Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.11.2013, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 21.11.2013, Blaðsíða 16
fimmtudagurinn 21. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR16 -fréttir pósturu vf@vf.is Hugum að húðinni í kuldanum Þegar kólnar í veðri getur húðin orðið ansi þurr og viðkvæm sem getur ýtt undir ójafnvægi í húðinni og jafnvel húðvandamál. Því þurfum við að hlúa að húð- inni okkar og næra hana vel bæði að utan sem innan en það vill oft gleymast að það er ekki nóg að bera endalaust af kremum á húðina til að mýkja hana heldur er álíka mikilvægt að næra húðina innan frá með góðri fitu í fæðunni eins og laxi, avokadó, valhnetum, hörfæjum og ólífuolíu. Þar sem fitusýrunar eru allri frumu- starfssemi svo mikilvægar þá er æskilegt að taka omega 3 olíur inn aukalega ef þið náið ekki að fá þær í nægilegu magni úr fæðunni. Sumir gætu jafnvel þurft að taka fitusýrur tvisar á dag tímabundið yfir háveturinn ef mikill þurrkur og kláði er í húðinni til að vinna upp hugsan- legan fitusýru- skort og byggja upp og næra húðina. Útvortis er gott að eiga lífræna kókósolíu við höndina og bera á þurra bletti reglulega en kókosolían er einstaklega feit og nærandi og smýgur vel inn í húðina. Kókos- olían er að mínu besti kosturinn til að byrja á en ef það dugar ekki til þá eru fáanleg víða mjög góð íslensk jurtasmyrsli sem eru feitari og þau innihalda þar að auki mikið af virkum og uppbyggjandi efnum fyrir húðina. Svo auðvitað að muna eftir hönskunum og halda hita á húðinni í kuldanum;) Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.com/grasalaeknir HEILSUHORNIÐ ÁSDÍS GRASALÆKNIR SKRIFAR Samtals mættu 646 einstakl-ingar í blóðsykurmælingu sem Lions-hreyfingin stóð fyrir á Suðurnesjum um sl. helgi. Í Vogum mættu 65 í blóðsykur- mælingu, 245 í Grindavík og 336 í Reykjanesbæ. Í Reykjanesbæ reyndust nítján ein- staklingar vera með of háa mælingu og var ráðlagt að tala við lækni. Pálmi Hannesson hjá Lions- klúbbnum Garði sagðist í sam- tali við Víkurfréttir vera ánægður með þátttöku Suðurnesjamanna en margir þeirra sem mættu í mælingu sl. föstudag í Grindavík og á laugardag í Vogum og Reykja- nesbæ mætti gagngert til að láta mæla sig. Pálmi vildi jafnframt koma á fram- færi þökkum til Lyfju í Reykja- nesbæ sem lagði til allan búnað sem þurfti til mælinganna. VF-myndir: Hilmar Bragi 646 mældir Hljómahöll óskar e ir því að ráða tækni- og sviðsstjóra Tækni- og sviðsstjóri ber ábyrgð á öllum tæknimálum Hljómahallar s.s. vegna tónleika- og ráðstefnuhalds, funda, dansleikja, Poppminjasafnsins o.s.frv. Hann  þarf að hafa ríka þjónustulund og  yfirgripsmikla þekkingu á margvíslegum tæknibúnaði. Tæknimenntun af einhver- ju tagi er kostur en hann þarf einnig að geta tileinkað sér nýja tækni á skömmum tíma og vera fljótur að læra.  Verksvið •    Umsjón með öllum tæknimálum og sviðsstjórn Hljómahallar.  •    Umsjón með viðhaldi á tækjabúnaði hússins. •     Umsjón, viðhald og varðveisla á munum Popp- minjasafnsins. •     Tengiliður vegna bruna- og innbrotakerfi hússins. •     Vera reiðubúinn að koma á ýmsum tímum til þess að aðstoða leigutaka hússins. •     Umsjón með hljóðfærum Hljómahallar. •     Aðstoða framkvæmdastjóra við framkvæmd ýmissa verkefna. •     Önnur tilfallandi verkefni sem framkvæmdastjóri felur honum.   Hæfniskröfur •  Tæknimenntun sem nýtist í starfi er kostur •     Reynsla af umsjón tæknimála í kringum viðburði og annað skemmtanahald. •     Tækniþekking á s.s. hljóðkerfum, hljóðfærum, mögnurunum, hljóðfærum, skjávörpum, internetbúnaði o.m.fl. •     Góð og yfirgripsmikil tölvuþekking •     Þekking á snjalltækjum (snjallsímum og spjaldtölvum) •    Þekking á bæði OS og Windows stýrikerfum •    Mikilvægt er að viðkomandi hafi sýnt af sér sjálfstæði í vinnubrögðum og mikla hæfni í mannlegum samskiptum   Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember nk. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á vef Reykjanesbæjar.  Umsókninni um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.  Nánari upplýsingar veitir Tómas Young (tomas.young@reykjanesbaer.is), framkvæmdastjóri Hljómahallar. Hljómahöllin er ný menningarmiðstöð í Reykjanesbæ sem er ætlað að vera máarstólpi menningarlífs á Reykjanesi. ATVINNA TÆKNI- OG SVIÐSSTJÓRI HLJÓMAHALLAR Lagði fram kæru vegna fjársvika u Íbúi í Reykjanesbæ kærði um nýliðna helgi fjársvik til lögreglunnar á Suðurnesjum. Maðurinn hafði óskað eftir iPhone4 á vefsíðunni Bland. is. Við hann hafði samband karlmaður, sem kvaðst vera með til sölu slíkan síma, auk iPhone 4S. Gæti hann fengið þá saman á 65 þúsund. Niðurstaðan varð sú að kær- andinn fengi símana báða á 50 þúsund. Skyldi hann fá þá senda í pósti eftir að hafa lagt upphæðina inn á tiltekinn reikning, sem hann og gerði. Ekkert bólaði á sendingunni og illa gekk að ná í „seljanda“ sím- anna. Loks tókst það og sagði hann þá vin sinn hafa fengið að nota reikningsnúmer sitt og síma, þar sem hann væri ekki með heimabanka. Lögregla rannsakar málið og varar jafnframt við viðskiptum þar sem fólk leggur fjármuni inn á reikning án þess að hafa fengið vöruna í hendur. Fjöl- mörg mál hafa komið upp að undanförnu, þar sem óprúttnir eru að selja fólki ýmislegt, láta það millifæra á sig fjármuni, en afhenda svo aldrei hlutina sem þeir segjast vera að selja. Brunahani ekinn niður uBrunahani var ekinn niður á Suðurnesjum um helgina. Sá sem það gerði ók af vettvangi, án þess að láta vita, en skildi brunahanann eftir frussandi vatni í allar áttir. Þá var ekið á bifreið í Keflavík og öku- maðurinn sem það gerði ók einnig á brott án þess að gera vart við sig. Tveir ökumenn óku of hratt, annar á 109 og hinn á 124 kílómetra hraða, þar sem há- markshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Átta ökumenn voru kærðir fyrir að leggja bílum sínum ólöglega og fimm til viðbótar voru ekki með ör- yggisbelti spennt. Loks voru tveir ökumenn ekki með öku- skírteini sín meðferðis. Brenndist af ammoníaks- blandaðri olíu uVinnuslys varð um síðustu helgi í fiskvinnslufyrirtæki í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar var starfs- maður að vinna við vél sem keyrir kælikerfi fiskvinnsl- unnar þegar ammoníaks- blönduð olía sprautaðist í andlit hans. Maðurinn brenndist í and- liti, auk þess sem vökvinn fór í annað auga hans. Honum var ekið með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. LÖGGUFRÉTTIR Haukur Gígja verður 80 ára föstu- daginn 22.nóvember. Hann tekur á móti ættingjum og vinum að heimili sínu frá kl. 16 á afmælis- daginn. AFMÆLI Til hamingju með daginn elsku Reynir minn, ég elska þig. Þín Agata

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.