Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 30
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR30
SPORTIÐ
n Keflvíkingar fá KR í heimsókn í fyrsta heimaleiknum í Pepsi-deildinni í knattspyrnu:
Verðum að
afsanna þetta
á vellinum
Keflvíkingar máttu sætta sig við
2-0 tap gegn núverandi Íslands-
meisturum FH á mánudag. Mar-
jan Jugovic skoraði mark Kefl-
víkinga í upphafi síðari hálfleiks
en FH-ingar leiddu verðskuldað
2-0 í hálfleik. Keflvíkingar voru
til alls líklegir í síðari hálfleik eftir
mark þeirra. Bítlabæjarstrákarnir
sóttu nokkuð fast undir lokin og
hefðu með örlítilli heppni getað
jafnað leikinn. Zoran Ljubicic
þjálfari Keflvíkinga var á því að
hans piltar hafi stjórnað leiknum
og átt meira skilið.
„Ég er að sjálfsögðu ósáttur við
mörkin sem við fáum á okkur.
Við sofnum á verðinum og FH
er þannig lið að þeir refsa, það
var kannski munurinn á liðunum
í leiknum,“ segir Zoran. Hann
hrósaði liðinu fyrir baráttu og vilja
og að hans mati var Keflavík betri
aðilinn á vellinum gegn Íslands-
meisturunum. „Það var nánast
eitt lið á vellinum og við stjór-
nuðum leiknum frá a-ö,“ sagði
Zoran en hann var ekki sáttur við
mörkin sem Keflvíkingar fengu á
sig og auk þess hefði átt að nýta
færin betur. „Þau færi sem við
fáum verður að nýta gegn liði eins
og FH, það er alveg ljóst.“
Næst á dagskrá er svo leikur gegn
KR á heimavelli en Zoran vonast
til þess að Nettóvöllurinn verði
sama vígi og áður var. „Heima-
völlurinn hefur verið ákveðin
vonbrigði undanfarið eitt og hálft
ár, það þarf að breytast. Zoran
vonast til þess að áhorfendur
láti sjá sig en stuðningur þeirra
er liðinu mikilvægur. „Þetta eru
strákar sem leggja sig 100% fram
í hverjum einasta leik fyrir félagið.
Þeir þurfa þó á stuðningi að halda
sama hvernig gengur.“
Varðandi spár fjölmiðla vill Zoran
sem minnst segja. „Okkur gekk
t.d. mjög vel á undirbúnings-
tímabilinu í fyrra og þá var okkur
spáð falli. Nú gekk okkur ekki svo
vel þar sem mikið var um meiðsli
og því margir ungir leikmenn að
fá tækifæri.“ Zoran segist lítið
taka mark á spám fjölmiðla og
eina leiðin til þess að afsanna
þessar spár sé að að láta verkin
tala. „Eina leiðin fyrir leikmenn
að láta rödd sína heyrast er inni
á fótboltavellinum, ég get öskrað
á hliðarlínunni en það gerir víst
lítið. Við þurfum hins vegar ekki
að hugsa um þetta en virðum
engu að síður skoðanir fjölmiðla,“
segir þjálfarinn. Varðandi ungu
leikmenn Keflvíkinga þá segir
Zoran að þeir eigi vafalaust eftir
að fá tækifæri með Keflvíkingum
í sumar. „Þeir þurfa bara að vera
þolinmóðir og bíða eftir rétta
tækifærinu, en ég er viss um að
þeir fá að láta ljós sitt skína.
„Það virðast vera þeirra rök að
Guðmundur hafi farið. Það er
þannig í Keflavík að það kemur
maður í manns stað en vissulega
er erfitt að fylla hans skarð,“ segir
Jóhann en að hans mati eru margir
efnilegir leikmenn í hópnum sem
nú fá tækifæri til þess að sanna sig.
Jóhann sagði í viðtalinu að ef
menn ætluðu að fjalla um knatt-
spyrnuna á faglegan hátt þá ætti
að sinna öllum liðum jafnt. „Það
má svo sem vel vera að þeir hafi
kynnt sér hin liðin alveg jafn
mikið og okkur, ég veit það ekki,“
en Jóhann segist annars ekki
vera mikið að velta sér upp úr
þessum spám. En er raunhæft að
hans mati að Keflvíkingar verði í
botnbaráttu? „Það getur svo sem
allt gerst ef við spilum ekki eins
og menn. Ég tel okkur þó vera
það góða að við eigum að geta
verið í baráttu um Evrópusæti.“
Keflvíkingar hófu Íslandsmótið
á mánudag gegn FH á útivelli
og endaði sá leikur með 2-1
sigri Íslandsmeistara FH.
Jóhann kvaðst nokkuð
sáttur með leikinn ef
undan eru skilin
úrslitin. „Ég man
ekki eftir að
hafa leikið
gegn FH þar
sem þeir eru
að beita skyndi-
sóknum. Við létum þá fara út
fyrir sinn þægindarhring og
vorum virkilega góðir framan af
leik.“ FH-ingar skoruðu mörkin
sín tvö á fimm mínútna kafla
og þá eftir langar sendingar yfir
vörnina. Jóhann segir að það þurfi
að laga fyrir
áframhaldið en
nýr markvörður
og vörnin þurfa
meiri tíma til þess
að ná betur saman
að hans mati. „Við
hefðum getað nýtt færi
okkar betur en þeir fengu
að sama skapi fín færi. Stóran
hluta leiks spiluðum við vel og
létum þá hafa fyrir hlutunum.“
Næsti leikur er gegn KR og leggst
sú rimma vel í Jóhann. „Það
verður gaman að komast á heima-
völlinn og það er alltaf fjör að spila
gegn KR. Það er orðið of langt
síðan við unnum þá síðast en von-
andi verður breyting þar á núna
á sunnudaginn,“ sagði Jóhann
en Keflvíkingar sigruðu KR-inga
síðast á Keflavíkurvelli árið 2008
OPNI
GOLFDAGURINN
FIMMTUDAGINN 9. MAÍ KL. 13:00-16:00
Æfingasvæði
Leiðbeinendur
sýna réttu
handtökin
Klúbbhús
Starf
Golfklúbbs
Suðurnesja
og tilboð
kynnt.
Púttgrín
Undirstöðu-
atriði í púttum
og vippum
kynnt
Golfvöllur
Áhugasamir
geta leikið
nokkrar holur
á Hólmsvelli.
Ingi Rúnar Gíslason golf-
kennari ásamt afreks-
kylfingum GS verða á
staðnum og leiðbeina.
Ýmis áhugaverð
tilboð kynnt.
Allir sem hafa áhuga á golfi eru velkomnir, hvort sem það eru
byrjendur eða þeir sem lengra eru komnir. Markmið golfdagsins er
að kynna golfíþróttina, frábæra aðstöðu í Leirunni og fjölbreytt starf
Golfklúbbs Suðurnesja. Komið og kynnið ykkur ýmis tilboð fyrir
byrjendur, börn og fjölskyldur.
Allir velkomnir.
Aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á pylsur og gos
Dagskrá golfdagsins
Hólmsvelli Leiru - Sími 421-4100 - gs@gs.is
- segir Zoran Ljubicic þjálfari Keflvíkinga
Gert mikið úr
brotthvarfi
Guðmundar
Jóhann Birnir Guðmundsson vakti nokkra athygli með ummælum sínum í viðtali við
fjölmiðla þar sem hann sakaði fjölmiðlamenn
um að hafa ekki kynnt sér lið Keflvíkinga nægi-
lega vel fyrir komandi tímabil. „Maður segir
ýmislegt þegar maður er heitur og stundum
getur maður orðað hlutina öðruvísi,“ sagði
Jóhann þegar Víkurfréttir náðu tali af honum.
Hann hefur það þó á tilfinningunni að raunin
sé sú að einstakir fjölmiðlar myndi sér ákveðnar
skoðanir og svo fylgi hinir í humátt. Fjölmiðlar
hafa talað um miklar breytingar á Keflavíkur-
liðinu og mikið hefur verið gert úr því að Guð-
mundur Steinarsson yfirgaf herbúðir þeirra og
gekk til liðs við Njarðvíkinga.
Jóhann sem er fæddur þann 5. desember árið 1977
lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Víðis í Garði
þann 7. júlí árið 1993, þá 16 ára gamall.
Ári síðar gekk Jóhann til liðs við Keflvíkinga. Hann
lék sinn fyrsta leik í efstu deild einmitt gegn KR-
ingum þann 1. júní árið 1994 en þá kom hann inn
á sem varamaður fyrir Ragnar Margeirsson. Fyrsta
mark Jóhanns í efstu deild kom í 2-0 sigri gegn FH
á heimavelli þann 5. júlí árið 1995 en þá var Jóhann
orðinn fastamaður í liðinu og lék samtals 20 leiki það
tímabil. Næstu árin festi Jóhann sig í sessi sem einn
af betri ungu leikmönnum deildarinnar og svo fór að
lokum að áhugi erlendra liða kviknaði á Jóhanni.
Árið 1998 samdi Jóhann við Watford í Englandi sem
þá lék í næst efstu deild. Þar lék Jóhann vel á tímabili
en fékk fá tækifæri þegar Watford komst upp í efstu
deild. Hann hélt síðar til Noregs árið 2001 til Lyn og
síðar Svíþjóðar þar sem hann lék með Örgryte og
GAIS. Hann gekk síðan til liðs við Keflvíkinga aftur
árið 2008.
Jóhann á að baki 137 leiki fyrir Keflvíkinga og í þeim
hefur hann skorað 36 mörk. Hvað varðar marka-
skorun þá hefur Jóhann aldrei skorað fleiri mörk
í deildinni en í fyrra en þá skoraði hann sjö mörk.
Árið 2011 skoraði hann svo sex mörk og er það hans
næstbesti árangur. Það mætti því segja að Jóhann sé
að verða marksæknari með aldrinum.
Jóhann EInS
OG GOTT RaUÐVÍn
Keflvíkingar treysta á aldursforsetann í sumar