Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 24
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR24
GS KONUR
SUMAROPNUNARTEITI
8. MAÍ KL. 20:00 Í GOLFSKÁLANUM Í LEIRU
· Kynning á sumarstarfi
GS kvenna
· Skemmtisögur
· Tískusýning frá
Gofbúðinni í Hafnarfirði,
SI Verslun og Skóbúðinni
í Keflavík - Ecco
· Tónlist
· Kynningar
· Kynning og óvænt
gleði frá Hissa.is
· Tónlist Þóranna og Elmar
Allar konur velkomnar!
Frítt inn, barinn opinn
Leitum að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingi
til starfa á fjármálasviði Atafls í Reykjanesbæ
Fjölbreytt bókhaldsreynsla
Góð tölvukunnátta, Navision, Excel
Enskukunnátta nauðsynleg
Markviss og sjálfstæð vinnubrögð
Þarf að geta hafið störf sem fyrst
Umsókn ásamt starfsferilsskrá sendist á maria@atafl.is
Allar nánari upplýsingar veitir María Þorgrímsdóttir,
starfsmannastjóri í síma 420-6400.
Umsóknum skal skilað fyrir 18. maí 2013.
ATVINNA
N jarðvíkingurinn Hilmir Ingi Jónsson starfaði sem raf-
virki fyrir nokkrum árum þegar
hann fékk hugmynd sem hefur
slegið í gegn. Í framhaldinu þró-
aði Hilmir búnað sem aflar upp-
lýsinga um orkunotkun og getur
stuðlað að mikilli hagræðingu
og komið í veg fyrir orkusóun.
Hugmyndin hefur nú verið seld
áfram víða um heim og í síðustu
viku gerði fyrirtæki hans, Re-
Make Electric, stóran samning
við fyrirtæki í Bretlandi um að
koma búnaði fyrirtækisins í sölu
á breskan markað. Fyrirtækið fór
n Njarðvíkingurinn Hilmir Ingi Jónsson hefur náð frábærum
árangri með fyrirtæki sitt ReMake Electric - Þróaði hugbúnað
sem aflar upplýsinga um orkunotkun:
Byrjaði allt við
eldhúsBorðið
af stað við eldhúsborðið en er í
dag, nokkrum árum síðar, starf-
rækt í Kópavogi með 25 starfs-
mönnum.
Hilmir Ingi, sem er rafvirki að
mennt, uppgötvaði í starfi sínu að
skortur var var á upplýsingum um
rafmagn til bilanaleitar og kviknaði
hugmynd í framhaldinu um að
þróa búnað sem aflaði upplýsinga
um orkunotkun. Hann fór í það
ferli að þróa þessa hugmynd áfram,
fékk styrki frá Tækniþróunarsjóði
og hefur árangurinn verið frábær.
Hilmir Ingi vann Start09 árið 2009
og Gullegg Innovit árið 2009 og
í kjölfar þess komu fjárfestar að
fyrirtækinu. Í lok síðasta árs var
ReMake Electric valið sem besta
fjárfestingartækifæri í Evrópu og
í orkugeiranum af breska grein-
ingarfyrirtækinu Frost&Sullivan
en fyrirtækið hefur einnig unnið
til nokkura alþjóðlegra viðurkenn-
inga. Nú á dögunum var tilkynnt að
ReMake Electric hefði gert samn-
ing við breska fyrirtækið InTouch
IS um markaðssetninu á eTactica
kerfinu í Bretlandi sem ReMake
Electric hefur þróað.
„Ég fékk þessa hugmynd við eldhús-
borðið á heimili okkar Svanhildar í
Grindavík, árið 2005 en þá starfaði
ég sem rafvirki hjá Sigga Ingvars í
Garðinum. Í kjölfarið ákváðum við
kærastan mín, Svanhildur Björk,
að stofna fyrirtæki í kringum þessa
hugmynd,“ segir Hilmir Ingi.
„Þetta hefur gerst ótrúlega hratt
og við höfum fengið með okkur
frábæran mannskap. Við gerðum
stóran samning við breskt fyrir-
tæki í síðustu viku sem hefur mjög
góða markaðsstöðu þar í landi fyrir
orkusparandi og orkustjórnunar
lausnir. Þetta er mjög alveg dúndur
samningur fyrir okkur. Bretland
er stór markaður og við væntum
þess að ná mögnuðum árangri með
InTouch.“
Hjálpar fyrirtækjum að skilja
og spara raforkunotkun
ReMake Electric hefur þróað
vél- og hugbúnað sem bætir upp-
lýsingargildi við hefðbundinn
raföryggisbúnað og býður einnig
upp á upplýsingagjöf til eftirlits og
vöktunar á raforku í byggingum.
Með þessum búnaði geta fyrirtæki
fengið til sín upplýsingar með til-
kynningum og sparað allt að 40%
raforku en sparnaðurinn er að
meðaltali 20%. Einnig geta fyrir-
tæki forðast skemmdir sem verða
vegna of mikils álags og lengt líftíma
tækja með betri álagsstjórnun.
„Okkar áhersla er að safna upp-
lýsingum um rafmagn og gera þessi
gögn skiljanleg fyrir notandann svo
hann geti tekið upplýstar ákvarð-
anir. Þetta snýst um að sundurliða
rafmangsnotkun til að átta sig á
því hvar má ná fram hagræðingu
og hafa vöktun á rafmagnsálagi til
að ná fram betri álagsdreifingu.
Þannig er hægt að fyrirbyggja
orkusóun og einnig skemmdir á
rafmagnstækjum og leiðslum.
Okkar búnaður bætist bara við nú-
verandi rafmagnsöryggi og því er
lítill tilkostnaður við að bæta okkar
búnaði við,“ bætir Hilmir við.
„Fyrirtækið stækkar nánast með
hverri vikunni sem líður og það
mikill áhugi erlendis fyrir okkar
búnaði. Við erum allt frá Íslandi til
Singapúr eins og staðan er í dag og
það eru virkilega spennandi tímar
framundan hjá fyrirtækinu.“
Teknir við
kannabis-
reykingar
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af
tveimur piltum innan við
tvítugt. Þeir voru búnir að
koma sér fyrir í skoti þar sem
þeir héldu að enginn sæi til
þeirra og voru að kveikja í
jónu, þ.e. kannabisblönduðu
tóbaki. Piltarnir voru færðir á
lögreglustöð og reyndist annar
þeirra vera með kannabisefnin.
Þá hafði lögregla samband
við foreldra þeirra og ræddi
við þá. Komu þeir síðan á lög-
reglustöðina og sóttu piltana.
Lögreglan minnir á fíkniefna-
símann 800-5005. Í hann má
hringja nafnlaust til að koma
á framfæri upplýsingum um
fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn
er samvinnuverkefni lögreglu
og tollyfirvalda og er liður í bar-
áttunni við fíkniefnavandann.
Olíu og vara-
dekkjum stolið
Lögreglunni á Suðurnesjum var í gær tilkynnt um að
um það bill hundrað lítrum
af olíu hefði verið stolið af
vinnuvél í Keflavík. Um var
að ræða traktorsgröfu og
var tankur hennar algerlega
tómur þegar eigandinn
ætlaði að fara að nota hana.
Þá var varadekkjum stolið
af tveimur bifreiðum í
umdæmi lögreglunnar.
Málin eru í rannsókn.
Skötuhjúin Hilmir Ingi Jónsson og Svanhildur
Björk Hermannsdóttir stofnuðu ReMake Electric.
„eTactica“-búnaðurinn
hefur verið settur á markað
víða um heim og er nú á leið
á Bretlandsmarkað.