Víkurfréttir - 21.11.2013, Blaðsíða 10
fimmtudagurinn 21. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR10
Jóhanna Vigfúsdóttir fluttist á Ásbrú fyrir þremur árum en hún hafði áður búið
nokkuð víða um Ísland. Jóhanna hóf þá nám
aftur eftir nokkurt hlé, þar sem hún hafði
nánast gefið háskólanám upp á bátinn. Með
tvo unga stráka og mann sem var mikið fjar-
verandi vegna vinnu tókst Jóhönnu að ljúka
námi frá Keili með glæsibrag. Eftir það lá
leið hennar í Háskóla Íslands þar sem við-
fangsefni hennar var sálfræði. Nú er Jóhanna
í miðju fræðilegu og verklegu námi við Há-
skóla Íslands. Blaðamaður Víkurfrétta settist
niður á kaffihúsi með Jóhönnu og spurði hana
um reynslu hennar af lífinu í Reykjanesbæ,
námið, fjölmiðlaferilinn og framtíðardrauma.
Fannst hún ekki vera þessi skólatýpa
Frá því að Jóhanna hóf hér nám í háskólabrú
Keilis hefur Reykjanesbær heillað hana. Hún
var búin að gefa það upp á bátinn að sækja
nokkurn tímann háskóla en snerist hugur þegar
hún eignaðist sitt fyrsta barn árið 2007. Hún
hóf fjarnám hjá Keili og gekk það að hennar
sögn vonum framar. Það er óhætt að taka undir
það en Jóhanna varð semi-dúx þegar hún út-
skrifaðist með næsthæstu einkunn árið 2010. Í
framhaldinu sneri Jóhanna sér að sálfræðinámi
við Háskóla Íslands þar sem hún lauk BS gráðu
á þremur árum.
Jóhanna ákvað að hefja skólagöngu að nýju eftir
að hún hætti um 17 ára aldur. Hún segir að
aðrir hlutir hafi verið meira spennandi á þeim
árum. „Ég hafði í raun enga trú á því að ég gæti
farið í skóla. Mér fannst ég ekki vera þessi týpa.“
Það var aldeilds fjarri lagi en þegar Jóhanna
útskrifaðist úr háskólabrú var hún með 9,12 í
einkunn og var semi-dúx við skólann eins og
áður segir.
Í sálfræðináminu í Háskóla Íslands var Jóhanna
svo einnig í hópi efstu nemenda þegar hún út-
skrifaðist. Þessi misserin stundar Jóhanna fram-
haldsnám í sálfræði og svo virðist sem hún hafi
hreinlega smitast af skólabakteríunni eftir að
hún fór loks af stað aftur. „Þegar ég var 25 ára
þá hugsaði ég að ég væri orðin of gömul fyrir
háskólanám. Eins og það sé einhver aldur,“ segir
Jóhanna sem í dag er 33 ára.
Reykjanesbær hefur komið á óvart
Jóhanna hefur búið víða á Íslandi í gegnum
tíðina en hún kallar sjálfa sig þó Reykvíking, það
sé auðveldast.
Þegar ákvörðun var tekin um að helga sig al-
gjörlega náminu þá fluttist fjölskyldan á Ásbrú.
Jóhanna viðurkennir það fúslega að áður en hún
fluttist á Ásbrú þá hafi hún sjálf verið með for-
dóma í garð Reykjanesbæjar. Hún segir að fólk
úti á landi og á höfuðborgarsvæðinu sé yfirleitt
með nokkuð neikvætt viðhorf þegar kemur að
Reykjanesbæ. Hún komst fljótlega að því að
fordómar hennar voru ekki á rökum reistir.
„Hér er margt frábært í gangi og bærinn hefur
komið mér mikið á óvart,“ segir Jóhanna. Hún
segist aldrei hafa séð jafn mikið og uppbyggi-
legt starf í kringum börn eins og í Reykjanesbæ.
Mikill metnaður er jafnframt í bæjarfélaginu
að hennar mati. „Það er rosalega gott að búa í
svona bæjarfélagi sem hefur svona gríðarlegan
metnað í málum sem snúa t.d. að menntun og
íþróttum.“
Verður kannski eins og Dr. Phil
Einhverjir gætu kannast við rödd Jóhönnu en
hún hefur starfað töluvert í útvarpi. Fyrst á FM
95,7 þar sem hún var m.a. í morgunþættinum
Zuber. Jóhanna hafði einnig umsjón með þætt-
inum Kósý á sínum tíma. Ennþá er Jóhanna við-
loðin útvarpið þar sem hún er reglulegur gestur í
þætti Svala og Svavars á K100 en auk þess er hún
með regluleg innslög í þætti Siggu Lund, en þar
var hún áður meðstjórnandi. „Þetta er gott fyrir
athyglisþörfina. Þetta tekur lúmskan tíma en ég
hef gaman af þessu,“ segir Jóhanna um fram-
göngu sína í fjölmiðlum, en takmark hennar
er fyrst og fremst að starfa sem sálfræðingur í
framtíðinni þrátt fyrir að ferill í fjölmiðlum gæti
hugsanlega verið í myndinni. „Kannski verð ég
svona Dr. Phil, hver veit,“ segir hin hláturmilda
Jóhanna og skellir upp úr. „Maður vill stundum
festast í þessu hlutverki sálfræðinemans. Hug-
tök og gagnrýnin hugsun heltaka mann og allt
verður rosalega alvarlegt. Þá er gott að skipta
aðeins um hlutverk og komast aðeins í útvarpið.
Leyfa sér að vera smá kjáni, því annars hættir
fólk bara að nenna að tala við mann,“ segir
Jóhanna.
Gæti orðið erfitt að fá
strákana til þess að flytja
Jóhanna á tvo unga syni, Vigfús Alexander (6
ára) og Eyþór Rafn (5 ára).
Róbert Guðlaugsson maðurinn hennar vinnur
hjá Jarðborunum og vegna vinnu sinnar þarf
hann oft að dvelja erlendis í lengri tíma, oftast í
fimm vikur í senn. Fjölskyldunni þótti því ein-
mitt tilvalið að búa nærri flugvellinum vegna
tíðra ferða Róberts erlendis sökum vinnu.
Það gefur því auga leið að Jóhanna þarf að sjá
um heimilið og strákana samhliða náminu. Hún
segir það vissulega krefjandi en vissar fórnir
þurfi að færa. Hún einfaldlega hellti sér af
fullum krafti í háskólanámið og annað félagslíf
varð hreinlega bara að sitja á hakanum á meðan.
Móðurfjölskylda hennar býr í Reykjanesbæ og
því getur hún leitað til systkina sinna þegar hún
þarfnast aðstoðar með strákana.
Jóhanna gæti vel hugsað sér að setjast hér að
til frambúðar. „Ég get vel ímyndað mér að hér
sé gott að alast upp. Strákunum mínum líður
afskaplega vel og þeim þætti sjálfsagt sárt að
fara héðan,“ segir Jóhanna en þrátt fyrir ungan
aldur eru synir hennar byrjaðir að æfa sund
og Crossfit. „Mér finnst þessi bær bara pínu
stórkostlegur. Ég held að hér sé ofboðslega gott
að alast upp. Mér finnst þetta svona kósý smá-
bæjarfílingur. Ég er alveg að fíla það í ræmur,“
segir Jóhanna hress en hún hefur kynnst mikið
af fólki í bænum og þá sérstaklega í gegnum
börnin og þeirra íþróttaiðkun. Varðandi það
neikvæða viðhorf sem einhverjir virðast hafa til
Reykjanesbæjar þá telur Jóhanna að Reykjanes-
bær þurfi alls ekki á einhverri ímyndarbreytingu
að halda. „Ég held að þetta eigi eftir að koma
smátt og smátt. Ég skynja það bara að hér eru
góðir hlutir að gerast,“ segir Jóhanna að lokum.
VERÐUR
KANNSKI
EINS OG
DR. PHIL
- Segir Jóhanna Vigfúsdóttir sem var búin að gefa námsferilinn
upp á bátinn. Fór síðan aftur í skóla eftir langt hlé og brilleraði.
- VIÐTAL // JÓHANNA VIGFÚSDÓTTIR ÍBÚI Á ÁSBRÚ
„Þegar ég
var 25 ára
þá hugsaði
ég að ég
væri orðin of
gömul fyrir
háskólanám.
Eins og það
sé einhver
aldur.“
Reykjanesbær
í Útsvari á
föstudaginn
u Á föstudagskvöld mætir
lið Reykjanesbæjar til leiks í
spurninga- og skemmtiþáttinn
Útsvar, sem rennur nú sitt sjö-
unda skeið. Lið Reykjanesbæjar
sem er þekkt fyrir vasklega og
ekki síður skemmtilega og líf-
lega framgöngu mætir nú liði
Garðabæjar sem sömuleiðis
hefur verið framarlega í flokki
Útsvarsliða, svo búast má við
hörku keppni.
Lið Reykjanesbæjar er að þessu
sinni skipað gömlum kempum,
þeim Baldri Guðmundssyni og
Huldu G. Geirsdóttur auk full-
trúa ungu kynslóðarinnar, Grét-
ari Sigurðssyni, sem er þó enginn
nýgræðingur þegar kemur að
spurningakeppnum en hann er
núverandi Gettu betur meistari
ásamt félögum sínum úr MR.
Bein útsendingin hefst kl. 20.00
í Ríkissjónvarpinu. Stuðnings-
menn eru velkomnir í sjónvarps-
sal til að hvetja liðið áfram. Þá
þarf að mæta að Efstaleiti 1, í
höfuðstöðvar RUV, ekki síðar en
30 mínútum fyrir útsendingu.
Enginn
byggðakvóti
til Sandgerðis
u Engum byggðakvóta var
úthlutað til Sandgerðisbæjar
fyrir fiskveiðiárið 2013/2014.
Þetta er niðurstaða atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðu-
neytisins en hún hefur verið
kynnt fyrir bæjaryfirvöldum í
Sandgerði.
Málið var tekið fyrir á 19. fundi
atvinnu- og hafnarráðs Sand-
gerðisbæjar 29. október sl. og
eftirfarandi bókað:
„Sandgerðisbær fékk synjun á
umsókn um byggðakvóta fyrir
fiskveiðiárið 2013/2014. At-
vinnu- og hafnarráð furðar sig
á þeim útreikningum sem eru
viðhafðir við úthlutun byggða-
kvóta. Ráðið telur tímabært að
forsendur verði endurskoðaðar
og hvetur sjávarútvegsráðherra
til að beita sér fyrir því að það
verði gert“.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar
tekur einhuga undir bókun at-
vinnu- og hafnarráðs og ítrekar
hvatningu til sjávarútvegs-
ráðherra um að beita sér fyrir
endurskoðun á forsendum fyrir
útreikningi byggðakvóta.
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 421 0001
AÐVENTUBLAÐ
VÍKURFRÉTTA
KEMUR ÚT
Í NÆSTU VIKU,
FIMMTUDAGINN
28. NÓVEMBER!