Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Qupperneq 28

Víkurfréttir - 08.05.2013, Qupperneq 28
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR28 Ölvaður öku- maður laug til nafns Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði för ökumanns í Keflavík um helgina. Hann mældist á 46 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Lögregla veitti ökumanninum eftirför og var akstur hans stöðvaður skömmu síðar. Þegar hann var færður yfir í lögreglubifreið reyndist vera áfengislykt af honum og var hann handtekinn. Þá reyndi ökumaðurinn einnig að ljúga til um hver hann væri og var hann líka kærður fyrir það. Lögreglan leitar eftir aðstoð Skemmdir voru unnar á fimm bifreiðum í Keflavík um helgina. Athæfið átti sér stað aðfaranótt laugardagsins. Tvær bifreiðanna stóðu við Ránargötu og þrjár við Suður- götu. Í öllum tilvikum voru hliðarspeglar bifreiðanna brotnir og ein þeirra hafði einnig verið rispuð. Lögreglan á Suðurnesjum biður þá sem kunna að búa yfir upp- lýsingum um hver eða hverjir voru þarna að verki að hafa samband í síma 420-1800 Réttindalaus stöðvuð í átt- unda sinn Lögreglan á Suðurnesjum hafði nýverið afskipti af tæplega fertugri konu sem ók um án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini sitt. Var þetta í áttunda skiptið sem lögregla stöðvar akstur konunnar vegna þessa. Þá var sautján ára stúlka stöðvuð þar sem hún ók í umdæminu. Hún reyndist vera án ökuréttinda og viðurkenndi brot sitt. Að auki hafði hún tekið bílinn ófrjálsri hendi. Loks var karlmaður á fertugs- aldri stöðvaður, þar sem hann ók eftir vegaröxl á Reykjanes- braut. Framrúða bifreiðar hans var brotin og að auki var bifreiðin ótryggð. Ökumað- urinn var aukin heldur ekki með ökuskírteini meðferðis. Lögregla fjarlægði skrán- ingarnúmerin af bifreiðinni. Sparkaði í lög- reglubifreið Karlmaður á þrítugsaldri mátti gista fanga- geymslur lögreglunnar á Suðurnesjum eftir að hann sparkaði í lögreglubifreið. Maðurinn hafði verið færður á lögreglustöð vegna annars máls, en var frjáls ferða sinna þegar þarna var komið sögu. Hann gekk þá rakleiðis að lögreglubifreiðinni sem stóð fyrir utan lögreglustöðina og sparkaði í afturstuðara hennar, þannig að á sá. Maðurinn, sem var mikið ölvaður, var handtekinn og vistaður í klefa meðan hann var að komast aftur til vits. Gáfu teppi í hjálparstarf E ldri borgarar í dagdvölinni á Nesvöllum afhentu á dög- unum myndarlega gjöf til Suður- nesjadeildar Rauða kross Íslands. Afhent voru teppi sem hafa verið prjónuð á síðasta eina og hálfa árinu. Það var Anna Karólína Gústafs- dóttir sem afhenti teppin en Guð- björg Sigurðardóttir, formaður Suðurnesjadeildar RKÍ, tók við gjöfinni. Hún greindi jafnframt frá því að teppin fari í gám með hjálpargögnum sem sendur verður til Hvíta Rússlands en þar eru vetur mjög kaldir og því verða hlý teppi vel þegin. Litskrúðugur dans Árleg vorsýning BRYN Ballett Akademíunnar, Listdans- skóla Reykjanesbæjar, fór fram í Andrews leikhúsinu á Ásbrú á dögunum. Sýningin var litskrúðug eins og sjá má á meðfylgjandi myndum frá skólanum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.