsluráðs
Reykjanesbæjar
Viktor Smári Hafsteinsson er 21 árs Keflvíkingur.
Hann er um þessar mundir að
ljúka skólaferli sínum í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja þar
sem hann stundar nám á félags-
fræðibraut. Viktor er FS-ingur
vikunnar að þessu sinni.
Hvað er skemmtilegast við
skólann?
Viðburðir sem brjóta aðeins
skólavikuna upp, það getur
stundum verið erfitt að vera nem-
andi. FS býr þó svo vel að eiga
gott nemendafélag sem kemur
manni til bjargar þegar þörf er á.
Hjúskaparstaða?
Ég er einhleypur.
Hvað hræðistu mest?
Ég er með fuglafóbíu á mjög háu
stigi, ég hræðist máva mest. Ég
komst einu sinni ekki í vinnuna
vegna þess að það var mávsungi
sem var fyrir utan útidyrnnar
heima hjá mér. Unginn var svo
vitlaus að hann var ekki einu
sinni hræddur við hundinn
minn, og þá voru góð ráð dýr.
Hvað borðar þú í morgun-
mat?
Ég fæ mér venjulega hafra-
graut, en það fer allt eftir því
hversu fljótur ég er á lappir,
venjulega er ég að vakna 07:52.
Ef ég er með allt niðrum mig
og er þar að leiðandi seinn þá
fær maginn að kenna á því
og fær ekkert að borða fyrr
en ég er kominn í skólann.
Hvaða FS-ingur er líklegur til
þess að verða frægur?
FS er botnlaus uppspretta ein-
staklinga sem geta náð langt,
þar er Arnór Ingvi fremstur í
flokki. Svo held ég að Arnar
Eyfells verði virtur fréttamaður,
Bjarki Þór þyrluflugmaður
og Ísak Ernir forseti. Þetta er
aðeins hluti af mínum spám.
Hver er fyndnastur í skól-
anum?
Þeir Ingi Þór og Sigurbergur fá
að deila þessu saman, þess má
til gamans geta að þeir bjuggu
saman á tímabili, sú sambúð
var á köflum stórkostleg.
Hvað finnst þér vanta í
mötuneytið?
Mér finnst vanta aðeins
meiri heilsumat.
Hver er þinn helsti galli?
Ég er algjörlega gallalaus.
Hvað er heitasta parið í
skólanum?
Lolla og Bjassi. Það hafa allir
nemendur skólans fengið að
skyggnast örlítið inn í sam-
band þeirra með tilkomu Inst-
gram og Facebook. Einnig tók
Hnísan sig til og safnaði bestu
molunum og settu saman í
smá myndskeið sem vakti
mikla lukku meðal nemenda.
Hverju myndirðu breyta ef þú
værir skólameistari FS?
Ætli ég myndi ekki laga náms-
ferilinn hjá mér og nánustu
vinum. Bjóða spilaklúbbnum Ými
uppá spilaborð á 2. Hæð. Ég og
Stulli myndum fara saman í það
að laga þráðlausa Internetið og að
lokum bjóða uppá frjálsa mæt-
ingu. Mér finnst samt afar ólík-
legt að ég verði skólameistari FS.
Af hverju valdir þú FS?
Einfaldlega vegna þess að mér
leist vel á FS. Ég vissi voða
lítið um framhaldsskóla, það
tók mig t.d. eina önn að átta
mig á hvað einingar eru, það
er kannski ástæðan fyrir því
að ég útskrifast einu ári á
eftir jafnöldrum mínum.
Áttu þér viðurnefni?
Ekki opinber nei, ég er oft
kallaður ýmsum nöfnum af
vinum en þau viðurnefni er ekki
nógu fáguð fyrir fjölmiðla.
Hvernig finnst þér félagslífið
í skólanum?
Mér finnst það rosa fínt,
margt sem er í boði hverju
sinni. Nemendafélagið hefur
gert mjög vel í því að halda
skemmtilega viðburði.
Áhugamál?
Ég hef mikinn áhuga á fót-
bolta. Svo á ég mér draum
um að verða plötusnúður.
Hvert er stefnan tekin í fram-
tíðinni?
Eftir að ég er búinn með FS mun
ég vonandi fara í skóla í USA og
spila þar fótbolta með skólaliðinu.
Hvað finnst þér um Hnísuna?
Ég var aðdáandi númer eitt!
En eftir að nýja Hnísan tók við
hætti ég að vera aðdáandi númer
eitt. Þeir eru samt ágætir.
Ertu að vinna með skóla?
Já, ég er að vinna í Fjörheimum
Hver er best klædd/ur í FS?
Þegar Arnar Már tekur sig til
og er ekki þreyttur, þá er hann
oftast mjög vel klæddur. Svo
er strákurinn sem er alltaf
með hattinn líka flottur.
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Sjónvarpsþættir
Ætli það sé ekki bara
Modern Family.
Hljómsveit
Ég á mér enga sérstaka hljóm-
sveit. Valdimar eru mér þó
ofarlega í huga. Ég fór á tónleika
með þeim og lúðrasveitinni um
daginn, þeir voru magnaðir!
Leikari
Ég og Frans, sem er vinur minn
höfum mikið dálæti á Will
Farrell. Ég er samt það barna-
legur að mér finnst teiknimyndir
skemmtilegri en leiknar myndir.
Ég er hræddur um að and-
legur þroski minn sé ekki í
takt við líkamlegan þroska.
Vefsíður
Ég er tíður gestur á fótbolti.
net, facebook og visir.is
Flík
Ég á „blazer“ sem mér þykir
rosalega vænt um. Ég á smá
jakkafatajakkasafn sem mér er
farið að þykja mjög vænt um, þar
er þessi umtalaði jakki fyrirliði
af jökkunum. Svo er ég nýlega
farinn að safna slaufum líka.
Skyndibiti
Ég er mjög duglegur að fara með
iðnaðarmönnunum á Réttinn,
svo er Olsen vinsæll þegar ég vill
fá mér fitusnauðan skyndibita.
Kennari
Pottþétt ekki þeir kennarar
sem hafa fellt mig. Ég kann
nú samt furðu vel við flesta
kennarana, Tóta og Sara Harðar
standa þó örlítið uppúr.
Fag
Ég hef mjög gaman af sál-
fræði, meira segja svo gaman
að ég ætla að verða sál-
fræðingur eftir nokkur ár.
Hvaða tónlist fílarðu í laumi
(guilty pleasure)?
Ég viðurkenni að ég og Frans
hlustuðum og sungum mikið
Call Me Maybe síðasta sumar.
Ég hlusta á gamla íslenska
tónlist í laumi. Gaggó vest er
uppáhaldslagið mitt, ég hlusta
samt ekki á það í laumi, því þá
tek ég Gaggó vest dansinn sem
vekur oftast mikla kátínu.
ER ALGjöRLEGA
GALLALAUS
*Suðurnesjamagasín
Nýr þáttur næsta mánudag kl. 21:30 á ÍNN og vf.is
Frjókorn eru litlar agnir sem berast
um loftið með vindinum. Þegar
þeim er andað
inn, geta þau ert
slímhúð í nefi og
koki. Ofnæmis-
einkenni koma
f r a m e i n s o g
hnerri, nefrennsli
og kláði í augum.
E i n k e n n i g e t a
v e r i ð e i n s o g
venjulegt kvef. Augun roðna og bólgna
og kláði í nefi og augum. Minnkað
lyktarskyn, höfuðverkur og þreyta.
Frjóofnæmi getur valdið astmaein-
kennum með hósta og andþyngslum.
Frjókornatímabilið á Íslandi er breyti-
legt frá ári til árs. Einkenni birkiof-
næmis koma fram í maí-júní. Gras-
frjó um miðjan júní og ná hámarki
seinni hluta í júlí eða byrjun ágúst-
mánaðar. Þegar veðrið er gott, heitt
og þurrt, er mun meira af frjókornum
í lofti en á rigningarsumrum.
Best er, ef að hægt er, að forðast
ofnæmisvakann, en það getur verið
erfitt. Ráðlagt er að hugsa sérstaklega
vel um augu, nef, húð og hár. Gott er
að fara oftar í sturtu, því frjókornin
festa sig á húð og hár yfir daginn. Við
það að fara í sturtu og skola hárið
áður en maður leggur sig, minnka lík-
urnar á óþarfa ertingu af frjókornum
yfir nóttina. Gott er að skola nef og
augu með saltvatni. Nota sólgleraugu
til að vernda augun fyrir frjókornum.
Halda sig innandyra þegar frjókornin
mælast í hámarki ef kostur er. Þeir
sem eru með grasofnæmi ættu ekki
að slá blettinn.
Í apótekum eru til lyf í lausasölu við
ofnæmi „antihistamín lyf “. Þau eru
til inntöku og til staðbundinnar notk-
unar. Lyfin draga úr kláða og hnerra
og þurrka slímhúð. Hægt að taka
lyfin eftir þörfum, en þegar einkenni
eru mikil er nauðsynlegt að taka
þau reglubundið. Mikilvægt er að
lesa vel leiðbeiningar með lyfjunum.
Lyfin og úrræðin eru nokkuð góð,
látum okkur líða vel í frjókornatíð og
njótum sumarsins, með gleði í hjarta.
Kveðja
Sigríður Pálína Arnardóttir
Lyfju Reykjanesbæ
n Sigríður pálína arnardóttir Skrifar:
Úrræði við frjóofnæmi
Póstkassinn
n Baldur guðMundSSOn Skrifar:
Hraustir skólar