Bæjarins besta - 04.01.2007, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 20072
Þennan dag árið1914 voru lög um notkun bifreiða stað-
fest. Enginn mátti stýra bifreið nema hann væri „fullra 21
árs að aldri“. Í þéttbýli mátti ökuhraði aldrei vera meira en
15 km á klukkustund en 35 km utan þéttbýlis.
Dagurinn í dag
4. janúar 2007 – 4. dagur ársins
Fjórði elsti
íbúi landsins
Tíu Íslendingar á lífi eru
á aldrinum 101-104 ára
en þar af er einn Ísfirð-
ingur, Torfhildur Torfa-
dóttir, sem er fjórði elsti
Íslendingurinn og fædd
24. maí 1904, og því ríf-
lega 102 og hálfs árs
gömul. Elsti Íslendingur-
inn er Kristín Guðmunds-
dóttir í Hafnarfirði, sem
fædd er 11. maí 1902 og
er því 104 ára. Næst elstur
er Freysteinn Jónsson, og
þá Þuríður Samúelsdóttir.
Þetta kemur fram á lang-
lífisvefnum.
Í lok ársins 2006 eru
alls 33 Íslendingar á aldr-
inum 100-104 ára og mun
þetta með meira móti.
Fram kemur að óvenju lítil
nýliðun verði í þessum
hópi á næstunni enda séu
einungis 15 manns á lífi
99 ára. „Hins vegar hafa
aldrei verið fleiri 98 ára á
lífi eða 44. Þess má geta
að fyrir aldarfjórðungi
voru þrettán Íslendingar á
lífi sem höfðu náð hundr-
að ára aldri. Fyrir hálfri
öld voru þeir fimm“, segir
á langlífisvefnum.
– eirikur@bb.is
Reksturinn
lítið eitt
neikvæður
Rekstur Súðavíkurhrepps
og stofnana hans án fjár-
magnsliða og afskrifta
verður lítið eitt neikvæður
á þessu ári, gangi áætlanir
eftir. Tekjur samstæðu-
reiknings A og B hluta eru
áætlaðar tæplega 137 m.kr.
og útgjöld litlu meiri, eða
ríflega 137,5 m.kr. Sé
tekið tillit til fjármuna-
tekna, fjármagnsgjalda og
afskrifta verður rekstrar-
niðurstaða hreppsins aftur
á móti jákvæð um 9,2
m.kr., gangi áætlanir eftir.
Fjárhagsáætlunin var
tekin til seinni umræðu á
fundi sveitarstjórnar fyrir
áramót og var hún sam-
þykkt samhljóða. Áætlað
er að framkvæma fyrir
ríflega 10 milljónir króna
á næsta ári.
Sex námsmeyjar fengu styrk úr
Minningarsjóði Gyðu Maríasdóttur
Sex vestfirskar konur fengu
200.000 króna styrk úr Minn-
ingarsjóði Gyðu Maríasdóttur
á föstudag. Þær eru þær Judith
Amalía Jóhannsdóttir sem
stundar hönnunarnám í Iðn-
skólanum í Reykjavík en
stefnir á gullsmíðanám, Dag-
ný Þrastardóttir sem stundar
nám í hönnun með áherslu á
föt og búninga í Iðnskólanum
í Reykjavík, Sif Huld Alberts-
dóttir sem stundar nám í Iðn-
skólanum í Hafnarfirði á
hönnunar- og listnámsbraut,
Hafdís Pálsdóttir sem er við
nám í tónlistardeild Lista-
háskóla Íslands, Þórunn Arna
Kristjánsdóttir sem er á leik-
arabraut í Listaháskólanum,
Magdalena Sigurðardóttir
sem stundar nám í hönnun og
arkitektúr við Århus Arki-
tekteskole í Danmörku og
Friðgerður Guðmundsdóttir
sem nemur vöruhönnun í hönn-
unardeild Listaháskólanum.
Í ár bárust stjórn sjóðsins
sjö umsóknir en einni var
hafnað. Afhendingin fór fram
í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Gyða Maríasdóttir veitti
Húsmæðraskólanum Ósk á
Ísafirði forstöðu frá 1924 og
til dauðadags árið 1936.
Gamlir nemendur Gyðu stofn-
uðu sjóð til minningar um
hana á fimmtíu ára afmæli
skólans árið 1962. Í fyrstu var
hlutverk sjóðsins að styrkja
stúlkur frá Ísafirði eða nær-
sveitum til náms í heimilis-
fræðum eða skyldum greinum
en nú er markmið hans að veita
vestfirskum konum náms-
styrki og styrkja starfsemi á
sviði menningar og lista. Á
árinu 2006 hafa alls 34 konur
hlotið styrk úr sjóðunum og
sumar oftar en einu sinni.
Formaður sjóðsstjórnar er
Sigrún Guðmundsdóttir, kenn-
ari á Ísafirði, tilnefnd af Kven-
félaginu Ósk, en aðrir í stjórn
eru Inga Á. Karlsdóttir, Lands-
bankastjóri á Ísafirði, og Ingi-
björg Guðmundsdóttir, skóla-
meistari Menntaskólans á Ísa-
firði. – thelma@bb.is
Fjórar af sex námsmeyjum taka við styrknum.
17,3% fækkun íbúa í Bolungarvík á níu árum
Íbúum Ísafjarðarbæjar hef-
ur fækkað um 297 frá árinu
1997, eða úr 4.395 í 4.098.
Telst þetta fækkun upp á 6,8%.
Á sama tímabili hefur Bol-
víkingum fækkað úr 1.094 í
905, eða um 189 manns. Það
er fækkun upp á 17,3%. Íbú-
um í Reykhólahreppi hefur
fækkað úr 335 í 251, um 84
manns eða um 25,8%. Íbúum
í Tálknafjarðarhreppi hefur
fækkað úr 327 í 292, um 35
manns eða 10,8%. Íbúum
Vesturbyggðar hefur fækkað
um 311 manns, úr 1.248 í 937,
eða um 25% á tímabilinu.
Íbúum Súðavíkurhrepps
hefur fækkað úr 277 árið 1997,
í 229 í ár, um 48 manns eða
um 17,3%. Íbúum Árnes-
hrepps hefur fækkað úr 74 í
50, íbúum Kaldrananeshrepps
úr 142 í 101 og íbúafjöldi Bæj-
arhrepps stendur í stað í 100.
Árið 1997 var Strandabyggð
tvö bæjarfélög, Hólmavíkur-
hreppur og Broddaneshrepp-
ur, og töldu þeir samanlagt
593 íbúa. Í ár telur sameinuð
Strandabyggð 507 íbúa, og
hefur því fækkað á svæðinu
um 86 manns.
– eirikur@bb.is Íbúum Bolungarvíkur hefur fækkað um 189 manns á níu árum.
Miklar framkvæmdir fyrirhugað-
ar í Súðavíkurhreppi á næsta ári
Miklar framkvæmdir eru
fyrirhugaðar í endurbyggingu
og endurbótum á sjóvörnum í
Súðavíkurhreppi á næsta ári.
Samkvæmt framkvæmda-
áætlun er á árinu 2007 gert
ráð fyrir endurbyggingu grjót-
varnar innan á svokölluðum
Suðurgarði á um 100 metra
kafla, endurbótum á sjóvörn í
Vigur og gerð sjóvarna við
Langeyrartjörn, auk þess sem
grjótvörn norðan Súðavíkur-
hafnar við enda Njarðarbraut-
ar verður kláruð.
Aðspurður um fjármögnun
þessara framkvæmda segir
Ómar Már Jónsson, sveitar-
stjóri í Súðavík, að endur-
bygging á Suðurgarði sé að
75% greidd af ríkinu, en aðrar
framkvæmdir að 88%.
Framkvæmdaáætlunin var
tekin fyrir á fundi sveitar-
stjórnar í síðustu viku. Fund-
armenn sáu ástæðu til að fagna
þeim framkvæmdum sem fyr-
irhugaðar eru á árinu, en töldu
einnig mikilvægt að gerð flot-
bryggju við Suðurgarð sem
áætluð er árið 2009 verði flýtt
til ársins 2007. Að öðru leyti
var áætlunin samþykkt sam-
hljóða. – hbh
Álfabrenna í Bolungarvík
Álfabrenna verður haldin í Bolungarvík næstkomandi laugardagskvöld og hefst hún
klukkan 20. Álfabrennur hafa verið til skiptis á Ísafirði og í Bolungarvík undanfarin ár
og að þessu sinni er hún í höndum Bolvíkinga. Brennan fer fram á gamla malar-
vellinum við Hreggnasa. Mikið verður um dýrðir og munu Jólasveinarnir og foreldrar
þeirra, þau Grýla og Leppalúði, heilsa upp á gesti. Eins og nafn brennunnar ber með
sér verða álfar einnig á svæðinu og púkarnir frændur þeirra verða eflaust ekki langt
undan. Tónlist skipar stórann sess í dagskránni og stiginn verður dans.